Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 2
Það má segja að
Eurovision fölni í
samanburði við þessa
keppni.
Steindi Jr.
Veður
Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10
í dag. Bjart að mestu á vesturhelm-
ingi landsins, en stöku skúrir þar
síðdegis. Dálítil rigning um landið
austanvert. SJÁ SÍÐU 24
Hefur þú prófað nýju
kjúklgasteikurnar?
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOLT
A
Verslað fyrir skólann
Skólarnir eru að hefjast og þá þarf að verða sér úti um ýmsa hluti til að láta skólastarfið ganga smurt fyrir sig. Þó svo að sveitarfélög
útvegi ritföng þarf samt sem áður að gæta þess að eiga blýant heima að ógleymdum skiptibókunum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
TÓNLIST Stífar æfingar voru í gangi
þegar Fréttablaðið náði tali af Stein-
þóri Hróari Steinþórssyni. Hann
keppir fyrir Íslands hönd í heims-
meistaramótinu í luftgítar sem
fram fer í finnsku borginni Oulu.
Steinþór er Íslendingum kunnur
sem Steindi Jr. en á mótinu gengur
hann undir nafninu Rock Thor Jr.
Steindi segir að listamaðurinn
Sjón eigi heiðurinn af hinu nýja
nafni. Sjón hefur verið ráðgjafi
Steinda í ferlinu. Hann var sjálfur
frumkvöðull í luftgítar á heimsvísu
er hann lék með Sykurmolunum og
kallaði sig Johnny Triumph. „Það er
alltaf verið að taka hluti af Íslend-
ingum, við fundum Ameríku, við
fundum upp kokteilsósuna. Ég ætla
að koma með þennan titil heim,“
segir Steindi ákveðinn.
„Ég er mjög peppaður í þetta,“
segir Steindi. „Það má segja að Euro-
vision fölni í samanburði við þessa
keppni. Hingað streyma þúsundir
og stórir fjölmiðlar á borð við BBC
eru hérna að fjalla um keppnina.“
Á sviðinu mun Steindi „spila“
undir við eitt lag, sem er bræðingur
frá rokksveitum á borð við AC/DC.
Hann hefur aðeins eina mínútu til
að heilla dómnefndina sem inni-
heldur meðal annarra Doug Blair,
gítarleikara W.A.S.P.
Steindi spilar sjálfur ekki á alvöru
gítar en það er ekki skilyrði. „Mig
hefur alltaf langað til að verða best-
ur í einhverju. Ég sá auglýsingu fyrir
Íslandsmeistaramótið á Eistnaflugi
og ákvað að taka þetta mjög alvar-
lega og æfði stíft.“
Spurður um hver sé lykillinn að
góðri frammistöðu í luftgítar segir
Steindi: „Mestu máli skiptir að ná
tengingu við áhorfendurna. Síðan
skiptir búningurinn máli, líkamleg
Steindi ætlar að koma
með titilinn heim
Steindi Jr. er staddur í finnsku borginni Oulu til að taka þátt í heimsmeistara-
mótinu í luftgítar. Með honum í för er Sigríður móðir hans og gera þau ráð
fyrir íslenskum sigri. Steindi segir Eurovision fölna miðað við keppnina.
Rock Thor Jr. og móðir hans, Sigríður Erna.
frammistaða og fleira. Við þurfum
líka að fylgja reglunum, eins og að
mega ekki „týna“ gítarnum.“
Með Steinda í för er Sigríður Erna
Valgeirsdóttir, móðir hans, og hún
er álíka spennt og hann. „Ég fór með
til að peppa hann og sjá hann vinna
keppnina. Ég er stolt af stráknum,“
segir Sigríður. Segir hún mikla
stemningu í Oulu og fólk á öllum
aldri þar saman komið. „Ég er ekki
eina mamman sem fylgir keppanda,
ég hitti eina frá Japan.“
Ríkjandi heimsmeistari er jap-
önsk stúlka að nafni Nanami
Nagura, sem gengur undir nafninu
Seven Seas. Á meðal keppinauta
Steinda í ár eru Bandaríkjamaður-
inn Nordic Thunder og Frakkinn
French Kiss.
Líkt og Hatari gerði í Eurovision
vill Steindi reyna að nýta tækifærið
til að koma pólitískum skilaboðum
á framfæri. „Pútín er að lenda í
Helsinki í dag. Hann veit að það eru
margir Rússar að keppa hérna. Ef
hann kemur á keppnina reyni ég að
ná tali af honum undir fjögur augu,“
segir Steindi áður en hann heldur
aftur til æfinga.
kristinnhaukur@frettabladid.is
KVIKMYNDIR Bæjarráð Hornafjarðar
hefur hafnað ósk aðstandenda kvik-
myndarinnar Hvítur, hvítur dagur
um styrk til þess að hægt sé að sýna
myndina í sveitarfélaginu. Kvik-
myndin var tekin upp í Hornafirði
sem er jafnframt heimabær leik-
stjórans, Hlyns Pálmasonar.
Aðstandendur óskuðu eftir 400
þúsund króna styrk til kaupa á sýn-
ingarbúnaði þar sem enginn slíkur
er til í sveitarfélaginu. Yrði þá hægt
að nota hann til kvikmyndasýninga
í framtíðinni.
B æ j a r r á ð
hafnaði ósk-
inni og vísaði til
styrkveitingar
hjá atvinnu-
og mennt a-
málanefnd og
hjá sjóðu m
S a m b a n d s
sunnlenskra
sveitarfélaga.
– khg
Bæjarráð hafnaði
styrkveitingu
SJÁVARÚTVEGUR Í gær rákust tveir
smábátar á við Langanes og þurftu
björgunarskip að draga þá í land.
Vont var í sjó og hvasst.
Aðspurður um hvort strandveiði-
tímabilið sé of stutt og að smábáta-
menn þurfi að taka áhættu segir
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
að kerfið sé ekki gallalaust en að
þær breytingar sem gerðar voru
fyrir tveimur árum haf i verið
jákvæðar og aukið öryggi. Í ágúst
hefur verið mikil bræla og smá-
bátasjómenn hafa mátt missa út
fjóra daga. „Almennt séð láta menn
skynsemina ráða þó kerfið sé ekki
gallalaust. Ef veður er slæmt sigla
menn nálægt landi,“ segir Örn. „En
það getur alltaf myndast pressa.“
– khg
Skynsemi ráði
siglingum
Örn Pálsson
framkvæmda-
stjóri Landssam-
bands smábáta-
eigenda.
+PLÚS
VIÐSKIPTI BlackRock, eitt stærsta
eignastýringarfyrirtæki Banda-
ríkjanna, hyggst leggja íslenska
drykkjarvöruframleiðandanum
Icelandic Glacial til fé sem nemur
ríf lega 4,4 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Jóni Ólafssyni, stjórnarformanni
Icelandic Glacial.
Icelandic Water Holdings tapaði
18,1 milljón dollara, sem samsvarar
um 1,9 milljörðum króna, árið 2016
og jókst tapið um 650 milljónir
króna milli ára. Stærsta eign Ice-
landic Water Holdings er vatnsból
sem það metur á ríflega 10 milljarða
króna. – ilk
Fjárfesta í
íslensku vatni
2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
F
-E
A
1
C
2
3
9
F
-E
8
E
0
2
3
9
F
-E
7
A
4
2
3
9
F
-E
6
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K