Fréttablaðið - 22.08.2019, Síða 42

Fréttablaðið - 22.08.2019, Síða 42
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Ingunn Ólafsdóttir lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 19.08.19. Útförin verður tilkynnt síðar. Jónas I. Ketilsson Sigríður H. Helgadóttir Eggert Ketilsson Haraldur Á. Bjarnason Hrafn A. Ágústsson Joy C. Ágústsson Ólafur Á. Haraldsson Lísa Einarsdóttir Silja Unnarsdóttir Valdimar Ómarsson Margrét I. Jónasdóttir Michel Hinders Davíð G. Jónasson Ann Peters Katla M. Jónasdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, Þóra Ólafsdóttir lést á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut þann 15. ágúst. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 27. ágúst kl. 11. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja lungnarannsóknir á Íslandi, Háskóli Íslands kt. 600169-2039, banki 137-26-018240, skýring greiðslu er 1233992. Aad Groeneweg Ólafur Þór Jóelsson Margrét Sif Hákonardóttir Jón Pétur Jóelsson Harold Groeneweg Bodil Groeneweg Íris Anna Groeneweg Þórarinn R. Pálmarsson Helga Jóna Ólafsdóttir Ásgeir Friðsteinsson Edda Ólafsdóttir og barnabörn. Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ída Sigurðardóttir frá Hamraendum í Stafholtstungum, lést á Landspítalanum mánudaginn 19. ágúst. Ólöf Hildur Jónsdóttir Björn Jónsson Katrín Sveinsdóttir Anna Guðrún Jónsdóttir Birgir Skúlason Sesselja Þórunn Jónsdóttir Ólafur Hilmarsson barnabörn og barnabarnabörn. 540 3320 • gardheimar.is blomabud@gardheimar.is Leyfðu okkur að aðstoða þig! Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðný S. Arnbergsdóttir kaupmaður frá Borgarfirði eystri, Þrúðvangi 2, Hafnarfirði, lést í faðmi dætra sinna og systur 9. ágúst. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju 26. ágúst kl. 13.00. Stefanía, Lilja, Íris, Ragnhildur, Ingveldur, Dennis, Kristinn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir og amma, Hrafnhildur Jóhannsdóttir Öldugötu 51, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans, Kópavogi, föstudaginn 16. ágúst. Hún verður jarðsett frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 27. ágúst klukkan 15.00. Valgarður Gunnarsson Pétur Hrafn Árnason Hólmfríður D. Jónsdóttir Gunnar Steinn Valgarðsson Bergþóra Friðriksdóttir Margrét Fríða Pétursdóttir Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Sigurðsson fyrrum bóndi Brúnastöðum, lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 14. ágúst. Útförin fer fram frá Mælifellskirkju laugardaginn 24. ágúst kl. 14.00. Sigurlaug, Böðvar Fjölnir, Atli Norðmann, Iðunn María, Ylfa Rún, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Það stemmir, ég er sjötugur,“ segir Þórarinn Eldjárn, rit­höfundur og skáld, hressilega, spurður út í merkisafmælið sem hann á í dag. Hann kveðst verða í bænum. „Kona mín og synir eru búin að skipuleggja einhvern fagnað sem verður bara í lok mánaðarins og ég veit ekki mikið um. Það verður ekkert um að vera í dag nema hvað ég gef út bók sem heitir Til í að vera til. Það er ljóða­ bók, eða kannski frekar vísnakver, og það verður útgáfuhóf í Eymundsson í Austurstræti klukkan fimm, þangað eru allir velkomnir.“ Um nýlegar yrkingar er að ræða, að sögn skáldsins. „Þetta eru stökur og limrur og svona stuttar hug­ leiðingar á bundnu formi ýmiss konar, sjötíu stykki í tilefni dagsins.“ Þann 24. ágúst, á Menningarnótt, ætlar Þórarinn að hlaupa hálft maraþon í nítjánda skipti. „Það er fastur siður hjá mér að hlaupa svona langt einu sinni á ári,“ segir hann og kveðst hafa þróað sérstaka blekkingaraðferð til að ná því markmiði. „Ég get alltaf hlaupið tíu kíló­ metra vandræðalaust, það veit ég. Þegar síðan kemur að þessu Reykjavíkurmara­ þoni þá bara hleyp ég ósköp einfaldlega tíu kílómetra og segi við sjálfan mig fyrst: „Þetta er ekkert mál, þú veist að þú getur þetta alltaf.“ Þegar ég er búinn með þann sprett þá bara segi ég þetta aftur: „Þú veist þú getur alltaf hlaupið tíu kíló­ metra.“ Svo hleyp ég tíu kílómetra í við­ bót og þá er einungis einn eftir til að ná hálfu maraþoni. Þetta svínvirkar!“ Þórarinn segist hafa verið svo hepp­ inn bæði þegar hann varð fimmtugur og sextugur að Reykjavíkurmaraþonið hafi borið upp á afmælisdaginn. „Núna tókst mér einhvern veginn ekki að miða nógu vel, svo það er eftir tvo daga,“ segir hann og kveðst hlaupa til styrktar minningar­ sjóði sonar síns, Kristjáns Eldjárns gítar­ leikara. Það er sjóður sem verðlaunar frábæra músíkanta á hverju ári. Þórarinn átti heima í Þjóðminjasafn­ inu á uppvaxtarárum sínum og síðar á Bessastöðum, inntur eftir afmælum hans þar svarar hann: „Flest bernsku­ afmæli sem ég man eftir voru meðan ég var í sveit á Tjörn í Svarfaðardal. Þá var splæst kakói á allan krakkaskarann og afmælisbarnið fékk góðar gjafir. Minni viðhöfn var ef ég var staddur í bænum, enda allir skólafélagar og vinir staddir víðsfjarri út um allar trissur. Í grennd við Tjörn á Þórarinn bústað með fjölskyldu sinni, hann nefnist Gull­ bringa. Spurður hvort hann hafi dvalið þar mikið í sumar svarar hann: „Já, við höfum pendlað dálítið á milli. Það er ýmsum erindum og skyldum að sinna hér syðra, bæði í sambandi við útgáfu og fjölskyldu, passa barnabörn og vaka yfir öllu.“ gun@frettabladid.is Þróaði blekkingaraðferð fyrir maraþonhlaupara Þórarinn Eldjárn rithöfundur stendur á sjötugu og gefur út bók í dag með sjötíu ljóðum í tilefni þess og stefnir svo á maraþonhlaup eftir tvo daga. Hann minnist bernskuafmæla á Tjörn í Svarfaðardal þar sem splæst var kakói á krakkaskarann. Þórarinn ætlar í hálft maraþon eftir morgundaginn og halda þeim vana að hlaupa langt einu sinni á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kona mín og synir eru búin að skipuleggja einhvern fagnað sem verður bara í lok mánaðar- ins og ég veit ekki mikið um. Það verður ekkert um að vera í dag nema hvað ég gef út bók sem heitir Til í að vera til. 2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 9 F -E F 0 C 2 3 9 F -E D D 0 2 3 9 F -E C 9 4 2 3 9 F -E B 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.