Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 18
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Stjórnmála- menn verða að sæta ábyrgð, en ekki benda í sífellu á fyrirrennara sína. Þarf aðild okkar að Nató og þátttaka okkar í alþjóðlegu samstarfi um varnir sjálfkrafa að tákna hern- aðarlega viðveru Bandaríkja- manna hér? Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Erum með mikið úrval af allskonar bílaverkfærum á frábæru verði! ViAir 12V loftdælur í miklu úvali. Hleðslutæki 12V 6A 6T Búkkar 605mm Par Jeppatjakkur 2.25t 52cm. Omega Viðgerðarkollur 4.995 9.999 17.995 7.495 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn Mike Pence er öfgamaður sem kennir sig við kristna trú en boðar fábreytni, umburðarleysi, bókstafstrú og ótta­ stjórnun. Í orðum sínum og verkum hefur hann beitt sér gegn réttindum kvenna og hinsegin fólks. Þó að auðvitað þurfi að sýna embætti vara­ forseta Bandaríkjanna kurteisi hljóta gestgjafar Mike Pence að taka á móti honum beinir í baki. Þess er vonandi að vænta að íslenskir ráðamenn minni Pence á það verðmætamat á manneskjum sem samfélag okkar grundvallast á: virðingu og umburðarlyndi, frelsi einstaklingsins og sjálfsákvörðunarrétt fólks yfir eigin líkama og lífi. Vonandi munu íslensk stjórnvöld líka færa í tal við hann þá mannvonsku sem lýsir sér í að skilja börn frá fjölskyldum sínum, og geyma við óboðlegar aðstæður. Og loks hljótum við að vænta þess að útskýrt verði fyrir honum hvernig hamfarahlýnun ógnar lífi á Jörðinni. Nú er árið 2019. Hafi Bandaríkjamenn ein­ hvern tímann verið útvörður lýðræðis og mannréttinda í heiminum, sem svo sannarlega er umdeilanlegt, þá er það að minnsta kosti liðin tíð. Herlið hér á landi með Donald Trump sem æðsta yfirmann er ekki til þess fallið að vekja öryggiskennd. Þarf aðild okkar að Nató og þátttaka okkar í alþjóðlegu samstarfi um varnir sjálf krafa að tákna hernaðarlega viðveru Bandaríkjamanna hér? Varnarsamningurinn frá 1951 kann að vera formlega enn í gildi en Banda­ ríkjamenn hættu einhliða að uppfylla hann árið 2006. Þeir fóru. Viljum við þá aftur? Þó að Íslendingar eigi aðild að Nató – og við séum mörg sem teljum að þjóðin eigi að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi og gangast undir skuld­ bindingar sem því fylgja – þá er ekki þar með sagt að Bandaríkjamenn eigi að standa hér fyrir hernaðaruppbyggingu, til að styrkja stöðu sína í kapphlaupi við að græða sem mest á hamfara­ hlýnun Jarðar. Öfgamaður á ferð Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Sam- fylkingarinnar Hannes og Illugi sammála Bandaríski þjóðgarðsvörðurinn Roy Sullivan fékk nafn sitt ritað í heimsmetabók Guinness fyrir að hafa orðið fyrir eldingu sjö sinnum á ævinni. Fyrst árið 1942 og síðast árið 1977. Líkurnar á að verða fyrir eldingu eru 1 á móti 280 milljónum. Líkurnar á að verða sjö sinnum fyrir eldingu eru 4,15 á móti 100.000.000.000. 000.000.000.000.000.000. 000. Enn ólíklegra er að Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Illugi Jökulsson verði sammála um nokkurn hlut. En það gerðist nú samt í gær þegar Íslandsheim- sókn Mike Pence bar á góma. Vildu þeir báðir meina að með fjarveru sinni væri Katrín Jak- obsdóttir ekki að koma fram sem forsætisráðherra landsins heldur léti hagsmuni sína sem formaður VG ráða ferðinni. Önnur öld Margir, eða nánast allir, furða sig á hugmyndum Bandaríkja- forseta um að kaupa Græn- land. Sveinn Óskar Sigurðsson, oddviti Miðflokksins í Mos- fellsbæ, er á öðru máli og segir það hræsni í Dönum að furða sig á þessu. Rifjar hann upp að Danir hafi selt Bandaríkjunum Vestur-Indíur í byrjun 20. aldar og hafi sjálfir keypt eyjuna St. Croix af Frökkum á 18. öld. Því ættu Danir ekkert að kippa sér upp við svona tilboð. Svo segja sumir að Miðflokksmenn búi á einhverri annarri öld en við hin. kristinnhaukur@frettabladid.is Sláandi munur er á að hefja rekstur í Reykja­vík og borgum á Norðurlöndum að sögn framkvæmdastjóra Joe & the Juice á Íslandi. Í Reykjavík telur hann ferlið „úrelt, ógagnsætt, óþarflega umfangsmikið og tímafrekt“. Umkvartanir framkvæmdastjórans ríma við reynslu annarra fyrirtækja í borginni, sem lýstu slæmri reynslu sinni af rekstri í Reykjavík í sam­ tali við Markað gærdagsins. Öllu ferlinu virðist ábótavant, nánast hvar sem drepið er niður fæti. Umsóknir taka langan tíma og jafnvel týnast í reglu­ verksfrumskógi. Einföldustu hlutir virðast vefjast fyrir borgaryfirvöldum eins og undirritun leyfa og pappíra. Traustið í garð einkaframtaksins er í skötu­ líki. Viðmótið sem fyrirtæki mæta hjá borginni virðist stundum vera að sjálfsagðir hlutir séu bannaðir þangað til þeir eru sérstaklega leyfðir. Auðvitað er það öfugsnúið. Fyrirsjáanleikinn er svo enginn. Eigandi öldur­ húss lýsir því að útsendarar borgarinnar hafi hvatt hann til kaupa á matarvagni. Nokkru síðar var til­ kynnt að leyfi vagnsins umtalaða yrði ekki endur­ nýjað vegna yfirvofandi framkvæmda á svæðinu. Þar fór stór biti í súginn. Framkvæmdirnar miðsvæðis þekkja allir. Vita­ skuld er nauðsynlegt að endurnýja stræti. Uppbygg­ ing miðborgarinnar er af hinu góða. En hún verður að eiga sér stað skipulega og með eðlilegu samráði við íbúa og atvinnulíf. Ekki er boðlegt að senda bréf á föstudegi og hefja framkvæmdir á mánudegi. Bágborið rekstrarumhverfi í Reykjavík er ekki borgaryfirvöldum einum að kenna. Ríkið lætur ekki sitt eftir liggja. Dýrt er að stofna einkahluta­ félög og skattaumhverfi að mörgu leyti óhagstætt. Launaumslag starfsmannsins gefur ekki fulla mynd af kostnaðinum sem honum fylgir. Þar vantar ofan á launatengdu gjöldin, eins og hið séríslenska trygg­ ingagjald. En meirihlutinn í borginni, með borgarstjóra í broddi fylkingar, þarf að sæta ábyrgð hvað rekstrar­ umhverfið í borginni varðar. Hann þarf að átta sig á því að borgin á að létta undir með atvinnulífinu eins og kostur er, en ekki öfugt. Farsæll rekstur er forsenda blómlegs mannlífs. Það voru vonbrigði að heyra borgarfulltrúa Pírata bera því við að meirihlutinn hefði tiltölulega nýverið tekið við störfum. Það er einfaldlega ódýr fyrirsláttur. Hennar flokkur hefur verið við völd síðasta hálfa áratug, og borgarstjóri með hléum nánast frá aldamótum. Stjórnmálamenn verða að sæta ábyrgð, en ekki benda í sífellu á fyrirrennara sína. Fyrrverandi pólitíkusar gegna ekki embættum og sæta ekki ábyrgð. Það gera hins vegar þeir sem hverju sinni eru kjörnir fulltrúar. Ábyrgðin er þeirra. Það er meirihlutans að grípa til áþreifanlegra aðgerða til að bæta rekstrarumhverfið í borginni. Fyrsta skrefið er að hlusta á fólk og fyrirtæki. Ábyrgð í dag 2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -0 7 B C 2 3 A 0 -0 6 8 0 2 3 A 0 -0 5 4 4 2 3 A 0 -0 4 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.