Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 16
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Ok er með skemmtilegri örnefnum íslenskum en nafnið hefur löngum valdið kátínu og heilabrotum, ekki síst hjá erlendum flugmönnum sem reka augun í örstutt nafnið á kortum þegar þeir f ljúga yfir þennan fallega
skjöld. Þetta er 1.198 m há dyngja með gígskál efst líkt
og stóri bróðir Skjaldbreiður og Trölladyngja. Efst var
áður jökull sem sást víða að en í dag prýðir toppinn
aðeins snjóskafl sem ekki nær einu sinni að þekja
gígbarmana. Úr lofti minnir því Ok á smásjármynd
af hvítu blóðkorni eða spældu eggi með sprunginni
rauðu.
Undanfarið hefur Ok verið í kastljósi heimspress-
unnar því um síðustu helgi var reistur þar minnis-
varði um hinn horfna jökul. Á koparskildi skammt frá
toppnum má lesa fleygt ávarp Andra Snæs rithöfund-
ar til komandi kynslóða. Þótt nokkur ár séu síðan Ok
fékk dánarvottorð sem jökull þá eru skilaboðin af Oki
til heimsbyggðarinnar mikilvæg og skýr: Jöklarnir
eru stöðugt að hörfa og sumir þeirra þegar horfnir –
og það af okkar völdum. Nú er það á okkar ábyrgð að
snúa þróuninni við, og það fyrr en síðar, þannig að
komandi kynslóðir fái einnig notið þessara konunga
íslenskrar náttúru, jöfra sem jafnframt eru hitamælar
á hlýnun jarðar.
Óhætt er að mæla með göngu á Ok þótt ekki sé
lengur hægt að skilgreina hana sem jöklagöngu. Auð-
veldast er að hefja för úr Kaldadal sem er gömul þjóð-
leið milli Þingvalla og Húsafells. Þar sem vegurinn
liggur hæst er varða og þaðan er 2 klst. þægilegur
gangur á toppinn. Við toppinn bíður minningar-
skjöldurinn ferðalanga en síðsumars og á haustin má
þar einnig sjá fagurlega blátt gígvatn, þar sem áður
var jökulís. Þetta er eitt yngsta stöðuvatn landsins
sem uppgötvaðist fyrst 2007 og fékk nafnið Blávatn,
og ku vera tæplega 5 m djúpt. Frábært útsýni er af Oki
en í góðu veðri sést til alla leið til Snæfells-
jökuls en útsýni í hina áttina til Langjökuls,
Þórisjökuls, Prestshnjúks, Skjaldbreiðs
og Fanntófells er enn betra. Önnur og
aðeins lengri gönguleið á Ok liggur úr
Húsafelli og er ekki síður skemmtileg
en leiðin af Kaldadal.
Ok verður
Blávatn
Horft til suðurs
af Oki. Til
vinstri sést í
aðra dyngju og
stóra bróður
Oks, sjálfan
Skjaldbreið.
MYNDIR/ÓMB
Hópur fólks á Oki um síðastliðna helgi þegar minningarskjöldurinn var afhjúpaður.
Á toppi Oks
er gígvatnið
Blávatn sem
að þessu sinni
var að mestu
hulið ís.
TILVERAN
2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
F
-F
3
F
C
2
3
9
F
-F
2
C
0
2
3
9
F
-F
1
8
4
2
3
9
F
-F
0
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K