Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 16
Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Ok er með skemmtilegri örnefnum íslenskum en nafnið hefur löngum valdið kátínu og heilabrotum, ekki síst hjá erlendum flugmönnum sem reka augun í örstutt nafnið á kortum þegar þeir f ljúga yfir þennan fallega skjöld. Þetta er 1.198 m há dyngja með gígskál efst líkt og stóri bróðir Skjaldbreiður og Trölladyngja. Efst var áður jökull sem sást víða að en í dag prýðir toppinn aðeins snjóskafl sem ekki nær einu sinni að þekja gígbarmana. Úr lofti minnir því Ok á smásjármynd af hvítu blóðkorni eða spældu eggi með sprunginni rauðu. Undanfarið hefur Ok verið í kastljósi heimspress- unnar því um síðustu helgi var reistur þar minnis- varði um hinn horfna jökul. Á koparskildi skammt frá toppnum má lesa fleygt ávarp Andra Snæs rithöfund- ar til komandi kynslóða. Þótt nokkur ár séu síðan Ok fékk dánarvottorð sem jökull þá eru skilaboðin af Oki til heimsbyggðarinnar mikilvæg og skýr: Jöklarnir eru stöðugt að hörfa og sumir þeirra þegar horfnir – og það af okkar völdum. Nú er það á okkar ábyrgð að snúa þróuninni við, og það fyrr en síðar, þannig að komandi kynslóðir fái einnig notið þessara konunga íslenskrar náttúru, jöfra sem jafnframt eru hitamælar á hlýnun jarðar. Óhætt er að mæla með göngu á Ok þótt ekki sé lengur hægt að skilgreina hana sem jöklagöngu. Auð- veldast er að hefja för úr Kaldadal sem er gömul þjóð- leið milli Þingvalla og Húsafells. Þar sem vegurinn liggur hæst er varða og þaðan er 2 klst. þægilegur gangur á toppinn. Við toppinn bíður minningar- skjöldurinn ferðalanga en síðsumars og á haustin má þar einnig sjá fagurlega blátt gígvatn, þar sem áður var jökulís. Þetta er eitt yngsta stöðuvatn landsins sem uppgötvaðist fyrst 2007 og fékk nafnið Blávatn, og ku vera tæplega 5 m djúpt. Frábært útsýni er af Oki en í góðu veðri sést til alla leið til Snæfells- jökuls en útsýni í hina áttina til Langjökuls, Þórisjökuls, Prestshnjúks, Skjaldbreiðs og Fanntófells er enn betra. Önnur og aðeins lengri gönguleið á Ok liggur úr Húsafelli og er ekki síður skemmtileg en leiðin af Kaldadal. Ok verður Blávatn Horft til suðurs af Oki. Til vinstri sést í aðra dyngju og stóra bróður Oks, sjálfan Skjaldbreið. MYNDIR/ÓMB Hópur fólks á Oki um síðastliðna helgi þegar minningarskjöldurinn var afhjúpaður. Á toppi Oks er gígvatnið Blávatn sem að þessu sinni var að mestu hulið ís. TILVERAN 2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 9 F -F 3 F C 2 3 9 F -F 2 C 0 2 3 9 F -F 1 8 4 2 3 9 F -F 0 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.