Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 46
Sýningin Varðað sem stend­ur nú yfir í Ás mundar sal er samsýning fjögurra lista­manna af yngri kynslóð­inni sem sýna ný verk sem þau hafa unnið innblásin af sögu og umhverfi Skólavörðu­ holtsins. Listamennirnir eru þau Auður Lóa Guðnadóttir, Helga Páley Friðþjófsdóttir, Loji Höskuldsson og Þorvaldur Jónsson. Sýningunni lýkur á sunnudag. Aðalheiður Magnúsdóttir og Sigurbjörn Þorkelsson keyptu Ásmundarsal fyrir nokkrum árum í því skyni að tryggja þar áfram­ haldandi lifandi menningarstarf­ semi – og það hafa þau sannarlega gert. Olga Lilja Ólafsdóttir vinnur með þeim í rekstri hússins. „Við höfum lagt mikið upp úr því að kynna okkur sögu hússins og þá merkilegu listastarfsemi sem hefur farið þar fram í gegnum árin,“ segir Olga Lilja. „Síðasta haust þegar við aug­ lýstum eftir umsóknum fyrir sýn­ ingar ársins 2019 sóttu um fjórir ungir listamenn sem voru með þá hugmynd að búa til sýningu um sögu Skólavörðuholtsins. Þetta smellpassaði við áhuga okkar á að halda sögu þessa svæðis hátt á loft. Þeirra nálgun í listinni er að ein­ hverju leyti naívísk og hér eru þau að túlka söguna á mismunandi hátt.“ Búr með sígarettustubbum Loji Höskuldsson sýnir útsaums­ verk. Eitt þeirra sýnir fiskabúr. „Á þeim tíma sem Ásmundur Sveins­ son rak sýningarsal í húsinu var haldin metnaðarfull skrautfiska­ sýning. Um 70 tegundir erlendra skraut­ og nytjafiska voru fluttar til landsins og sýningin var gríðarlega vel sótt en allt að 7.000 manns komu á hana. Þetta var á þeim tíma þegar fólk reykti inni í sýningarsölum og það átti til að drepa í sígarettum í búrunum,“ segir Olga. Í dagblaði birtist síðan eftirfarandi ábending til sýningargesta: „Blaðið hefir verið beðið um að koma því á framfæri að fiskarnir á sýningunni reyki hvorki nje kæri sig um peninga. Nokkur brögð hafa verið að því, að pening­ um og sígarettu og vindlastubbum hafi verið f leygt í fiskakerin, með þeim afleiðingum, að nokkrir fiskar hafa drepist.“ „Loji gerir þessu skemmtileg skil, í verki hans eru engir fiskar í búrinu en þar f lýtur allt í sígar­ ettustubbum,“ segir Olga Lilja. Í annarri útsaumsmynd endurgerir Loji postulínsstell sem Dieter Roth og Ragnar Kjartansson voru með á sýningu og enn önnur mynd hans sýnir verkið Veðurspámaður eftir Ásmund en verkið var einmitt sýnt fyrst í garðinum fyrir utan Ás­ mundar sal. Frjálslegt Skólavörðuholt „Í myndum sínum túlkar Þor­ valdur Jónsson Skólavörðuholtið með frjálslegum hætti. Í myndum hans leynast alls kyns skemmti­ legar tilvitnanir í sögu holtsins. Þar má til dæmis sjá einu járnbrautar­ lestina sem hefur verið í Reykjavík og f lutti grjót frá Öskjuhlíðinni. Lítil lóa leynist á einni mynd og furðuverur sjást á annarri,“ segir Olga. „Helga Páley Friðþjófsdóttir vinnur abstrakt, rannsakar Skóla­ vörðuholtið og leikur sér með form og sameinar þau inn í sinn eigin myndheim. Auður Lóa Guðnadóttir sýnir meðal annars verk af þremur nöktum dansandi konum. Verkið sýnist vera úr postulíni en er gert úr pappamassa. Módelteikning hefur í tímans rás verið mikil­ vægur þáttur í myndlistarkennslu, en Myndlistar skóli Reykjavíkur var lengi vel til húsa í Ásmundarsal. Auður Lóa er þarna að vísa í kven­ líkamann sem lengi hefur verið áberandi mótív sem heillað hefur myndlistarmenn. Hún hefur líka gert pottaplöntur fyrir þessa sýn­ ingu en þær sáust oft á myndlistar­ sýningum hér áður fyrr innan um verk listamanna.“ Blað á menningarnótt Í tengslum við sýninguna kom út ljóðabókin Varðað eftir Skarphéðin Bergþóruson, en hann vann með listamönnunum að sýningunni. Sérstakt blað kemur síðan út á Menningarnótt, Upp í hæstu hæðir. „Við höfum safnað saman ótrúlega miklu af skemmtilegu efni um sögu Skólavörðuholtsins og hússins og gefum út átta síðna blað á menn­ ingarnótt um þessa sögu. Gestir og gangandi geta komið hingað og fengið sér eintak,“ segir Olga Lilja. Hljómsveitin Bjartar sveif lur skemmtir gestum á Menningarnótt en einn af meðlimum hljómsveitar­ innar, Loji Höskuldsson, er einn af listamönnum sýningarinnar. Ásmundarsalur verður opinn frá 9­20 á Menningarnótt en dagskráin fer fram á milli klukkan 17­19. Á MENNINGARNÓTT GETA GESTIR SKOÐAÐ AFAR SKEMMTILEGA OG FRUMLEGA SÝNINGU, KÍKT Í LJÓÐABÓK OG FLETT METN- AÐARFULLU BLAÐI. Sýning um sögu Skólavörðuholtsins Fjórir listamenn sýna ný verk í Ás mund­ ar sal. Sérstakt blað, átta síðna, kemur út á Menningarnótt með efni um sögu Skólavörðuholtsins og hússins. Hvað? Hvenær? Hvar? Fimmtudagur hvar@frettabladid.is 22. ÁGÚST 2019 Tónleikar Hvað? Denver Dýfa Hvenær? 18.00-20.00 Hvar? Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi Tristan Elizabeth Gribbin, hug­ leiðslukennari og fyrrverandi leikkona, býður gestum í dýfu til Denver ásamt hugleiðsluferðalagi fyrir nútímalífsstíl. Um veitingar sér Áslaug Snorradóttir ljósmynd­ Mikael Máni og Marína Ósk sjá um sveifluna í Salnum síðdegis. Hér eru þeir að túlka söguna á mismunandi hátt, segir Olga um listamennina. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Sérlega skemmtileg útsaumsverk eftir Loja Höskuldsson á sýningunni. Þorvaldur Jónsson túlkar Skólavörðuholtið með frjálslegum hætti. ari og veislustjóri er Hlín Helga Guðlaugsdóttir. Leiðsögn (á ensku) er í höndum Paolo Gianfrancesco, arkitekts. Aðgangseyrir er 3.900. Hámarksfjöldi gesta er 25. Hvað? Írskir töfrar Hvenær? 20.00 Hvar? Stúkuhúsið við Byggðasafnið að Görðum á Akranesi Tónlistarkonan Valgerður Jóns­ dóttir syngur uppáhalds írsku þjóð­ og popplögin sín með aðstoð frábærra hljóðfæraleikara. Miða­ pantanir í síma: 8417688 eða á val­ gerdur76@gmail.com. Hvað? Sumarjazz Hvenær? 17.00 Hvar? Salurinn. Kópavogi Dúettinn Marína Ósk Þórólfs­ dóttir söngkona og gítarleikarinn Mikael Máni Ásmundsson koma fram. Aðgangur er ókeypis . Hvað? Þýðingar / Translations Hvenær? 20.00 Hvar? Tjarnarbarinn Ós Pressan býður til bókmennta­ viðburðar. Þátttakendur eru Mant­ as Balakauskas og Anton Helgi Jónsson, Ewa Marcinek og Helen Cova og Meg Matich og Fríða Ísberg. Samræðum stjórna Kristín Svava Tómasdóttir og Maxine Savage. Kynnir er Anna Valdís Kro. Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2019 Hvenær? 12.00 Hvar? Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti Mattias Wager, organisti Dóm­ kirkjunnar í Stokkhólmi, f lytur verk eftir Christinu Blomkvist, Wolfgang Amadeus Mozart og Louis Vierne. Miðaverð 2.500 kr. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Þau Aura svo á mig Borga Rukka Skipta 2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 0 -1 1 9 C 2 3 A 0 -1 0 6 0 2 3 A 0 -0 F 2 4 2 3 A 0 -0 D E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.