Fréttablaðið - 22.08.2019, Qupperneq 46
Sýningin Varðað sem stendur nú yfir í Ás mundar sal er samsýning fjögurra listamanna af yngri kynslóðinni sem sýna ný verk sem þau hafa unnið innblásin
af sögu og umhverfi Skólavörðu
holtsins. Listamennirnir eru þau
Auður Lóa Guðnadóttir, Helga Páley
Friðþjófsdóttir, Loji Höskuldsson
og Þorvaldur Jónsson. Sýningunni
lýkur á sunnudag.
Aðalheiður Magnúsdóttir og
Sigurbjörn Þorkelsson keyptu
Ásmundarsal fyrir nokkrum árum
í því skyni að tryggja þar áfram
haldandi lifandi menningarstarf
semi – og það hafa þau sannarlega
gert. Olga Lilja Ólafsdóttir vinnur
með þeim í rekstri hússins. „Við
höfum lagt mikið upp úr því að
kynna okkur sögu hússins og þá
merkilegu listastarfsemi sem hefur
farið þar fram í gegnum árin,“ segir
Olga Lilja.
„Síðasta haust þegar við aug
lýstum eftir umsóknum fyrir sýn
ingar ársins 2019 sóttu um fjórir
ungir listamenn sem voru með þá
hugmynd að búa til sýningu um
sögu Skólavörðuholtsins. Þetta
smellpassaði við áhuga okkar á að
halda sögu þessa svæðis hátt á loft.
Þeirra nálgun í listinni er að ein
hverju leyti naívísk og hér eru þau
að túlka söguna á mismunandi
hátt.“
Búr með sígarettustubbum
Loji Höskuldsson sýnir útsaums
verk. Eitt þeirra sýnir fiskabúr. „Á
þeim tíma sem Ásmundur Sveins
son rak sýningarsal í húsinu var
haldin metnaðarfull skrautfiska
sýning. Um 70 tegundir erlendra
skraut og nytjafiska voru fluttar til
landsins og sýningin var gríðarlega
vel sótt en allt að 7.000 manns komu
á hana. Þetta var á þeim tíma þegar
fólk reykti inni í sýningarsölum og
það átti til að drepa í sígarettum í
búrunum,“ segir Olga. Í dagblaði
birtist síðan eftirfarandi ábending
til sýningargesta: „Blaðið hefir verið
beðið um að koma því á framfæri að
fiskarnir á sýningunni reyki hvorki
nje kæri sig um peninga. Nokkur
brögð hafa verið að því, að pening
um og sígarettu og vindlastubbum
hafi verið f leygt í fiskakerin, með
þeim afleiðingum, að nokkrir fiskar
hafa drepist.“
„Loji gerir þessu skemmtileg
skil, í verki hans eru engir fiskar
í búrinu en þar f lýtur allt í sígar
ettustubbum,“ segir Olga Lilja. Í
annarri útsaumsmynd endurgerir
Loji postulínsstell sem Dieter Roth
og Ragnar Kjartansson voru með á
sýningu og enn önnur mynd hans
sýnir verkið Veðurspámaður eftir
Ásmund en verkið var einmitt
sýnt fyrst í garðinum fyrir utan Ás
mundar sal.
Frjálslegt Skólavörðuholt
„Í myndum sínum túlkar Þor
valdur Jónsson Skólavörðuholtið
með frjálslegum hætti. Í myndum
hans leynast alls kyns skemmti
legar tilvitnanir í sögu holtsins. Þar
má til dæmis sjá einu járnbrautar
lestina sem hefur verið í Reykjavík
og f lutti grjót frá Öskjuhlíðinni.
Lítil lóa leynist á einni mynd og
furðuverur sjást á annarri,“ segir
Olga. „Helga Páley Friðþjófsdóttir
vinnur abstrakt, rannsakar Skóla
vörðuholtið og leikur sér með form
og sameinar þau inn í sinn eigin
myndheim. Auður Lóa Guðnadóttir
sýnir meðal annars verk af þremur
nöktum dansandi konum. Verkið
sýnist vera úr postulíni en er gert
úr pappamassa. Módelteikning
hefur í tímans rás verið mikil
vægur þáttur í myndlistarkennslu,
en Myndlistar skóli Reykjavíkur
var lengi vel til húsa í Ásmundarsal.
Auður Lóa er þarna að vísa í kven
líkamann sem lengi hefur verið
áberandi mótív sem heillað hefur
myndlistarmenn. Hún hefur líka
gert pottaplöntur fyrir þessa sýn
ingu en þær sáust oft á myndlistar
sýningum hér áður fyrr innan um
verk listamanna.“
Blað á menningarnótt
Í tengslum við sýninguna kom út
ljóðabókin Varðað eftir Skarphéðin
Bergþóruson, en hann vann með
listamönnunum að sýningunni.
Sérstakt blað kemur síðan út á
Menningarnótt, Upp í hæstu hæðir.
„Við höfum safnað saman ótrúlega
miklu af skemmtilegu efni um sögu
Skólavörðuholtsins og hússins og
gefum út átta síðna blað á menn
ingarnótt um þessa sögu. Gestir
og gangandi geta komið hingað og
fengið sér eintak,“ segir Olga Lilja.
Hljómsveitin Bjartar sveif lur
skemmtir gestum á Menningarnótt
en einn af meðlimum hljómsveitar
innar, Loji Höskuldsson, er einn af
listamönnum sýningarinnar.
Ásmundarsalur verður opinn frá
920 á Menningarnótt en dagskráin
fer fram á milli klukkan 1719.
Á MENNINGARNÓTT
GETA GESTIR SKOÐAÐ
AFAR SKEMMTILEGA OG
FRUMLEGA SÝNINGU, KÍKT Í
LJÓÐABÓK OG FLETT METN-
AÐARFULLU BLAÐI.
Sýning um sögu
Skólavörðuholtsins
Fjórir listamenn sýna ný verk í Ás mund
ar sal. Sérstakt blað, átta síðna, kemur
út á Menningarnótt með efni um sögu
Skólavörðuholtsins og hússins.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
22. ÁGÚST 2019
Tónleikar
Hvað? Denver Dýfa
Hvenær? 18.00-20.00
Hvar? Hönnunarsafn Íslands,
Garðatorgi
Tristan Elizabeth Gribbin, hug
leiðslukennari og fyrrverandi
leikkona, býður gestum í dýfu til
Denver ásamt hugleiðsluferðalagi
fyrir nútímalífsstíl. Um veitingar
sér Áslaug Snorradóttir ljósmynd
Mikael Máni og Marína Ósk sjá um
sveifluna í Salnum síðdegis.
Hér eru þeir að túlka söguna á mismunandi hátt, segir Olga um listamennina. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sérlega skemmtileg útsaumsverk eftir Loja Höskuldsson á sýningunni.
Þorvaldur Jónsson túlkar Skólavörðuholtið með frjálslegum hætti.
ari og veislustjóri er Hlín Helga
Guðlaugsdóttir. Leiðsögn (á ensku)
er í höndum Paolo Gianfrancesco,
arkitekts. Aðgangseyrir er 3.900.
Hámarksfjöldi gesta er 25.
Hvað? Írskir töfrar
Hvenær? 20.00
Hvar? Stúkuhúsið við Byggðasafnið
að Görðum á Akranesi
Tónlistarkonan Valgerður Jóns
dóttir syngur uppáhalds írsku
þjóð og popplögin sín með aðstoð
frábærra hljóðfæraleikara. Miða
pantanir í síma: 8417688 eða á val
gerdur76@gmail.com.
Hvað? Sumarjazz
Hvenær? 17.00
Hvar? Salurinn. Kópavogi
Dúettinn Marína Ósk Þórólfs
dóttir söngkona og gítarleikarinn
Mikael Máni Ásmundsson koma
fram. Aðgangur er ókeypis .
Hvað? Þýðingar / Translations
Hvenær? 20.00
Hvar? Tjarnarbarinn
Ós Pressan býður til bókmennta
viðburðar. Þátttakendur eru Mant
as Balakauskas og Anton Helgi
Jónsson, Ewa Marcinek og Helen
Cova og Meg Matich og Fríða
Ísberg. Samræðum stjórna Kristín
Svava Tómasdóttir og Maxine
Savage. Kynnir er Anna Valdís Kro.
Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar í
Hallgrímskirkju 2019
Hvenær? 12.00
Hvar? Hallgrímskirkja,
Skólavörðuholti
Mattias Wager, organisti Dóm
kirkjunnar í Stokkhólmi, f lytur
verk eftir Christinu Blomkvist,
Wolfgang Amadeus Mozart og
Louis Vierne. Miðaverð 2.500 kr.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Þau Aura svo á mig
Borga
Rukka
Skipta
2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
2
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
0
-1
1
9
C
2
3
A
0
-1
0
6
0
2
3
A
0
-0
F
2
4
2
3
A
0
-0
D
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K