Fréttablaðið - 22.08.2019, Side 47

Fréttablaðið - 22.08.2019, Side 47
ÞAÐ ER ENGINN PENINGUR Í ÞESSU EN ÉG HELD AÐ FLESTUM FINNIST ÞETTA SKEMMTILEGT VERK- EFNI OG SPENNANDI ÁSKORUN. Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá árinu 1972. Fyrirmynd hans er Jarlsberg, frægasti ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með örlítinn möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna. Frábær á morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða bara einn og sér. www.odalsostar.is ÓÐALSOSTUR TIGNARLEGUR BÍÓ Rjóminn frá Norðurlöndum Edda Karítas Baldursdóttir eddakaritas@frettabladid.is Á þriðjudaginn var tilkynnt um hvaða fimm myndir hljóta tilnefningu til Kvikmynda- verðlauna Norðurlandaráðs og að þessu sinni verður myndin Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason fulltrúi Íslands. Myndin verður frumsýnd hér heima í september en hefur þegar verið ausin lofi og Ingvar E. Sigurðsson fengið verðlaun fyrir leik sinn í myndinni. Kona fer í stríð, eftir Benedikt Erlingsson, var framlag Íslands í fyrra og hreppti verð- launin eftirsóttu. Í tilefni norrænu kvikmynda- verðlaunanna er tilvalið að líta af Hollywood-myndunum eina kvöldstund eða svo og tékka á ein- hverjum norrænum. Nokkrar verðlaunamyndir Norðurlandaráðs: Jagten (Danmörk) Mynd eftir Thomas Vinterberg sem hlaut Kvikmyndaverðlaun Norður- landaráðs árið 2013 og var einnig valin sem framlag Dana til til Óskarsverðlaunanna. Mads Mikkelsen er hér í átakanlegu hlutverki manns sem rang- lega er sakaður um kynferðisbrot gegn barni. Antichrist (Danmörk) Varla er hægt að fjalla um nor- ræna kvikmyndagerð án þess að minnast á Lars von Trier. Leikstjór- inn umdeildi vann til kvikmynda- verðlauna Norðurlandaráðs árið 2009 með myndinni Andkristur. Myndin fjallar um líf foreldra eftir dauða sonar þeirra. Myndin er mjög óþægileg á að horfa og er yfirgengilega ógeðfelld en um leið mikil sjónræn veisla. Louder Than Bombs (Noregur) Myndin, sem er eftir Joachim Trier, fjallar um hvernig faðir og synir hans takast á við sorgina eftir ótímabæran dauða móðurinnar. Myndin fékk Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2016 en einnig var hún tilnefnd til Gull- pálmans á Kvikmyndahátíðinni í Cannes. Isabelle Huppert og Jesse Eisenberg fara með hlutverk í myndinni. Hugleikur Dags-son, Sigurjón Kjartansson og Sjón standa að baki Svörtum sunnudögum í Bíó Paradís. Hulli hefur frá upp- hafi fengið íslenska listamenn til að gera plaköt fyrir sýningar hópsins á sérvöldum og sígildum kvikmyndum og vart þarf að deila um að veggspjöldin eiga sinn þátt í því hversu lífseigir Svörtu sunnu- dagarnir eru orðnir. Á Menningarnótt verður hægt að skoða veggspjöldin í gallerísal Bíó Paradísar, auk þess sem ný sölu- síða verður opnuð fyrir veggspjöld Svartra sunnudaga á vefsíðunni postprent.is. Hrönn Sveinsdót t ir, f ram- kvæmdastjóri Bíó Paradísar, segir að til þess að byrja með hafi ekki gengið vel að sýna klassískar bíó- myndir í kvikmyndahúsinu. „Það var kannski ákveðið að sýna Predator þannig að ég keypti þá eintak og svo mættu bara sjö. Þannig að ég tók fyrir þetta vegna þess að þetta rugl væri of dýrt.“ Hrönn segir þessu ekki hafa verið tekið með þögninni og meðal annars hafi ramakvein verið rekin upp á Facebook. „Sigurjón Kjartansson var á meðal þeirra sem vældu yfir því að það væri ekkert gamalt og gott í boði og við fórum eitthvað að tuða hvort í öðru um þetta,“ segir Hrönn og bætir við að í framhald- Svartur valkvíði Hulla Hugleikur Dagsson er gáttaður á því að árin sem Svartir sunnudagar hafa verið í gangi séu að verða átta en þessi staðreynd blasir við honum þegar hann rótast í tæplega 200 veggspjöldum í Bíó Paradís. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Pulp Fiction eftir Auði Ómars- dóttur. Carrie eftir Jón Sæmund. inu hafi verið fundað með áhuga- sömum þar sem Sjón, Sigurjón, Hulli og Páll Óskar komu að málum. Niðurstaðan var að sígildur hryllingur og ýmis furðuverk sem kennd eru við „cult“ ættu erindi í bíó. Svartir sunnudagar urðu niður- staðan og Hulli var fenginn til þess að fá einhvern listamann til þess að gera plakat fyrir hverja mynd sem ákveðið yrði að sýna. „Költ“ í kringum „költ“ „Það kemur stanslaust á óvart hversu mikið þetta er orðið og þetta bara hættir ekki og maður er að átta sig á að við erum að detta í áttunda árið með Svarta sunnudaga,“ segir Hulli í samtali við Fréttablaðið. „Mér líður alltaf eins og þetta séu þrjú til fjögur ár en þegar maður kemur í plakatasalinn í Bíó Paradís skellur á manni hversu langt þetta er orðið,“ segir Hulli og bætir við að honum finnist skemmtilegt að Svörtu sunnudagarnir séu orðnir einhvers konar „költ“ í kringum þetta sem var hugsað sem költ-kvöld. „Sigurjón og Sjón fengu mig í þessa pælingu sína og ég fékk þá hugmynd að fá listafólk til þess að gera plakötin,“ segir Hulli um aðkomu hans að sunnudögunum svörtu. „Þessi plaköt hafa svo orðið hin mörgu andlit þessa fyrirbæris.“ Svakalegur valkvíði Hulli segist ekki hafa átt von á jafn jákvæðum viðbrögðum frá mynd- listarfólki, grafískum hönnuðum og listafólki úr ýmsum áttum og raun og hátt í 200 veggspjöld bera vitni. „Það er enginn peningur í þessu en ég held að flestum finn- ist þetta skemmtilegt verkefni og spennandi áskorun,“ segir Hulli og bætir við að hann sé ekki síst ánægður með sýninguna á Menn- ingarnótt og sölusíðuna sem verður opnuð í tengslum við hana þar sem nú „munu listamennirnir loksins fá einhverja örlitla prósentu“. En hvaða veggspjald ætlar hann sjálfur að kaupa? „Þetta er svakalegur valkvíði enda eru þetta næstum 200 plaköt. Ég er að fara að f lytja og hef verið að pæla í Flash Gordon eftir Elínu Elísabetu Einarsdóttur í innflutn- ingsgjöf til sjálfs mín. Það er annað hvort það eða Mad Max 2 eftir Hall- dór Baldursson. Aðallega vegna þess að Mad Max 2 er uppáhalds- myndin mín en mig langar líka mikið í Pee Wee’s Big Adventure sem Ísak Óli Sævarsson gerði. Valið stendur á milli þessara þriggja.“ toti@frettabladid.is They Live eftir Hugleik Dagsson. Áttunda starfsár Svartra sunnudaga hefst í Bíó Para- dís í haust. Þessu úthaldi verður fagnað á Menning- arnótt með sýningu og sölu á hátt í 200 bíóplakötum þar sem fjöldi íslenskra listamanna hefur tekið sígildar bíó- myndir sínum eigin tökum. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27F I M M T U D A G U R 2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -2 0 6 C 2 3 A 0 -1 F 3 0 2 3 A 0 -1 D F 4 2 3 A 0 -1 C B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.