Fréttablaðið - 22.08.2019, Page 39
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
Stokkhólmi – Nú er hún tekin að skýrast myndin af bandarískum stjórnmálum í aðdraganda for-
setakosninganna 2020. Þetta skiptir
máli. Trump forseti er óvinsælasti
forseti landsins frá því Gallup hóf
slíkar mælingar 1945. Meðal þret-
tán Bandaríkjaforseta frá Harry
Truman til Donalds Trump er
Trump hinn eini sem hefur aldrei
notið stuðnings meiri hluta kjós-
enda eftir bráðum þriggja ára setu
í Hvíta húsinu. Hann er hinn fyrsti
sinnar tegundar. Bandarískir sagn-
fræðingar og stjórnmálafræðingar
telja hann verstan allra 44ra forseta
Bandaríkjanna frá öndverðu. Nýjar
rannsóknir benda til að kjör hans
2016 megi skýra ekki bara með von-
brigðum margra kjósenda vegna
staðnaðra lífskjara og ótímabærra
dauðsfalla í dreifbýli heldur einnig
með gamalgrónum fordómum gegn
blökkumönnum og nýbyggjum, for-
dómum sem forsetinn hefur ýft upp
og haldið áfram að kynda undir.
Styrkur Bandaríkjanna
Margt bendir þó til þess, m.a. margar
skoðanakannanir, að Trump forseti
muni að ári þurfa að lúta í lægra
haldi fyrir frambjóðanda demókrata
hver sem hann verður eða hún. Það
sem hefur breytzt er að æ fleiri sjá í
gegnum forsetann og upphlaup hans
og snúa því baki við honum auk þess
sem nú virðist niðursveifla í banda-
rísku efnahagslífi vera í aðsigi líkt og
víða annars staðar. Niðursveifla með
auknu atvinnuleysi í aðdraganda
kosninga bitnar jafnan á sitjandi
forseta. Við bætist að forsetinn hefur
ekki bara sætt óvenjuharkalegri
fordæmingu andstæðinga sinna
og fjölmiðla heldur eru nú einnig í
gangi um 30 opinberar rannsóknir á
meintum lögbrotum hans og manna
hans af hálfu Bandaríkjaþings og
saksóknara. Sumir nánir samstarfs-
menn forsetans hafa þegar hlotið
fangelsisdóma fyrir efnahagsbrot
og aðra glæpi og sitja inni.
Þarna birtist styrkur Bandaríkj-
anna sem réttarríkis. Háir og lágir
eru yfirleitt jafnir fyrir bandarískum
lögum í þeim skilningi að dómarar,
forsetar, ríkisstjórar, saksóknarar og
þingmenn eru iðulega dregnir fyrir
dóm ef þeir brjóta lög. Fv. ríkisstjóri
Illinois Rod Blagojevich afplánar nú
t.d. 14 ára fangelsisdóm. Með þessu
er þó ekki sagt að bandarískt rétt-
arfar fari aldrei í manngreinarálit,
öðru nær, því blökkumenn eru enn
beittir margs kyns rangindum þótt
þeir hafi nú í meira en hálfa öld
staðið jafnfætis hvítum fyrir lögum.
Og aðeins örfáir brotlegir banka-
menn voru ákærðir og dæmdir eftir
2008 enda höfðu bankarnir fyllt fjár-
hirzlur beggja stjórnmálaflokka.
Þegar öllu er á botninn hvolft
hvílir bandarískt stjórnarfar á skil-
virkri þrískiptingu valds, öflugum
fjölmiðlum og jafnræði hárra og
lágra fyrir lögum. Þetta dugði til að
koma Richard Nixon út úr Hvíta hús-
inu 1974. Fari svo að Trump fari með
sigur af hólmi 2020 mun reyna aftur
á innri styrk bandarísks stjórnarfars
líkt og 1974.
Heim til þín, Ísland
Víkur nú sögunni heim til Íslands
þar sem hvorki skilvirkri þrískipt-
ingu valds né jafnræði fyrir lögum
er til að dreifa þótt fjölmiðlum hafi
vaxið ásmegin. Hér skilur milli
feigs og ófeigs. Framkvæmdar-
valdið hefur bæði Alþingi og skipan
dómara í hendi sinni sem fyrr og
þverskallast við að staðfesta nýju
Milli feigs og ófeigs
stjórnarskrána sem er einmitt ætlað
að tryggja m.a. betra jafnvægi og
skarpari skil milli valdþáttanna
þriggja.
Mikið virðist einnig vanta upp á
jafnræði fyrir lögum. Hæstaréttar-
dómarar hafa sakað hver annan um
lögbrot án þess að Alþingi eða önnur
yfirvöld hafi látið málið til sín taka.
Alþingi samþykkti 2012 að láta rann-
saka einkavæðingu bankanna en lét
þó ekki af rannsókninni verða enda
höfðu bankarnir fyllt fjárhirzlur
þriggja stjórnmálaflokka fyrir hrun.
Hinn fjórði, svo við höldum okkur
bara við fjórf lokkinn, sagði ekki
múkk.
Banki eða þvottavél?
Seðlabankinn hefur tekið að sér
að rannsaka sjálfur meint misferli
innan bankans. Eftir að meint brot
voru fyrnd birti bankinn loksins
skýrslu um Kaupþingslánið án þess
að nefna að þriðjungur lánsfjárins
var lagður samdægurs inn á reikning
á Tortólu 6. október 2008. Skýrslan
bætti engu við það sem vitað var
löngu fyrr, öðru nær. Fyrir skömmu
birti bankinn svo aðra skýrslu um
innflutning gjaldeyris til landsins
eftir hrun. Skýrslan staðfestir að
bankinn leit undan frekar en að
spyrja um uppruna fjárins svo sem
honum bar. Bankinn neitar enn að
birta nöfn þeirra sem fluttu féð heim.
Fjölmiðlar hafa upplýst að meira en
þriðjungur fjárins kom frá Lúxem-
borg og Sviss. Bankaráðsmenn þurfa
að upplýsa hvort og þá hvernig þeir
ræktu lagaskyldu sína til að fylgjast
með að bankinn færi að lögum.
Ekkert lært, engu gleymt
Nær allir f lokkar á Alþingi, bank-
arnir og stórfyrirtækin virðast stað-
ráðin í að ríghalda í sukkið sem setti
landið á hliðina 2008. Þau hafa að
því er virðist ekkert lært og engu
gleymt. Að því hlýtur að koma að
fólkið í landinu taki sér tak og setji
þeim stólinn fyrir dyrnar.
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
MÖGNUÐ
TILBOÐ
NÝ
VERSLU
N
Í MÖRK
INNI 3
REYKJA
VÍK
OG UND
IRHLÍÐ
2
AKURE
YRI
OPNUNAR
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
22. ágúst 2019 • B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
MEÐAN BIRGÐIRENDAST
50%
Afsláttur
LENOV
O
Yoga 5
30 me
ð i5
og 25
6GB S
SD dis
k
119.9
90
VERÐ
ÁÐUR
139.9
90
MEÐAN
BIRGÐ
IR
ENDAST
20.000
Afsláttu
r
VEISLA
ALLA V
IKUNA
Fjöldi o
pnunar
tilboða
og ljúff
engur L
urkur f
rá
Emmes
sís í bo
ði:)
LENOV
O
Yoga C
N23 m
eð
snerti
skjá
24.99
5
VERÐ
ÁÐUR
49.99
0
MEÐAN B
IRGÐIR
ENDAST
50.000
Afsláttur
AFSLÁTTURAF YFIR 1000 VÖRUM
ALLT AÐ
50%
LEGION
Y530
Leikja
fartölv
a, i5, 1
6GB
minni
og lei
kjaskj
ákort
149.9
90
VERÐ
ÁÐUR
199.9
90
AFSLÁT
TUR AF
FARTÖLV
UM
ALLT AÐ
60
ÞÚSUND
SNERTISKJÁR
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9
2
2
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
0
-0
7
B
C
2
3
A
0
-0
6
8
0
2
3
A
0
-0
5
4
4
2
3
A
0
-0
4
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K