Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Qupperneq 1
°
°
Vestmannaeyjum 4. júní 2014 :: 41. árg. :: 23. tbl. :: Verð kr. 400 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
M
yn
d:
Ó
m
ar
G
ar
ða
rs
so
n
RóbeRt og
esteR best
ólafuR H. stíguR
til HliðaR
blaut en fjölbReytt
sjómannadagsHelgi >> 18>> 11 >> 14
Stórsigur Sjálfstæðisflokksins á
laugardaginn, þar sem hann er
með fimm bæjarfulltrúa á móti
tveimur E-listans breytir eðlilega
hlutföllum í ráðum og nefndum á
vegum bæjarins. Áður var
hlutfallið í fimm manna nefndum
þrír frá meirihluta og tveir frá
minnihluta. Nú eiga Sjálfstæðis-
menn rétt á fjórum fulltrúum en í
bæjarráði, sem skipað er þremur
fulltrúum, heldur E-listinn sínum.
Alls greiddu 2369 atkvæði í
Vestmannaeyjum á laugardaginn og
af þeim greiddu 1632 Sjálfstæðis-
flokki atkvæði sitt sem fer úr fjórum í
fimm bæjarfulltrúa en 599 komu í
hlut Eyjalistans sem er með tvo
bæjarfulltrúa í stað þriggja áður.
Þegar kosið er í fimm manna
nefndir og atkvæði falla þannig að
annar listinn (D) fær fimm atkvæði
og hinn listinn (E) tvö atkvæði þá fær
D listi fjóra menn og E listi einn.
Útreikningurinn er einfaldlega að
deila atkvæðunum í sætisröðina, þ.e.
fyrsti maður D lista fær fimm
atkvæði, annar maður 2,5 atkvæði,
þriðji maður 1,67 atkvæði, fjórði
maður 1,25 og fimmti maður eitt
atkvæði. Fyrsti maður á maður E
lista fær tvö atkvæði, annar maður
eitt atkvæði og þriðji maður 0,67
atkvæði. Þannig er fjórði maður D
lista með fleiri atkvæði á bak við sig,
1,25, en annar maður á E lista sem er
með eitt atkvæði og nær því kjöri.
Listi með fimm bæjarfulltrúa af sjö á
því fjóra fulltrúa af fimm í fimm
manna ráðum.
Í þriggja manna nefndum er það
þannig að fyrsti maður D lista fær
fimm atkvæði, og annar maðurinn
2,5. Þriðji maður fær tvö atkvæði E
lista en þriðji maður D lista 1,25.
Þess vegna verður bæjarráð skipað
tveimur sjálfstæðismönnum og
einum fulltrúa E lista.
Hátíðahöldin um sjómannadagshelgina gengu vel fyrir sig þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ekki verið Eyjamönnum hliðhollir. Á sjálfan Sjómannadag-
inn voru fjórir fyrrum sjómenn heiðraðir. Þetta eru þeir, frá vinstri: Sigurður Guðjón Jónsson, sem Sjómannafélagið Jötunn heiðraði, Willum Pétur
Andersen, sem Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi heiðraði, Stein Ingólf Hendriksen, sem Vélstjórafélagið heiðraði, Kjartan Bergsteinsson, sem
Sjómannadagsráð heiðraði og Snorri Óskarsson, sem sá um heiðranirnar.
Úrslit kosninganna :: Sjálfstæðismenn styrkja stöðu sína í nefndum:
D-listi fær fjóra
af fimm í ráðum
:: Óbreytt í bæjarráði þar sem meirihluti er með tvo og minnihluti einn
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is