Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Page 2

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Page 2
° ° 2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014 Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549. Ritstjóri: Gísli Valtýsson - gisli@eyjafrettir.is. blaðamenn: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is, Sæþór Þorbjarnarson. - sathor@eyjafrettir.is og Júlíus G. Ingason, - julius@eyjafrettir.is. Ábyrgðarmaður: Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn. aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47, Vestmannaeyjum. símar: 481 1300 og 481 3310. netfang: frettir@eyjafrettir.is. Veffang: www.eyjafrettir.is eyjafRÉttiR koma út alla miðvikudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppn­um,­Vöruval,­Herjólfi,­Flughafnar­versluninni,­ Krónunni, Kjarval og Skýlinu. eyjafRÉttiR eru prentaðar í 2000 eintökum. eyjafRÉttiR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Eyjafréttir Nýtt pósthús opnar á föstudag: Í fyrsta sinn í rúm 60 ár sem pósthúsið flytur :: Ekki stærra húsnæði en nýtist mun betur, segir Sigríður Diljá Magnús- dóttir, stöðvarstjóri Íslandspósts :: Opnunarhátíð milli 13 og 15 föstudag Íslandspóstur opnar afgreiðslu sína í Vestmannaeyjum á nýjum stað á föstudaginn en starfsemi Íslandspósts flytur af Vestmannabraut 22 á Strandveg 52 þar sem Eyjatölvur voru áður til húsa og Brimnes þar áður. Þetta er nokkuð söguleg breyting því Íslandspóstur og forverar þess, hafa verið í húsinu við Vestmannabraut frá því um miðja síðustu öld þegar húsið var byggt við hlið þáverandi símstöðvar. Nýja húsnæðið er allt hið glæsi- legasta og hannað í kringum nútíma póstþjónustu en gamla húsnæðið er óhentugt fyrir ýmsa starfsemi sem tengist Íslandspósti í dag. „Við opnum formlega klukkan 9:00 á föstudaginn en milli 13 og 15 verðum við með sérstaka opnunarhátíð þar sem við grillum pylsur og verðum með leiktæki fyrir börnin auk þess sem Íslandsmeistararnir í handbolta mæta á svæðið,“ sagði Sigríður Diljá Magnúsdóttir, stöðvastjóri Íslandspósts í Vestmannaeyjum. Hún segir að vinna við flutningana stæði nú yfir og reiknar með að nokkrar vikur fari í að aðlagast nýju húsnæði. „Nýja húsið er í raun og veru ekkert stærra í fermetrum talið en nýtist þó mun betur enda sérhannað fyrir Íslandspóst. Gamla húsnæðið nýttist mjög illa og er í raun og veru óhentugt fyrir starf semi póstsins. Auk þess er betra aðgengi fyrir viðskiptavini að nýja húsnæðinu og staðsetningin er betri. Vörumóttaka verður mun betri og öll bakvinnsla verður í meira næði sem er kostur fyrir viðskiptavini okkar,“ sagði Diljá en gamla pósthúsið er farið að láta verulega á sjá enda lítið sem ekkert viðhald verið á húsinu undanfarin ár. Samhliða flutningnum verður opnunartími pósthússins lengdur en frá og með næsta mánudag verður opið til 17:30 í stað 16:30 áður. „Með þessu viljum við auka þjónustu við Eyjamenn og gesti þeirra. Öfugt við flesta aðra landsmenn, fáum við póstinn til okkar um miðjan dag á meðan aðrir fá hann að morgni til. Þess vegna er oft mikið að gera rétt fyrir lokun en nú hefur fólk rýmri tíma til að ná í póst og pakka. Þá verður ekki boðið upp á læst pósthólf eins og verið hefur, heldur verða pósthólfin baka til og pósturinn afgreiddur yfir borðið,“ sagði Diljá að lokum og vonaðist til að sjá sem flesta í nýju pósthúsi á föstudaginn. Þegar ljósmyndari Eyjafrétta kíkti við í nýja pósthúsinu í dag, var verið að ljúka við að koma upp tólum og tækjum en augljóst er að öll aðstaða fyrir starfsmenn verður til fyrirmyndar. Þjóðhátíðin: Forsölu til félags- manna lýkur á morgun :: Þjóðhátíðar- lagið frumflutt í kvöld :: John Grant spilar í Dalnum Nú eru 60 dagar í þjóðhátíð. Forsala stendur til 30. júlí næstkomandi og verðið er kr. 16.900,- Þjóðhátíðar- nefnd hefur frá 10. mars boðið skráðum félagsmönnum ÍBV íþróttafélags sérstakt forsöluverð á kr. 13.900,- og stendur það tilboð til morgundagsins, fimmtudaginn 5. júní. Þjóðhátíðarlagið verður frumflutt í þættinum Ísland í dag, í kvöld eftir fréttatíma Stöðvar 2 en lagið er sem kunnugt er eftir Jón Jónsson. Þá var tilkynnt í dag að tónlistar- maðurinn John Grant muni koma fram á þjóðhátíðinni í ár og bætist hann þar með í glæsilegan hóp tónlistarmanna sem koma fram á hátíðinni. Myndlistarfélag Vestmannaeyja með sýningu í KFUM og K: 16 myndlistamenn með aðstöðu í húsinu Myndlistarfélag Vestmannaeyja hélt sölusýningu í KFUM og K húsinu við Vestmannabraut um helgina. Alls sýndu sextán myndlistamenn verk sín og voru þau af öllum gerðum og stærðum og mótívin jafn fjölbreytt. Sýningin var með frekar óhefðbundnu sniði, þ.e.a.s. myndum var komið fyrir hér og þar í salnum sem gerði sýninguna skemmtilegri enda er KFUM og K húsið í raun og veru vinnuaðstaða myndlistafólksins. Myndlistarfélagið leigir nú hús KFUM og K í Vestmannaeyjum undir aðstöðu sína og hefur félagið stækkað verulega við flutninginn úr fyrrum húsnæði félagsins við Kirkjuveg. „Þá vorum við fimm sem leigðum saman en núna erum við sextán,“ sagði Sigrún Þorsteins- dóttir, ein þeirra sem er með vinnuaðstöðu í húsinu. „Við leigjum út þetta ár og vonandi getum við haldið áfram hér því þessi aðstaða hefur hleypt nýju lífi og krafti í starf Myndlistarfélagsins. Hér líður öllum vel, húsið er yndislegt enda finnst öllum svo góður andi hérna. Margir eiga líka góðar minningar héðan. En starfsemin fer þannig fram að allir sextán félagar eru með sér lykil og ef einhver er hér inni, þá er húsið opið og þá eru allir velkomnir í kaffi og kíkja á starfsemina. Svo ég tali nú ekki um ef fólk hefur áhuga á að ganga í félagið, svona skápamálarar sem vilja koma fram í dagsljósið. Það er mjög jákvætt hvað það eru margir efnilegir málarar í Vestmannaeyjum og við viljum helst fá sem flesta inn í starfið hjá okkur.“ Eru þetta eingöngu konur sem eru í félaginu? „Nei en við erum fimmtán konur. Ríkharður Stefánsson er hins vegar eini karlmaðurinn í hópnum eins og er og er styrk stoð í starfinu,“ sagði Sigrún að lokum og vildi koma á framfæri þakklæti til KFUM og K fyrir að hleypa félaginu inn í húsið. Þau voru meðal þeirra sem sýndu í KFUM og K húsinu. Frá vinstri: Þuríður Ósk Georgsdóttir, Jóhanna Kristín Júlíusdóttir, Ríkharður Stefánsson, Sigrún Þorsteinsdóttir og Bjartey Helgadóttir. Lögregla: Stálu verk- færum að verðmæti 300 þúsund Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í liðinni viku enda bæði sjómannadagshelgi sem og kosningar til sveitastjórnar. Helgin fór hins vegar að mestu ágætlega fram og lítið um útköll á öldurhús bæjarins. Eitthvað var þó um að lögreglan þurfti að aðstoða borgarana sökum ölvunarásands þeirra. Að morgni 27. maí sl. var lögreglu tilkynnt um að brotist hafi verið inn í húsnæði Póstsins við Strandveg, en þar fer fram endurnýjun á húsnæðinu. Stolið var verkfærum fyrir um 300 þúsund krónur, m.a. hitablásurum sem notaðir eru við dúklagningar sem og ýmsum handverkfærum. Talið er að farið hafi verið inn í húsnæðið aðfaranótt sama dags og hvetur lögreglan þá sem urðu varir við grunsamlegar mannaferðir við húsið þessa nótt að hafa samband við lögreglu. Allar upplýsingar er vel þegnar. Í vikunni var tilkynnt um þjófnað á reiðhjóli sem var við Íþróttamið- stöðina. Þjófnaðurinn átti sér stað rétt fyrir miðnætti þann 8. maí sl. Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um hver þarna var að verki eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu. Lögreglan vill minna ökumenn á að nota stefnuljósin en þau eru til hægðarauka fyrir aðra í umferðinni og sjálfsögð kurteisi að nota þau. JúlíuS G. InGaSon julius@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.