Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Page 4
°
°
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014
Landakirkja
Fimmtudagur 5. júní:
Kl. 10. Mömmumorgun í Safnaðar-
heimilinu.
Kl. 11-12. Viðtalstímar presta alla
virka daga. Vaktsími 488 1508.
Kl. 20. Opið hús hjá Æskulýðs-
félagi Landakirkju-KFUM&K í
samnefndu húsi við Vestmanna-
brautina. Gísli Stefáns.
Laugardagur 7. júní:
Kl. 14. Útför. Sigurður Jónsson
á Húsavík.
Hvítasunnudagur 8. júní:
Kl. 11. Guðsþjónusta með miklum
söng um kirkjuna á þessari stórhátíð
hennar, fjölskylduvænt messuform.
Kór Landakirkju. Organisti Kitty
Kovács. Sr. Kristján Björnsson.
Miðvikudagur 11. júní:
Kl. 17.30. Kyrrðarbæn í Landa-
kirkju. Byrjendur mæti 17.15.
Kl. 19.30. Fundur hjá OA í
fundarherbergi í Safnaðarheimilinu
uppi.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur kl. 20:00
Bænastund.
Laugardagur kl. 20:00
Lofgjörðarstund.
Hvítasunnudagur kl. 13:00
Hátíðarsamkoma ræðumaður Guðni
Hjálmarsson, mikill söngur, kaffi og
með því á eftir
Annar í hvítasunnu kl. 13:00 Stuð
á Stakkó.
Allir hjartanlega velkomnir.
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur
Kl 11 Biblíulestur
Kl 12 Guðsþjónusta.
Kirkjur bæjarins:
Eyjamaður vikunnar
ÍBV handboltinn hélt lokahóf sitt í
síðustu viku og þar voru Íslands-
meistararnir áberandi. En á bakvið
titilinn er ótal fjöldi manna. Einn
þeirra er Brynjar Karl Óskarsson ,
aðstoðarmaður þjálfarateymisins.
Brynjar Karl er Eyjamaður vikunnar.
Nafn: Brynjar Karl Óskarsson.
Fæðingardagur: 4 janúar 1991.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Foreldrar eru Óskar
Freyr og Lóa, systkini Davíð og
Ester. Kærastan mín heitir Sandra
og hundurinn okkar er hún Embla.
Draumabíllinn: Góður bryggjubíll.
Uppáhaldsmatur: Beikonvafðar
kjúklingabringur.
Versti matur: Súrmatur.
Uppáhalds vefsíða: fotbolti.net og
fimmeinn.is
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Flest allt.
Aðaláhugamál: Handbolti.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Usain Bolt.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Grétarsendi.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Sterkasti maður.
Íslands Georg Ögmunds. og ÍBV.
Ertu hjátrúarfull/ur: Nei.
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Já, er lyftingafélagi sterkasta manns
Íslands.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Íþróttir
og gamanþættir.
Hver er draumurinn: Ná að spila
heilt tímabil í handbolta án þess að
meiðast.
Áttirðu von á Íslandsmeistaratitli
í upphafi tímabilsins: Nei, held að
það hafi ekki verið margir sem hafi
átt von á því en áttum þennan titil
svo sannarlega skilið.
Hvaða breytingar vilt þú sjá fyrir
næsta vetur: Halda áfram að bæta
sig og ekki væri verra að vinna aðra
dollu.
Eitthvað að lokum: Þakka öllum
strákunum og öllu því góða fólki
sem kemur að handboltanum fyrir
frábæran vetur.
Draumurinn að spila
heilt tímabil án þess
að meiðast
Eyjamaður vikunnar er
Brynjar Karl Óskarsson
Takk fyrir áskorunina, mamma mín.
Ég ákvað að senda inn rétt sem er
auðveldur og mjög vinsæll á mínu
heimili.
Heill kjúklingur í steikarpotti
1 kjúklingur
Kjúklingakrydd
6 dl. vatn
3 kjúklingateningar (eða kjúklinga-
og grænmetisteningar til helminga)
1 hvítlaukur
½ sítróna
1 msk. timían.
Aðferð
Hitið ofninn í 180°. Kryddið
kjúklinginn með góðu kryddi og
setjið hann í steikarpottinn. Setjið
vatnið í pottinn og teningana út í.
Pressið hvítlaukinn og setjið í vatnið.
Kreistið safann úr sítrónunni í vatnið
og bætið timían út í. Svo er þessu
bara skellt í ofninn. Til þess að hann
verði safaríkur og góður er gott að
hella reglulega soðinu yfir kjúkling-
inn og bæta vatni við eftir þörfum.
Kjúklingurinn er í ofninum í c.a.
klukkustund fyrir hvert kíló sem hann
vegur.
Þegar búið er að taka kjúklinginn úr
ofninum er soðinu hellt í gegnum
sigti og notað sem sósu. Gott að bera
fram með t.d. hrísgrjónum, salati og
sætri kartöflumús.
Sæt kartöflumús
1 stór sæt kartafla er afhýdd, skorin í
bita og sett í pott með vatni og smá
salti. Kartaflan soðin þar til hún er
orðin mjúk. Þá er kartaflan stöppuð
ásamt smjöri, púðursykri og pipar
eftir smekk.
Þessar uppskriftir fékk ég hjá Sunnu
Ösp mágkonu eftir matarboð, en hún
er mikill „dassari“ og vill meina að
þessar mælieiningar séu ekki heilagar.
Það má því krydda, breyta og bæta
eftir smekk. Verði ykkur að góðu!
Ég ætla að skora á Sigrúnu Ellu
vinkonu, matgæðing og bakara
mikinn sem er algjör snillingur í
eldhúsinu!
Matgæðingur vikunnar
Kjúklingur í steikarpotti
Matgæðingur vikunnar er
Agnes Gústafsdóttir
Eyjafréttir vilja eindregið hvetja
brúðhjón til að senda inn mynd
til birtingar sem og foreldra
nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Börn og brúðhjón
Nú er komið sumar og þá ætlum
við að æfa frjálsar íþróttir bæði
úti (á Malarvellinum v/Löngulá)
og inni (í Eimskipshöllinni).
Æ ngarnar skiptast upp í hlaup,
styrktar- og teygjuæ ngar ásamt að
fara í tæknigreinar í frjálsum sem
eru auðvitað, langstökk, hástökk,
kúluvarp, kringlukast, spjótkast
og grindahlaup ásamt löngum og
stuttum hlaupum. Með öðrum
orðum það verður tekið á því, og
ha virkilega gaman á sama tíma.
Æ ngar fara fram frá 10. júní
og verða fram til 24. júlí, æ ng-
ar he ast svo a ur fyrir eldri
iðkendur þriðjudaginn 5. ágúst.
Æ ngar eru mánudaga til
mmtudaga frá kl 10:30 - 12.00
( börn fædd 2001 og yngri eða 7.
bekkur og yngri).
Æ ngar eru mánudaga til
mmtudaga frá 16:30 - 18:00
(unglingar fæddir frá 2000 og
eldri eða 8. bekkur og eldri).
Þjálfarar
Karen Inga Ólafsdóttir, íþrótta-
fræðingur og þjálfari til margra ára
og Árni Óli Ólafsson, frjálsíþrótta-
durgur.
Æ ngagjald fyrir allar 6 vikurnar
eru 12.000 kr ef börn/unglingar
eru allan tímann, ef styttra tímabil
er valið þá endilega komið og verið
þann tíma sem þið eruð á Eyjunni.
Vikan í frjálsum er 2500 kr.
Við bjóðum alla að koma sem
hafa áhuga á frjálsum og góðri
hrey ngu og æfa frjálsar enda eru
frjálsar ölbreytilegar og fyrir alla.
Goggi Galvaski:
Stefnan er tekin fyrir börn og
unglinga 14 ára og yngri í sumar
að fara á stórmót Gogga sem
haldið er ár hvert í Mosfellsbænum
helgina 20.-22. júní. Allir iðkendur
sem eru að æfa eru velkomnir að
taka þátt í þessu skemmtilega móti,
Foreldrar eru einnig hvattir til að
koma með.
Hlökkum til að sjá ykkur hress og
kát en mæting fyrstu dagana er við
gamla skúrinn á Malarvellinum.
Allar nánari upplýsingar og
skráningu má nálgast á karen@
frjalsar.net eða í síma 659-7600
ÚTIÆFINGAR HEFJAST Í FRJÁLSUM ÍÞRÓTTUM
FRJÁLSAR
SJÁLBOÐA-
LIÐAR VIÐ
UPPBYGG-
INGU Í
DALNUM
Þjóðhátíðarnefnd
boðar þá sem hafa
unnið við undirbúning
hátíðarinnar
undanfarin ár sem og
þá sem hafa áhuga á
að koma að þessari
vinnu til fundar. Hefst
fundurinn kl. 20:00
fimmtudaginn 5. júní
og verður í Týsheim-
ilinu. Boðið verður
upp á léttar veitingar.
Hlökkum til að sjá
ykkur,
Þjóðhátíðarnefnd
fréttir í 40 ár
Fréttir 14. júní 1979