Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 6
° ° 6 Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014 Sveitastjórnarkosningarnar 2014: Sögulegur sigur :: Sjálfstæðismenn fengu 73,7% greiddra atkvæða og fimm bæjarfulltrúa :: Slök kjörsókn :: Jórunn hugsi yfir valdajafnvægi í bæjarpólitíkinni Sjálfstæðisflokkurinn hlaut dæmalaust fylgi í sveitastjórnar- kosningunum í Vestmanna- eyjum. 2369 greiddu atkvæði en 1632 af þeim greiddu Sjálfstæðisflokki sitt atkvæði en 599 Eyjalistanum. Þetta þýðir að Sjálfstæðisflokkurinn fékk um 69% atkvæða, Eyjalistinn rúm 25% en 138 atkvæði voru auð eða ógild, eða tæplega 6%. Þetta þýðir að Sjálfstæðis- flokkurinn bætti við sig einum bæjarfulltrúa, fór úr fjórum í fimm. Ef aðeins er litið til þeirra atkvæða sem gefin voru öðru hvoru framboðinu, hækkar prósentutala Sjálfstæðisflokksins upp í 73,7% en Eyjalistinn er þá með 26,3%. Það dylst engum að sigur Sjálfstæðis- manna í kosningunum er afgerandi og hefur verið nefnt að hugsanlega sé um Íslandsmet að ræða. Hvort það sé rétt eða ekki skal ósagt látið, en í það minnsta er fylgi Sjálf- stæðismanna í Vestmannaeyjum það mesta á landsvísu. Flokkurinn bætir verulega við fylgi sitt frá því í kosningunum 2010 þegar Sjálf- stæðisflokkurinn fékk 55,6% atkvæða en þá fékk Vestmanna- eyjalistinn 36% atkvæða. Sjálfstæðismenn hefðu þurft 166 atkvæði í viðbót til að ná inn sjötta manni en Eyjalistinn hefði þurft 381 atkvæði til að ná þeim þriðja. Þetta sýnir enn og aftur þá yfirburði sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur í bæjarpólitíkinni. Stuðningur við verk meiri- hlutans „Við erum búin að finna það síðustu átta ár, og einnig í aðdraganda þessara kosninga, að við höfum meðbyr hér í Vestmannaeyjum. Í ljósi þess átti ég von á því að niðurstaða kosninganna yrði góð en ég viðurkenni það að árangurinn nú fór fram úr vonum bjartsýnustu manna,“ sagði Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðisflokks í samtali við Eyjafréttir daginn eftir kosning- arnar. Hann bætti því við að þennan árangur megi skýra fyrst og fremst af tvennu; að kjósendur viti að hverju þeir ganga með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og að listi Sjálfstæðismanna hafi verið sterkur. „Niðurstaða kosninganna er í raun stuðningur við þau verk sem meirihlutinn hefur innt af hendi. Við förum því inn í næstu fjögur ár eins og við höfum gert síðustu átta ár, að reka bæjarfélagið á skyn- saman máta, fara vel með skatt- peninga bæjarbúa, halda þjónustu- stigi eins háu og við höfum gert og að gæta hagsmuna samfélagsins hér,“ sagði Elliði og sagðist ætla að halda áfram sem bæjarstjóri. Hugsi yfir valdajafnvæginu „Mér fannst við vera með mál- efnalega kosningabaráttu. Við fórum snemma af stað og kynntum okkar hugmyndir. En það er nokkuð ljóst að Vestmannaeyingar eru ánægðir með óbreytt ástand og að okkar hugmyndir féllu ekki í góðan jarðveg,“ sagði Jórunn Einarsdóttir, oddviti Eyjalistans. Aðspurð sagðist hún ekki vera á því að beittari kosningabarátta hefði skilað betri árangri. „Ég hef sagt það áður að ég sakna þess ekki neitt að standa í slíkri orrahríð. Kosningabaráttan var málefnaleg og það var það sem við lögðum upp með. Því er hins vegar ekki að neita að ég er mjög hugsi yfir þeirri stöðu sem komin er upp í bæjarstjórn Vestmannaeyja, hvernig valda-jafnvægið er orðið. En ég vil auðvitað þakka því fólki sem vann með okkur og kaus okkur kærlega fyrir stuðninginn.“ Léleg kjörsókn Annað sem óneitanlega vekur athygli eftir laugardaginn er slök kjörsókn. Kjörsókn í sveitar- stjórnarkosningum hefur verið á niðurleið en kjörsókn nú var aðeins 74,7% og hefur ekki verið lakari í seinni tíð. Þannig var kjörsókn 92,4% árið 1994 en 87% 2006 og svo 81,4% árið 2010. Hvað veldur er erfitt að segja en almennt var áhugaleysi meðal almennings á sveitastjórnarkosningum yfir landið allt og allsstaðar lakari kjörsókn en 2010, fyrir utan á Akranesi. Birna Þórsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks: Fullviss að amma Erla brosir sínu breiðasta :: Hlakkar til að takast á við bæjarstjórnarstarfið Birna Þórsdóttir og Trausti Hjaltason eru nýir bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Trausti var í fjórða sæti á lista Sjálfstæðis- manna en Birna í því fimmta. Trausti hefur áður verið á lista Sjálfstæðismanna fyrir kosningar, en ekki svona ofarlega og hefur hann ekki áður setið fund bæjar- stjórnar. Birna hefur hins vegar ekki áður verið á lista Sjálfstæðis- manna en hún sagði í samtali við Eyjafréttir að hún hafi tekið sér tíma í að taka ákvörðun um hvort hún ætti að taka sæti á listanum og hvort pólitík væri eitthvað sem hana langaði að leggja fyrir sig. „Ég talaði við gott fólk sem hvatti mig til þess að taka slaginn. Ég ákvað að leggja höfuðið í bleyti eina nótt í viðbót og segi að gamni: „Ef að mig dreymir Erlu ömmu þá tek ég þessu tilboði.“ Viti menn amma gerði gott betur en það að mig dreymdi hana heldur vakna ég við að það er opið fyrir krana inn á baði og úr lekur sjóðandi heitt vatn. Á þessari stundu var ég ekki að hugsa um það sem ég hafi sagt deginum áður heldur skrúfa fyrir og blóta Davíð að hann hafi ekki skrúfað fyrir vatnið. Daginn eftir þegar ég fer svo að hugsa mig um hvað ég eigi að gera mundi ég eftir þessari skemmtilegu nótt og það var mómentið sem að fékk mig til þess að henda mér út í djúpu laugina,“ sagði Birna. Hún sagði að fyrst hafi ekki legið fyrir í hvaða sæti hún yrði. „Í byrjun var bara talað um að taka sæti á lista en þegar ég var búin að taka loka ákvörðun hvað ég ætlaði að gera var talað um 5.-8. sæti. Þar sem ég er rosaleg keppnismann- eskja var 5. sætið eitthvað sem að ég var spenntust fyrir og langaði bara að taka þetta alla leið fyrst að ég ætlaði út í pólitíkina á annað borð.“ Áttir þú von á að taka sæti í bæjarstjórn þegar þú tókst 5. sætið? „Í byrjun átti ég ekki von á því, en eftir að skoðanakannanir og afstöðu fólks í bænum hafði ég fulla trú á því. Við erum með sterkan hóp sem vinnur vel saman. Þetta verkefni var eitthvað sem að mig langaði rosalega að vinna og komast alla leið.“ Birna segist vera mjög spennt fyrir komandi kjörtímabili enda sé þetta afar frábrugðið öllu því sem hún hefur verið að fást við. „En ég hef fulla trú á sjálfri mér og þeim sem standa með mér í þessu. Held að þetta eigi eftir að vera góður skóli sem ég hlakka mikið til að takast á við. Við erum með sterka og reynslumikla einstaklinga sem hafa stjórnað bæjarfélaginu vel. Bæjarbúar eru þakklátir og ánægðir með stöðu mála í dag eins og kannanir hafa sýnt og vilja halda áfram á þeirri braut.“ Hvaða málum ætlar þú að beita þér fyrir á næstu fjórum árum? „Ég ætla byrja á því að koma mér inní málin hérna og læra hvernig að málunum er staðið. Vestmannaeyjar eru gott íþrótta- og fjölskyldusam- félag en við getum gert ennþá betur.“ Eins og Birna kom inn á, þá hafði amma hennar, Erla Vídó eitthvað með það að gera að Birna tók sæti á lista Sjálfstæðisflokksins en Erla, sem lést á síðasta ári, var blá í gegn og dyggur stuðningsmaður bæði Sjálfstæðisflokksins og íþrótta- félagsins Þórs. „Ég er alveg viss um að hún hafi verið með okkur í þessari kosningarbaráttu. Ég sé hana alveg fyrir mér sitjandi við eldhúsborðið með bláa Gold Coast í símanum að smala atkvæðum. Hún var yndisleg í kringum kosningar og mikill hugur í henni. Ég held að pólitíkin hafi haldið í henni lífinu um nokkurt skeið. Ég er allavega fullviss um að hún brosir sínu breiðasta núna,“ sagði Birna að lokum. Það eru auðvitað gríðarleg vonbrigði að hafa ekki haldið okkar þremur bæjarfulltrúum,“ sagði Stefán Óskar Jónasson, sem tekur nú sæti sem aðal- maður í bæjarstjórn á ný eftir að hafa verið varamaður frá 2006. Hann segist ekki hafa neina skýringu á döpru gengi Eyja- listans í kosningunum en segist sárna að meirihluta síðasta kjörtímabils séu eignuð öll þau góðu verk sem bæjarstjórn vann að. „Það er held ég það sem mér sárnar mest í þessu. Bæjarstjórn vann saman að mörgum mjög góðum málum og góð sátt um flest þeirra. En það er eins og Sjálfstæðisflokki sé eignaður heiðurinn af því öllu. Kjósendur virðast ekki hafa áttað sig á því að vinna í bæjarstjórn byggist á hópvinnu, ekki einstaklingsframtaki eða verkum fjögurra bæjarfulltrúa í meirihluta. Við eigum okkar þátt í góðu árferði en hugsanlega vorum við ekki nógu dugleg að benda á það í kosninga- baráttunni,“ sagði Stefán. Hefði kannski þurft meiri hörku í kosningabaráttuna? „Það er oft gott að vera vitur eftir á en það kann að vera að við hefðum þurft að vera meira á ferðinni og koma því á framfæri hvernig unnið var í bæjarstjórn. Svo var andrúms- loftið í bænum þannig að fólk óttað- ist breytingar. Við urðum Íslands- meistarar í handbolta, unnum dómsmál vegna sölu Bergs-Hugins og Eldheimar voru opnaðir. Andrúmsloftið var svo jákvætt og þegar þannig er, þá vill fólk ekki breyta neinu. Þetta vann á móti okkur að mínu mati.“ En ykkar Jórunnar býður ærið verkefni, að veita sterkum meiri- hluta aðhald? „Já það er rétt. Við munum ekki bregðast þeim 600 kjósendum sem kusu okkur. Ég mun persónulega vinna eins vel og ég get að þeim málefnum sem við settum fram í aðdraganda kosninganna og mun ekki taka þátt í einhverjum ævintýralegum aðgerðum sem munu skaða fjárhag bæjarins. Ég vona að okkur takist vel til með að veita meirihlutanum aðhald og vonandi tekst okkur vel upp í að vinna með meirihlutanum að góðum málum bæjarfélaginu til heilla,“ sagði Stefán að lokum. Stefán Óskar Jónasson, bæjar- fulltrúi Eyjalistans: Munum ekki bregðast okkar 600 kjósendum Sjálfstæðismenn fagna fyrstu tölum. Frá vinstri: Páll Marvin Jónsson, Trausti Hjaltason, Margrét Rós Ingólfsdóttir, Birna Þórsdóttir, Kristinn Valgeirsson, Elliði Vignisson, Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Páley Borgþórsdóttir er fyrir framan. JúlíuS G. InGaSon julius@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.