Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Page 8
°
°
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014
Það er gott að kíkja við á Gott:
Fyrir ömmur og afa og
líka táninga
:: Hollur matur getur líka smakkast vel
„Við ætlum að bjóða upp á
hollan mat en þó ekki bara
hráfæði eða grænmetisrétti.
Þetta verður fyrst og fremst
góður matur, gerður úr úrvals
hráefni og unninn alfarið hér á
staðnum. Matur sem öllum
finnst góður hvort sem þeir eru
á heilsulínunni eða ekki,“ sagði
Berglind Sigmarsdóttir, í viðtali í
Eyjafréttum lok apríl. Tilefnið var
veitingastaðurinn Gott við
Bárustíg sem hóf starfsemi í
síðustu viku og Berglind á og
rekur ásamt eiginmanninum,
Sigurði Gíslasyni meistarakokki.
Berglind kann líka ýmislegt fyrir
sér í eldhúsinu eins og kemur fram í
metsölubókum hennar, Heilsuréttir
fjölskyldunnar og Nýir heilsuréttir
fjölskyldunnar. Saman hafa þau
slegið í púkk og útkoman er
veitingastaðurinn Gott sem hefur
slegið í gegn. Nú er sá sem þetta
skrifar enginn gúrú þegar kemur að
heilsuréttum, alinn upp við alhliða
góðan íslenskan mat en er alltaf
tilbúinn að feta sig inn á nýjar
lendur. Með allri varúð þó. Á
sunnudaginn var haldið út í
óvissuna og stefnan tekin á Gott hjá
þeim Berglindi og Sigga. Gott er í
sama húsi og Askja Hostel, í húsinu
númer 11 við Bárustíg sem er að
hefja starfsemi þessa dagana. Er
ánægjulegt að húsið, sem staðið
hefur að mestu staðið autt undan-
farin ár skuli hafa fengið hlutverk.
Málað í hressilegum gulum lit sem
lífgar upp á götumyndina.
Fjölbreyttur matseðill
Aftur að Gott þar sem nýtni og
endurvinnsla er höfð í hávegum en
þó svo smekklegt. Ólíkt öðrum
veitingastöðum í Vestmannaeyjum
er Gott talandi dæmi um hvað má
gera með gamla dótið til að skapa
notalegt umhverfi en um leið
smekklegt þar sem engu ofaukið.
Og plássið er vel nýtt bæði frammi í
sal og í eldhúsi þar sem reynsla
Sigurðar hefur komið að góðum
notum við skipulagningu.
Gott er enn einn sprotinn í
fjölbreytta flóru veitingastaða í
Vestmannaeyjum. Á matseðlinum
er að finna „flat breads“ eða Chapati
með allskonar fyllingum eins og
grilluðum kjúklingi og fleiru,
ferskan fisk, holla hamborgara og
hollar og góðar kökur. Einnig er
hægt að taka mat með sér heim.
Allir ánægðir
Aftur að leiðangrinum mikla sem
samanstóð af undirrituðum, frú
Þorsteinu og sonarsyninum Grétari
Þorgils sem nýlega fyllti fjórtánda
árið. Það var setið við flest borð
þegar inn var komið en fljótt var
vísað til sætis og fékk maður strax á
tilfinninguna að við værum meira
en velkomin. Matseðlarnir komnir á
borðið eftir nokkrar mínútur.
Amman og táningurinn pöntuðu
hamborgara sem þau sögðu hreina
dásemd. Ekki var hún síðri
kjúklinga núðlusúpa sem afinn
pantaði. Á eftir var nartað í
súkkulaðiköku sem allt að því
kallaði fram tár.
Ég kann ekki að gefa veitinga-
stöðum stjörnur en ég veit hvenær
ég er ánægður og það var ég og við
öll eftir heimsókn á Gott. Staðurinn
sjálfur, þjónusta, viðmót starfsfólks
til fyrirmyndar og frábær matur á
sanngjörnu verði. Á að vera
bráðhollur sem hlýtur að vera plús.
Berglind og Sigurður ásamt aðstoðarfólki. Frá vinstri: Erla Jónatansdóttir, Áa Helgadóttir, Berglind, Clara,
dóttir þeirra Sigurðar og Berglindar, Sigurður og Rakel Hlynsdóttir.
Landakirkja:
Séra
Halldór
leysir af
Vegna prestastefnu Íslands á Ísafirði
mun sr. Halldór Gunnarsson (Holti)
leysa sóknarprestinn af frá mánu-
dagskvöldi 9. júní til fimmtudagsins
12. júní. Vaktsíminn er sá sami, 488
1508, en farsími sr. Halldórs er 897
8961, og viðtalstímarnir óbreyttir
milli kl. 11-12 alla virka daga.
Dagar lita og tóna vakna til lífsins á ný:
Andrea með Blúsmennina
sína mætir
:: Fulltrúar Eyjamanna eru Matthías og Kitty :: Góðir gestir frá Flúðum
Í áratugi voru Dagar lita og
tóna, á vegum Listvinafélag
Vestmannaeyja, fastur liður á
hvítasunnu. Þar var boðið upp á
djass og blús þar sem margir af
okkar bestu tónlistarmönnum
létu ljós sitt skína. Hátíðin hefur
frá upphafi átt samastað í
Akóges og oftast voru haldnar
myndlistarsýningar um leið og
þaðan er nafnið fengið. Eftir
nokkurra ára hlé er nú blásið til
leiks um hvítasunnuna og
verður blúsinn í hávegum
hafður með Andreu Gylfadóttur
í broddi fylkingar með Blús-
mennina sína. Matthías Harðar-
son og Kitty Kovács verða
fulltrúar heimamanna og frá
Flúðum koma góðir gestir,
Stone Stones, marghertir
blúsarar úr sveitinni.
Andrea Gylfadóttir, ein okkar
ástsælustu söngkvenna þarf ekki að
kynna fyrir lesendum. Á frábæran
feril í poppi og rokki og reglulega
daðrar hún við blúsinn með sínum
mönnum sem eru Eðvarð Lárusson
á gítar, Haraldur Þorsteinsson á
bassa, Jóhann Hjörleifsson á
trommur og Einar Rúnarsson á
Hammondinn.
Andrea hlakkar til að koma til
Eyja og lofar skemmtilegum
tónleikum. „Þetta verður alvöru
blús og við verðum með gamla
standarda og lög af disknum okkar
sem kom út fyrir tveimur árum og
gamla disknum. Svo fer þetta eftir
stuði og stemmningu,“ sagði
Andrea.
„Þetta getur ekki klikkað hjá
okkur, þetta er svo flott band að allt
á að ganga upp. Þarf eitthvað mikið
að gerast til að svo verði ekki.
Blúsmenn komu fyrst fram 1990 og
við spilum ekki oft en þegar við
komum saman gengur þetta eins og
smurð vél. Við þekkjumst það vel
að það lesa allir í alla en maður veit
aldrei hvað gerist. Þetta er þannig
hljómsveit. Ég hlakka til að koma
til Eyja, ætla að njóta þess og
syngja fyrir fólkið,“ sagði Andrea.
Hljómsveitin Stone Stones var
stofnuð fyrir blúshátíðina Norden
Blues Festival á Hellu og Hvolsvelli
2010. Síðan hefur hljómsveitin
leikið víðs vegar um landið, á
Blúshátíð í Reykjavík, Blúshátíð á
Akranesi og árið 2012 á Odda
bluesfestival í Odda í Noregi.
Hljómsveitin hefur fengist við að
spila blússtandarta frá upphafi en
hefur verið að færa sig meira yfir í
frumsamið efni og er væntanleg
fimm laga plata frá sveitinni þetta
ár.
Tónleikarnir verða laugardag- og
sunnudagskvöld í Akógeshúsinu.
Andrea Gylfa kemur fram á Dögum lita og tóna í Akóges um helgina.
Framkvæmda-
sjóður ferða-
mannastaða:
Fimm
milljónir
í Heima-
klett
:: Milljón í að
lagfæra göngu-
leið á Eldfell
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
undirritaði á föstudag reglugerð um
úthlutun styrkja úr Framkvæmda-
sjóði ferðamannastaða til
uppbyggingar- og verndaraðgerða á
ferðamannastöðum nú í sumar. Alls
er úthlutað styrkjum að upphæð 380
milljónum, í 88 verkefni en tvö
verkefni í Eyjum hlutu styrk.
Annars vegar eru veittar 5 milljónir
í uppgræðslu og merkingu göngu-
leiða á Heimaklett en sá sem þetta
skrifar stökk upp á Klettinn í gær
og var einmitt hugsi yfir þessum
tveimur atriðum. Hins vegar er veitt
milljón í lagfæringu gönguleiða á
Eldfell.
Töframaðurinn
Einar Mikael
Áheyrnar-
prufur á
morgun í
Höllinni
Áheyrnarprufur fyrir nýjan
sjónvarpsþátt á Stöð 2, fara fram í
Höllinni á morgun, fimmtudag milli
16 og 17. Um er að ræða þáttinn
Töfrahetjur og sér töframaðurinn
Einar Mikeal um þáttagerðina.
Fram kemur í tilkynningu frá
þáttagerðarmönnunum að leitað sé
að hressum krökkum á aldrinum 6
til 15 ára og ekki nauðsynlegt að
þeir kunni töfrabrögð. „Ef þú kannt
að töfra, leika, dansa og finnst
gaman að koma fram og gleðja aðra
þá viljum við hitta þig. Við munum
velja einn strák og eina stelpu frá
hverjum stað sem við heimsækjum
og þau fá að taka þátt í Töfrahetj-
unum.
Hægt er að skrá sig með því að
senda email á tofrahetjur@gmail.
com - það sem þarf að koma fram
er nafn, aldur, sími – einnig er hægt
að skrá sig á staðnum þar sem
prufurnar fyrir töfrahetjurnar verða
haldnar.
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is