Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 9
° ° 9Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014 Sæheimar, Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja 50 ára: Safnið á stað í hjörtum bæjarbúa :: Kristján Egilsson fyrrum safnstjóri og Margrét Lilja Magnúsdóttir safnstjóri segja þörf á nýju húsnæði :: Tólf þúsund gestir á ári en voru áður þrjú til fimm þúsund Sæheimar, sem áður hét Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja, fagnar nú 50 ára afmæli sínu en hinn eiginlegi afmælisdagur er 5. júní. Safnið er einstakt hér á landi enda eina fiskasafnið sem er starfrækt á Íslandi. Þrátt fyrir það hefur safnið tekið litlum breytingum á þessari hálfri öld og fyrir löngu orðið aðkallandi að búa safninu betri umgjörð. Núverandi safnstjóri er Margrét Lilja Magnúsdóttir en blaðamaður settist niður með henni og forvera hennar, Kristjáni Egilssyni sem var safnstjóri í ríflega aldarfjórðung. Kristján er enn á safninu, er með aðstöðu bakatil þar sem hann stoppar upp fugla og er Margréti Lilju innan handar. „Við héldum upp á afmælið á laugardaginn síðasta. Okkur fannst vel við hæfi að halda upp á það um sjómannadagshelgina þar sem sjómenn hafa verið okkur sérlega hjálplegir í gegnum árin og óhætt að segja að safnið væri hvorki fugl né fiskur án þeirra,“ sagði Margrét Lilja og brosti. „Það komu um sex hundruð manns í veisluna og krakkarnir í Grunnskóla Vest- mannaeyja voru búin að skreyta húsið. Þau voru líka með skemmti- atriði, 4. bekkur sýndi dans og 5 ára krakkarnir sungu lag um fiskana sem þau hafa verið að æfa. Birta og Erna Scheving tóku svo lagið og auðvitað var boðið upp á kökur, eins og í alvöru afmælisveislu. Svo má ekki gleyma því að Gísli Óskarsson gerði áhugaverða heimildarmynd um Löngu þar sem hann ræddi m.a. við Kristján og Svavar Steingrímsson og hún var sýnd. Reyndar gekk sýningin ekki nógu vel því það var svo mikill kliður í salnum en vonandi getum við sýnt myndina aftur.“ Kambháfur í einkaflugvél til Eyja „Þau losna ekki við mig,“ sagði Kristján þegar hann er spurður út í hversu langan tíma hann var safnstjóri. „Sem betur fer,“ skýtur Margrét inn í. „Ég hef oft hringt í Kidda og fengið góð ráð hjá honum,“ bætti hún við en Kristján er með aðstöðu á safninu til að stoppa upp fugla og vera þeim innan handar sem nú starfa á safninu. Kristján hóf störf á safninu 1986 en tók svo alfarið við sem safnstjóri árið 1992, þegar tengdafaðir hans og þáverandi safnstjóri, Friðrik Jesson lést. Kristján segist varla vita hvar hann á að byrja þegar hann er beðinn um að rifja upp hvað standi upp úr eftir þennan tíma á safninu. „Það er margs að minnast og helst er það samvinnan við sjómennina okkar. Það hefur alltaf verið nóg að taka upp símtólið ef eitthvað vantar í búrin og þá er málinu bara reddað. Sömu sögu er að segja um aðra bæjarbúa því okkur öll þykir vænt um safnið. Við komum hingað sem börn og þá var þetta algjör ævintýraheimur og síðan komum við með okkar gesti hingað á safnið. En ef það er einhver einn atburður sem mér finnst standa upp úr í minningunni, þá er það þegar komið var með kambháf á safnið. Hann náðist lifandi vestur á Ísafirði en hann komi í trollið á Guðbjörgu ÍS 8. desember 1988. Kambháfar nást yfirleitt ekki lifandi og því lagði áhöfnin á sig mikla vinnu til að koma honum til okkar. Hann var m.a. fluttur með einkaflugvél til Reykjavíkur og einn úr áhöfninni fylgdi kambháfnum alla leið. Ég tók svo á móti honum í Reykjavík og flutti hann hingað. Þetta var mikið ævintýri og allt reynt til að halda honum á lífi. M.a. kom Siggi kafari með þrýstijafnara til að reyna halda lífi í honum en því miður höfðum við ekki nógu góða aðstöðu fyrir hann. Kambháfurinn er um einn og hálfur metri á lengd og allt of stór fyrir búrin hjá okkur. Því fór sem fór.“ Einstakt safn Eins og áður sagði eru Sæheimar einstakt safn hér á landi og hefur verið það frá upphafi. „Já manni finnst það í raun og veru alveg ótrúlegt að 50 árum eftir stofnun safnsins, skuli það enn vera einstakt hér á landi,“ sagði Kristján. „Sæheimar eru eina fiskasafn landsins og þykir því mjög merkilegt. Safnið hefur alltaf verið hér í sama húsnæðinu, sem er á annarri hæð og óhentugt eftir því. T.d. hefur lekið hér að ofan og niður í Slökkvistöðina á neðri hæðinni. Upphaflega hugmyndin var að setja bókasafnið hér á neðri hæðina en sem betur fer var það ekki gert enda hefði ekki farið vel um bækurnar þegar lekið hefur niður.“ Bankarán fyrir safnið Margrét skýtur því inn í að Ragnar Baldvinsson, slökkvistjóri hafi sagt henni skemmtilega sögu um safnið úr gosinu. „Þegar rafstöðin fór undir hraun, þá var hlaupið upp til handa og fóta að reyna koma rafmagni á safnið enda yrði fljótlega súrefnislaust í búrunum ef því yrði ekki kippt í liðinn. Þá komust þeir yfir ljósavél og komu henni í gang við safnið,“ sagði Margrét og Kristján greip boltann á lofti. „Þeir brutust inn í bankann og náðu í ljósavélina. Eina bankaránið sem kom ekki til kasta laganna varða,“ sagði Kristján við og glotti. Lítið breyst Þeir sem hafa komið á safnið sjá að það er komið til ára sinna og lítið hefur breyst frá opnun þess fyrir hálfri öld. „Eina stóra breytingin er steinasafnið sem var opnað 1976. Á fjögurra ára fresti hefur alltaf verið gefin út viljayfirlýsing að nú yrði eitthvað gert. Þannig hefur það gengið fyrir sig undanfarna áratugi og mér heyrðist bæjarstjórinn hafa lýst því yfir að nú væri komið að safninu eftir átak í safnamálum undanfarið. Búið væri að opna Sagnheima og Eldheima og næst væri það Sæheimar. En hann nefndi reyndar enga tímasetningar í þeim efnum,“ sagði Margrét. Gestafjöldi á safnið margfaldaðist þegar Landeyjahöfn opnaði en Kristján sagði að áður þótti mjög gott ef átta þúsund kæmu á safnið á ári en meðaltalið hefði verið þrjú til fimm þúsund. „Í dag eru gestir um tólf þúsund á ári og í júlí í fyrra komu fjögur þúsund eða eins og gestir voru á ársgrundvelli fyrir Landeyjahöfn. Safnið hefur því sprengt utan af sér og orðið aðkallandi að fara huga að því að koma safninu í nýtt húsnæði,“ sagði Margrét. Hafið þið velt fyrir ykkur hvernig draumasafnið væri ef þið fengjuð að hanna nýtt safn sjálf? „Það er búið að pæla í því fram og til baka,“ sagði Kristján og hló. „Á sínum tíma var mikill áhugi á að setja safnið í Vigtarhúsið við Fiskiðjuna. Það mál var komið vel á veg en síðan var það sett á ís. Síðar var farið að tala um jarðhæð- ina í Fiskiðjunni en málið hefur aldrei komist lengra en þetta. Það eru gífurlegir möguleikar á að gera glæsilegt safn á heimsmælikvarða. Ég nefni sem dæmi flott búr með sjófuglum, svona af því að Tóti lundapysja er hér á vappi í kringum okkur. Búr með sjó og smá kletta fyrir fuglana væri ákjósanleg aðstaða og yrði mjög vinsælt. Svo þarf nýtt safn að vera upplifun. Fólk vill taka þátt, snerta og þess háttar en ekki bara skoða í gegnum gler.“ Vantar betri aðstöðu En það er ekki bara sýningarhlutinn sem þarfnast úrbóta því á safninu fá málleysingjar aðstoð þegar á þarf að halda. „Við erum að taka á móti mikið af særðum og veikum fuglum en höfum enga aðstöðu í raun og veru til að taka á móti þeim. Við vorum t.d. með um 50 rituunga hér síðasta sumar en höfðum engan tíma til að sinna þeim. Sem betur fer eigum við nokkra krakka sem eru tilbúnir til að aðstoða okkur. Eins vantar aðstöðu fyrir móttöku skólabarna, sem nýta safnið mjög vel. Það væri t.d. hægt að setja upp litla rannsóknarstofur þar sem hægt væri að skoða lífríkið sem ekki er auðvelt að sjá með berum augum. Þá þarf svona safn líka að vera breytilegt, með rými þar sem væri hægt að skipta um sýningaratriði þannig að heimamenn heimsæki það reglulega og að safnið væri fyrir heimamenn líka. Fiskasafnið á stað í hjörtum okkar allra og við eigum öll svolítið í safninu,“ sagði Margrét að lokum. Kristján Egilsson og Margrét Lilja Magnúsdóttir. Kristján ásamt tengdaföður sínum og stofnanda safnsins, Friðriki Jessyni. Snertibúrið í fiskasafninu er mjög vinsælt meðal yngstu gestanna. Tveir af sérlegum aðstoðarmönnum safnsins, þeir Tryggvi Geir Ingvarsson og Þorbjörn Andri Hinriksson færðu Margréti Lilju blóm á afmælisdaginn. JúlíuS G. InGaSon julius@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.