Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Qupperneq 11
°
°
11Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014
Þær útskrifuðust af Sjúkraliðabraut. Frá vinstri; Þórunn Ingólfsdóttir, Kolbrún Anna Rúnarsdóttir,
Donna Ýr Kristinsdóttir og Jónína Björk Hjörleifsdóttir.
Viðurkenningar frá FÍV fyrir
mjög góða skólasókn (100%
raunmæting):
Ásta Lilja Gunnarsdóttir.
Finnbogi Halldórsson.
Gunnar Freyr Hafsteinsson.
Matthías Páll Harðarson.
Verðlaun í dönsku (gefin af
danska sendiráðinu):
Steingrímur Sigurðsson.
Viðurkenningar til sjúkraliða-
nema, besti árangur í hjúkrunar-
greinum, gefið af sjúkraliðafélag-
inu, Vestmannaeyjadeild:
Jónína Björk Hjörleifsdóttir.
Fyrir besta heildarárangur í
íslensku á stúdentsprófi. (Gefið af
Sparisjóði Vestmannaeyja):
Gunnar Þorsteinsson.
Fyrir mjög góðan árangur í
íslensku á stúdentsprófi (Gefið af
FÍV):
Ármey Valdimarsdóttir.
Fyrir mjög gott starf að félags-
málum (Gefið af Drífanda
stéttarfélagi):
Sindri Freyr Guðjónsson.
Fyrir góðan árangur á stúdents-
prófi (Gefið af FÍV):
Guðlaugur Þórarinn Rúnarsson.
Fyrir mjög góðan heildarárangur
á stúdentsprófi (Gefið af FÍV):
Gunnar Þorsteinsson.
Viðurkenningar vorannar:
Gunnar
Þorsteinsson
dúxaði
Skólabragurinn í
dag er mikið
betri en áður
:: Er búinn að skrifa 53 skólaslitaræður, sem eru
hátt í 200 blaðsíður :: Flestar frekar leiðinlegar sagði
Ólafur H. Sigurjónsson í sinni síðustu ræðu sem
skólameistari.
Venju samkvæmt flutti Ólafur H.
Sigurjónsson, skólameistari
skólaslitaræðu við útskriftina. Í
ræðu hans kom m.a. fram að
þetta væri í síðasta sinn sem
hann væri í þeim sporum að
halda ræðu sem skólameistari
FÍV við útskrift. „Það er aðalega
tvennt sem fær mig til að hætta
nú. Ég var fyrir þó nokkru búinn
að ákveða að stíga til hliðar
þegar ég fyllti 30 ár í starfi
skólameistara og nú er komið
að því. Hin ástæðan er, að ég er
með einhverja veiklun, sem
truflar málið hjá mér, eins og
þið heyrið. Nemendur mínir
halda því fram, að ég hafi talað
of mikið og of lengi. Nú er ég
sem sagt í rannsóknum hjá
læknum og ég bíð þess bara
hvort nemendur hafi rétt fyrir
sér. Meðan sérfræðingarnir
vinna í mér, mun ég fara í
veikindaleyfi,“ sagði Ólafur í
upphafi ræðunnar.
„Nóg um það, en mig langar að líta
aðeins um öxl. Ég kom til Eyja 26
ára gamall til að kenna í Gagganum
og þegar okkar ágæti Framhalds-
skóli varð til 1979, fór ég að kenna
þar. Skólinn er nú 35 ára, fyrstu árin
voru mótunartími og margt var
óklárt, aðstaða, fjárhagur og margt
sem við þurftum að móta. Það var
því mikill áfangi þegar fyrstu
stúdentanir voru útskrifaðir 19. maí
1984 og ég óska þeim til hamingju
með 30 ára stúdentsafmælið. Gísli
H. Friðgeirsson fyrsti skólameistari
skólans útskrifaði þennan fyrsta hóp
og eftir það hafði hann fengið nóg.
Ég tók þá við og hef verið svo
lánssamur að fá að útskrifa næstum
alla nemendur FÍV í 30 ár. Þrjá
hópa hefur Baldvin klárað, þegar ég
gat alls ekki verið á mínnum stað.
Þetta eru rúmlega 800 stúdentar og
fjölmargir með önnur próf.
Mín mesta gæfa í starfinu, öll þessi
ár, er hvað samstarfsmennir mínir
allir eru vel gerðir og margir bara
snillingar. Flestir hafa verið við
skólann árum saman og skilað góðu
verki, en ég þyrfti marga daga til að
hrósa þeim öllum. Ég þakka ykkur
öllum innilega, núverandi og
fyrrum starfsmenn, fyrir að búa til
virkilega góðan framhaldskóla í
Eyjum. Ég er ekki vanur að vinna í
happadrætti, en það gerðist þegar
myndað var stjórnteymi með mér,
sem í voru Helga Kristín áfanga-
stjóri og Baldvin aðstoðarskóla-
meistari. Þetta reyndist vera
regluleg „happaþrenna“, sem var
alltaf að vinna. Við fórum saman í
vettvangsnám í skólastjórnun með
vinnu og þar varð til framtíðarsýn
fyrir skólann, sýn sem við höfum
horft til í 15 ár. Ég verð að þakka
Baldvini og Helgu alveg sérstaklega
fyrir samvinnuna, sem hefur gefið
mér svo mikinn stuðning og ánægju
í mínu starfi.
Ég ætlaði að líta yfir farinn veg og
segja ykkur hvað hefur batnað í
skólastarfinu, nefna helstu breyt-
ingar og hvað heldur sér, lítið
breytt. Mér fannst upplagt að kíkja í
gamlar ræður og kortleggja
breytingarnar. En þegar það kom í
ljós, að ég er búinn að skrifa 53
skólaslitaræður, sem eru hátt í 200
blaðsíður, þá nennti ég bara ekki að
lesa þetta allt. Mig minnir nefnilega
að flestar ræðurnar séu frekar
leiðinlegar. En þegar ég fór að
hugsa, sem ætti alltaf að gera fyrst,
þá sá ég að flest sem tilheyrir
skólastarfinu hefur breyst og þannig
batnar skólinn. Skólabragurinn í
dag er mikið betri en áður og það
gerist í smáum skrefum. En er þá
ekkert sem hefur verið svona
nokkurn veginn óbreytt? Jú, það er
þá helst niðurlagið í ræðum mínum
og svo Einar Fidda, en hann er
skemmtilegri en ræðurnar.
Í hverri útskriftarræðu hjá mér, er
rauður þráður, sem er hvatning til
ykkar.
Það er, að þið reyni ávallt, að vera
almennileg manneskja. Það gerið
þið með því að standa ykkur vel í
námi og starfi og vera heil í öllu því
sem þið gerið og því sem ykkur er
trúað fyrir. Sýnið samferðafólki
ykkar og umhverfi virðingu og alúð
og sýnið sjálfum ykkur þá virðingu
að ganga ekki á rétt annarra, eða
vera með einhver óþarfa leiðindi.
Þetta á ekki síst við um samskiptin
við hitt kynið. Þið hafið verið ágætir
samstarfsmenn og við sjáum eftir
ykkur á vissan hátt, en þið megið
líka vita að ykkur fylgja góðar óskir
og nokkrar væntingar um fram-
tíðina. Við gleymum ykkur ekki, þó
þið hverfi til annarra verka og
vonandi gleymið þið okkur ekki
heldur.
Þakka ykkur öllum fyrir allt og lifið
heil, þessari fjallgöngu minni er
lokið.
Grunnnám rafiðna:
Guðni Hans Sigþórsson.
Reynir Valtýsson.
Sjúkraliðabraut:
Donna Ýr Kristinsdóttir.
Jónína Björk Hjörleifsdóttir.
Kolbrún Anna Rúnarsdóttir.
Þórunn Ingólfsdóttir.
Starfsbraut:
Aníta Einarsdóttir.
Kristján Valur Óskarsson.
Rúnar Elís Þórarinsson.
Náttúrufræðibraut:
Ármey Valdimarsdóttir.
Gunnar Þorsteinsson.
Hlynur Andrésson.
Nökkvi Sverrisson.
Víðir Þór Guðnason.
Félagsfræðibraut:
Ásta Lilja Gunnarsdóttir.
Bergvin Haraldsson.
Birkir Hlynsson.
Guðrún Kristín Vilhjálmsdóttir.
Hreiðar Örn Zoega Óskarsson.
Sigrún Gyða Þórarinsdóttir.
Sindri Freyr Guðjónsson.
Sveinn Sigurðsson.
Tómas Orri Tómasson.
Viðbótarnám til stúdentsprófs af
starfsnámsbrautum:
Guðlaugur Þórarinn Rúnarsson.
Heba Gísladóttir.
Knattspyrnukappinn Gunnar
Þorsteinsson er dúx FÍV af
vorönn.
Útskriftarnemar
af vorönn FÍV
Ármey Valdimarsdóttir flutti flutti ávarp útskriftarnema.