Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Síða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Síða 15
° ° Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014 1515 Sjómannadagshelgin var blautari í ár en oft áður, þ.e.a.s. veðurfarslega séð en Sjómanna- dagsráð var sérlega óheppið með veður bæði laugardag og sunnudag. Þannig var úrhellis- rigning þegar Sjómannafjör við Vigtartorg fór fram og hafði það eðlilega áhrif á þátttöku. Þeir allra hörðustu klæddu sig upp og fór jafnvel í bátsferð í rigningunni. Sunnudagurinn var skárri en þó fór að rigna þegar leið á hátíðardagskrár á Stakkagerðistúni. En dagskráin hélt áfram enda enginn verri þótt hann vökni. Dagskrá Sjómannadagshelgarinnar er nú farin að teygja sig á fjóra daga, sem er hið besta mál en fyrsti dagskrárliðurinn var klukkan 13:00 á fimmtudag og síðasti dagskrár- liðurinn var klukkan 22:00 á sunnudagskvöld. Þarna á milli var hver viðburðurinn á fætur öðrum og nóg um að vera fyrir börn og fullorðna. Meðal þess sem fór fram á föstudeginum var glæsilegt golfmót, SjóÍs golfmótið og var þátttaka í mótinu með miklum ágætum. Knattspyrnumót sjómanna fór fram í Eimskipshöllinni og tóku þrjú lið þátt í mótinu í ár. Rokkarar til sjós og lands fengu svo vænan skammt á föstudagskvöldið þegar Skonrokks- tónleikarnir voru haldnir þar. Eins og venjulega var fullt út úr dyrum og ríflega 400 manns voru þakklátir fyrir frábæra tónleika í lok þeirra. Eins og áður sagði var laugardagurinn í blautara lagi. Dagskrá Sjómannafjörsins hófst klukkan 13:00 við Vigtartorg en stemmningin á torginu var með daufara móti í ár vegna veðurs. Nýja húsið við smábátabryggjuna, þar sem Ribsafarimenn ætla að opna veitingastað, var gott skjól í dembunni og fjölmargir sem kíktu þangað inn á ljósmyndasýningu Hlyns Ágústssonar. Skemmtiatriði voru með hefðbundnu sniði, kappróður, koddaslagur, karaloka- hlaup, hægt var að fara í stutta siglingu með Ribsafari og hjólreiða- kappar léku listir sínar. Fljótlega eftir að dagskrá lauk við höfnina, stytti hins vegar upp, öfugt við það sem gerðist fyrir ári síðan. Í Sæheimum var haldið upp á 50 ára afmæli og m.a. sýnd áhugaverð heimildamynd Gísla Óskarssonar um Löngu. Auk þess voru tónleikar karlakórs Hreppamanna í Hvíta- sunnukirkjunni og var gerður góður rómur að þeim. Um kvöldið var svo hátíðarkvöldverður sjómanna í Höllinni þar sem sjómenn, eiginkonur og gestir nutu glæsilegs veisluhlaðborðs Einsa kalda og flottra skemmtiatriða. Sjómannadagur tileinkaður eiginkonum sjómanna Dagskráin á sjómannadaginn sjálfan, sem í ár var tileinkaður eiginkonum sjómanna var hefðbundin. Hófst hún með Sjómannamessu í Landakirkju. Að henni lokinni var athöfn við minnisvarða drukknaðra og hrapaðra og þeirra sem farist hafa í flugslysum sem Snorri Óskarsson stýrði að venju. Hann fagnaði slysalausu ári hjá Eyjaflotanum en minntist þess líka að í ár eru 35 ár frá því að Ver VE sökk austan við Bjarnarey þar sem fjórir fórust en tveir björguðust. Þrjátíu ár eru frá Helliseyjarslysinu þar sem einnig fórust fjórir og Guðlaugur Friðþórsson bjargaðist á undraverðan hátt. Sex árum síðar tók mann út af Klakki VE við Surtsey. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannafélagsins Jötuns og Sigurður Þór Hafsteinsson lögðu blómsveig á minnisvarða drukkn- aðra. Vel var mætt á Stakkó þar sem Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, varaþingmaður og nú varabæjarfulltrúi flutti hátíðarræðu dagsins. Geir Jón byrjaði á að óska sjómönnum, sjómannskonum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með sjómannadaginn. „Sjómannafélaginu Jötni er óskað til hamingju með 80 ára afmælið ykkar og Sjómannadagsráð Vestmannaeyja til hamingju með 70 árin ykkar,“ sagði Geir Jón sem kom víða við í ræðu sinni. Þegar bara áhöfnin kom í land Geir Jón fluttist til Eyja fyrir 40 árum og sagðist strax hafa hrifist af þeim eldmóði og krafti sem einkenndi Vestmannaeyinga. „Mig langaði að tilheyra þessu fólki. Fljótlega varð ég þess áskynja að það sem öllu skipti var hvað hafið gæfi af sér. Allt snerist um hversu mikið aflaðist og smitaði þetta allt samfélagið og mig líka. Ég kom að sunnan þar sem þetta var nánast ekkert inni í umræðunni. Lífið snerist um allt annað sem átti ekki við mig.“ Sjálfur reyndi Geir Jón fyrir sér í útgerð með góðum félögum. „Útgerðarsagan var sú að við áttum þrjá báta sem báru nafnið Ísak VE 3. Aflatölur hækkuðu með hverju árinu og stundum vorum við aflahæstir af smábátunum hér í Eyjum. Þetta var dásamlegur tími, ég fann strax að ég átti heima í þessu umhverfi. Síðan gerðist það einn daginn að einungis áhöfnin kom í land en bátur og afli hvarf í djúp hafsins. Þar með lauk minni þátttöku í sjávarútvegsmálum Eyjanna. Það hefur verið öllum ljóst að sjávarútvegur er grunnatvinnuvegur þjóðarinnar og hefur verið svo um ár hundruð. En er þetta öllum alveg ljóst?“ Eigum að umbuna sjómönnum Geir Jón efast um það og nefnir sem dæmi sjómannaafsláttinn sem tekinn var af á meðan Hollywood- leikarar fá meðgjöf frá ríkinu. „Í mínum huga var og er þetta algjör skömm. Sjómenn leggja sig í mikla hættu við störf sín og eru oft lengi frá fjölskyldum sínum. Og þetta er þakklætið. Þessu þarf að breyta og það strax, því við eigum að umbuna sjómönnunum okkar fyrir að leggja á sig mikla vinnu, já og oft við hættulegar aðstæður, til að afla þjóðarbúinu tekna svo um munar,“ sagði Geir Jón m.a. en lokaorðin voru: „Við þurfum að standa saman Eyjamenn um hagsmuni okkar. Við þurfum að vera samstíga og samhent í að ná fram rétti okkar til að njóta afraksturs erfiðisins. Við þurfum að standa saman til að ná fram bættum samgöngum og fullum rekstri á sjúkrahúsinu okkar, þar sem við eigum að njóta þeirrar þjónustu sem við þurfum á að halda. Kæru vinir. Ég og konan mín erum afar þakklát fyrir að fá að eiga með ykkur þetta góða samfélag. Hér líður okkur vel enda eru þið alveg frábær. Stöndum saman í gegnum þykkt og þunnt, líðum ekki fátækt eða ójöfnuð í samfélagi okkar. Látum hið opinbera finna fyrir okkur. Kæru sjómenn, ég er stoltur af ykkur og ykkar störfum. Þið sjáið til þess að ég fæ greidd eftirlaunin mín mánaðarlega. Ég bið þann sem öllu ræður, Guð almáttugan að blessa okkur öll um ókomna framtíð.“ Heiðursmenn heiðraðir Það þarf engum að leiðast þegar Snorri Óskarsson heiðrar sjómenn fyrir hönd Sjómannadagsráð. Hann rekur ættir þeirra, starfsferil og það helsta sem á daga þeirra hefur drifið í leik, starfi og jafnvel ástarlífi. Já, Snorra er ekkert mannlegt óvið- komandi þegar hann nær fluginu á sjómannadaginn. Willum Pétur Andersen, skipstjóri og stýrimaður, var heiðraður af Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðandi. Hann hóf sjómennsku ellefu til tólf ára gamall á síld með Malla á Júlíunni. Á hann að baki langan og farsælan feril til sjós. Var um tíma í útgerð og starfaði samtals í 30 ár hjá sama fyrirtæki, Hrað- frystistöðinni og síðar Ísfélaginu. „Fyrir þetta framlag til útgerðar og byggðar í Eyjum viljum við þakka Willum Petri Andersen fyrir og heiðra,“ sagði Snorri. Sigurður Guðjón Jónsson var heiðraður af Sjómannafélaginu Jötni. „Siggi var lengi á togurum en kom til Eyja 1984 og réði sig á Bylgjuna með Björgvin og Matta Óskars. En lengst var hann á Vestmannaey og Dala-Rafni. Svo kom úthaldið á Gullberginu og undanfarin tíu ár hefur hann verið kokkur á Stíganda við góðan orðstír,“ sagði Snorri. Sálusorgari, sálfræðingur og allsherjar reddari Kjartan Bergsteinsson frá Múla – loftskeytamaður var einnig heiðraður fyrir langt og farsælt starf á Vestmannaeyjaradíói. Hann var loftskeytamaður á togurum og fraktskipum og sagði Snorri að sennilega væri hann einn víðförlasti Vestmannaeyingurinn í dag. Kom aftur alkominn til Eyja 1974 og var fastráðinn á Símstöðinni frá því ári til 2005 þegar loftskeyta- stöðvarnar voru samtengdar og fáir þurftu að sjá um samskiptin við flotann. „En hversu mikilvægt var hlutverk loftskeytamannsins?“ spurði Snorri og svarið var: „Það var því líkast að vera sálusorgari, sálfræðingur og allsherjar reddari fyrir flotann að vera loftskeytamaður. Öll neyðarköll heyrðust fyrst þar og hvað var hægt að gera annað en að vera þátttakandi í miðri hringiðunni. Margt var eftirminnilegt t.d. þegar skip brotnaði út af Portlandi og bjarga þurfti því sem hægt var. Írskum stjórnvöldum fannst Loftskeytastöðin í Eyjum standa sig frábærlega svo bæði Rabbi á Dala Rafni og Kjartan fengu heiðursorðu í viðurkenningarskyni. Í byrjun starfsins voru slysin tíð bæði á mönnum og skipum en sama hvað gekk á, engin áfallahjálp stóð þessum mönnum til boða. Í þakklætisskyni vill Sjómannadagsráð Vestmannaeyja sýna þér virðingarvott með þessari litlu viðurkenningu vegna mikils hlutverks í öryggismálum sjómanna og heimila þeirra,“ sagði Snorri. Langur ferill Stein Ingólf Hendriksen, Brói, var heiðraður af Vélstjórafélaginu. Hann kemur frá Akureyri en sjómannsferill hans hófst 1956 þegar hann fór 14 ára á síld frá Dalvík á Klæng ÁR 2. Seinna lá leiðin á Gunnari EA, sem varð Burstafellið VE. Þaðan á togarana Sléttbak og Harðbak þar sem róið var á stormasömustu mið Atlands- hafsins. Eftir að hann kom til Eyja var Brói á Gjafari VE en var lengi á Huginn VE með Guðmundi Inga Guðmundssyni. „Brói mætti hjá Guðmundi 1963 á Huginn VE 65, svo Huginn II 1964, Huginn 1975 og svo á þann yngsta 2001 þar sem hann fékk að róa einn túr. Var á Freyjunni eina vertíð með Sigga og með Erlingi Péturssyni í 23 ár. Svo lá leiðin á Portlandið,“ sagði Snorri um Bróa sem á einn lengsta feril sjómanna í Vestmannaeyjum. Sjómannadagurinn tileinkaður eiginkonum sjómanna :: Hefðbundin dagskrá á afmælisári: Snorri fagnaði slysalausu ári hjá Eyjaflotanum :: Sjómannafélagið Jötunn 80 ára afmæli :: Sjómannadagsráð Vestmannaeyja 70 ára :: Willum Andersen, Kjartan á Múla, Sigurður Guðjón og Brói heiðraðir :: Sjómenn leggja sig í mikla hættu við störf sín og eru oft lengi frá fjölskyldum sínum, sagði Geir Jón í hátíðarræðu :: Sjómannafjör laugardagsins í úrhellisrigningu Sjómannadagsráð á heiður skilið fyrir sitt framlag enda er Sjómannadagshelgin í Vestmannaeyjum orðin ein af stærri bæjarhátíðum sumarsins.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.