Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Blaðsíða 4
° ° 4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. júlí 2014 Landakirkja Sunnudagur 20. júlí: Kl. 11.00. Helgistund í Landakirkju á 5.sunnudegi eftir þrenningarhátíð. Slakandi stund í Landakirkju, með ljúfum sálmum. Sr. Guðmundur Örn flytur hugvekju og þjónar fyrir altari. Kór Landakirkju syngur og leiðir sönginn. Helgistundinni er útvarpað á Útvarpi Vestmannaeyja, fm 104, kl. 16.00. Miðvikudagur 23. júlí: Kl. 19.30. Fundur OA‑samtakanna í Safnaðarheimilinu uppi. Viðtalstímar prests eru þriðjudaga til föstudaga milli 11.00 og 12.00. Vatktsími: 488-1508. Hvítasunnu- kirkjan Fimmtudagur kl. 20:00 Skoðum og ræðum kafla 11 ‑ 15 úr bókinni „Tilgangsríkt líf“ sem beinir athygli okkar að markmiðum Guðs í lífi okkar. Sunnudagur kl. 13:00 Samkoma. Lilja Óskarsdóttir prédikar, almenn þátttaka við‑ staddra í söng og fl. kaffisopi og spjall eftir á. Miðvikudagur kl. 17:15 Bænastund fyrir Kristsdeginum í september. Allir hjartanlega velkomnir. Kirkjur bæjarins: Eyjamaður vikunnar Matgæðingur vikunnar Í síðustu fór fram Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja. Þar er keppendum skipt í flokka eftir forgjöf og aldri og því verðlaunahafar þó nokkrir. Einn þeirra er Guðmundur Ingi Jó- hannesson en hann bar sigur úr býtum í 3. flokki karla. Guðmundur Ingi er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Nafn: Guðmundur Ingi Jóhannesson. Fæðingardagur: 9. október 1972. Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar. Fjölskylda: Er kvæntur Soffíu Baldursdóttir og eigum við þrjú börn, einn hund og einn kött. Draumabíllinn: Skoda. Uppáhaldsmatur: Beinlausir fuglar. Versti matur: Slátur. Uppáhalds vefsíða: mbl.is. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Eyjalög, Ingó og Bryndís að spila á þjóðhátíð. Aðaláhugamál: Golf og íþróttir í sjónvarpi. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Guðmund afa. Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Borgarfjörður eystri. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Hlynur Andrésson og Man Utd. Ertu hjátrúarfull/ur: Já, geng ekki undir stiga. Stundar þú einhverja hreyfingu: Reyni að gera sem allra minnst af því en fer þó í golf. Uppáhaldssjónvarpsefni: Íþróttir. Hvað ertu með í forgjöf: 22,5. Spilarðu mikið golf: Nei allt of lítið, vinnan oft að trufla það. Uppáhalds golfvöllur og -braut: Vestmannaeyjavöllur og 17. braut. Besti hringur sem þú hefur spilað: 93 högg síðasta laugardag. Eitthvað að lokum: Vil bara hvetja alla til að fara í golf, virkilega skemmtilegt. Hvet alla til að fara í golf, virkilega skemmtilegt Eyjamaður vikunnar er Guðmundur Ingi Jóhannesson Ég þakka Geir fyrir áskorunina og ætla að bjóða ykkur upp á nauta - hakksrúllu, uppskrift fyrir 3 - 4. Hakk: 500 g nautahakk 1 msk. kartöflumjöl (2 tsk. husk fyrir LKL) 1 egg salt & pipar 1/2 – 1 tsk. chili krydd 30 g smjör 2‑3 msk. soja 1‑2 dl rjómi sósujafnari Fylling: 180 g beikon, skorið eða klippt í litla bita 1/2 rauðlaukur, saxaður smátt 150 g sveppir, skornir í sneiðar 1 lítið grænt epli eða 1/2 stórt, afhýtt og skorið í litla bita. salt & pipar 1 tsk. timjan 2 dl rifinn ostur Ofninn er hitaður í 200 gráður. Nautahakk, kartöflumjöl, salt, pipar og egg hrært saman í skál. Hakkið flatt út í ferning á smjörpappír. Gott er að leggja smjörpappír ofan á hakkið og fletja það svo út með kökukefli. Beikon steikt á pönnu þar til það er að verða stökkt, þá er lauknum bætt á pönnuna og steikt í smástund til viðbótar, svo er sveppunum bætt út í. Þetta er steikt í smá stund og í lokin er eplunum bætt við og kryddað. Blöndunni er svo dreift yfir nauta‑ hakkið. Rifna ostinum er svo dreift yfir beikonblönduna. Með hjálp smjörpappírsins er hakkinu rúllað upp eins og rúllutertu. Rúllan er færð yfir í eldfast mót. Smjör brætt í potti og sojasósu blandað saman við, blöndunni er svo hellt yfir rúlluna. Hitað í ofni í ca. 35 mínútur við 200 gráður, kannski lengur, fer allt eftir þykkt rúllunnar. Þegar rúllan er elduð í gegn er hún tekin úr eldfasta mótinu og sett undir álpappír. 2‑3 dl af vatni er hellt út í eldfasta mótið sem er sett aftur inn í ofninn og hann stilltur á grill. Þegar vökvinn fer að sjóða eftir nokkrar mínútur er honum hellt yfir í pott (ég sigta vökvann ofan í pottinn) og 1‑2 dl af rjóma hellt út í. Sósan er svo þykkt með sósujafnara. Sósan er svo smökkuð til með salti og pipar. Borið fram með hrísgrjónum eða kartöflumús og salati. Ég ætla svo að halda þessu áfram innan Samskipa og skora því á Sindra Ólafsson sem næsta matgæðing Nautahakksrúlla með beikoni, eplum og sveppum Matgæðingur vikunnar er Árni Sigurður Pétursson Bæjarráð samþykkti á fundi í síðustu viku að tilnefna Sigurberg Ármannsson, fjármálastjóra bæjar ins sem fulltrúa í fjárhags‑ nefnd ÍBV. Tilnefningin er til eins árs og er séð sem hluti af aðkomu Vestmannaeyjabæjar í fjárhagslegri endurskipulagningu ÍBV íþróttafé‑ lags. Eftir að skipunartíma lýkur lítur Vestmannaeyjabær svo á að beinni aðkomu beri að ljúka enda um frjáls félagasamtök að ræða sem bera algerlega sjálf ábyrgð á rekstri sínum. Bæjarráð vill ennfremur þakka ÍBV íþróttafélagi fyrir jákvætt og uppbyggilegt samstarf við endur‑ skipulagninguna og fagnar þeirri ábyrgð sem félagið hefur sýnt í samstarfi við Vestmannaeyjabæ og aðra velunnara félagsins. Skipun nefndarinnar var hluti af samningi ÍBV‑íþróttafélags við Vestmannaeyjabæ, Ísfélagið og Vinnslustöðina sem lögðu félaginu til 60 milljónir á þremur árum. Vestmannabæjar tilnefnir í fjárhags- nefnd ÍBV: Sigur- bergur frá bænum >> smáar Til sölu Rúmlega fokhelt 73.1 fm sumarhús á 4.952 fm eignarlóð að Eiríksbraut 2 á landi Torfastaða í Bláskógabyggð Selfossi. Verð, 9,9 millj. Upplýsingar í s. 899 0047. ‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑‑ Auglýsingasíminn er 481 1300 Tyrkjaráns- ganga, laugardaginn 19. júlí kl. 13-15. Í minningu Tyrkjaránsins 1627 verður boðið upp á sögugöngu í fótspor Tyrkjaránsmanna á laugardag- inn kl. 13 og hefst gangan við verslunarmiðstöðina Kjarval, Goðahrauni 1. Staldrað verður við hjá Hundraðsmannahelli, Fiskhellum, Landakirkju, Stakkagerðistúni og endað á Skansinum, þar sem skotið verður úr fallbyssunni. Ragnar Óskarsson kennari leiðir gönguna og segir frá ýmsum atburðum tengdum Tyrkjaráninu. allir hjartanlega velkomnir, sögusetur 1627.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.