Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Page 11

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Page 11
° ° 11Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. júlí 2014 Jóhann Guðmundsson, forritari hjá Smartmedia kynnti á facebooksíðunni Heimaklettur nýtt verkefni sem hann hefur verið með í kollinum í nokkur ár en er nú að hrinda í fram- kvæmd. Um er að ræða snjallsímaforrit, sem á góðri íslensku er kallað app, sem virkar þannig að þeir sem eru á ferð um Vestmannaeyjar, geta kallað fram myndir úr gosinu í gegnum snjallsímana, á þeim stað sem þeir eru á hverju sinni. Þannig gæti sá sem stæði við Landakirkju, fengið upp myndir í símann sinn af Landakirkju í gosinu. Þegar appið verður klárt, verður hægt að nálgast það endurgjaldslaust í öllum tegundum snjallsíma. „Það er alltaf erfitt að segja hvernig maður fær einhverjar hugmyndir sem slíkar en þetta hefur kannski verið að þróast í hausnum á manni í nokkur ár. Upphaflega byrjaði ég fyrir tæpum þremur árum að vinna með staðsetningar á golfvöllum fyrir 247Golf þar sem við vorum að birta golfvelli eftir þinni staðsetn‑ ingu í farsímanum þínum,“ sagði Jóhann þegar hann var spurður út í upphaf verkefnisins. „Í kjölfarið á þeirri vinnu var ég mikið að hugsa um það hvernig væri hægt að nýta sér þessa tækni til að gera eitthvað skemmtilegt hérna heima. Gosið heillaði alltaf til að vinna með og ég byrjaði svona að spá í því hvað væri hægt að gera með þetta. Ég hef svo frá þessum tíma rætt þetta við nokkra í kringum mig og meðal annars Frosta Gíslason, í Fab‑Lab en þá vorum við að hugsa um að tengja þetta að einhverju leyti við Heimaslóð. Þá ætlaði ég alltaf að klára þetta fyrir 40 ára goslok en náði aldrei að finna mér tíma í að koma þessu á eitthvað stig til að geta prófað.“ Vonda veðrið kom þessu af stað Hefurðu verið að vinna lengi að appinu? „Ég er að nýta mér mikið af þeirri reynslu og forritun sem við erum með hjá Smartmedia og sem dæmi keyrir þetta allt á vefumsjónarkefi frá Smartmedia. Þannig að það er ekki hægt að segja nákvæmlega hvað ég er búinn að eyða af tíma í þetta, en ég komst ekki í golf upp í sumarbústað um goslokahelgina þar sem það var brjálað veður. Ég ákvað að reyna að klára svokallaða beta‑útgáfu af þessu sem ég náði að gera og svo byrjaði ég að prófa þetta þegar að ég kom heim eftir helgina.“ Jóhann segir að í dag sé snjall‑ símaforritið, eða appið eins og það er kallað á góðri íslensku, komið upp og virkar í nýjustu gerðum snjalltækja. „Ég er svo að nýta vinnu í kringum vefþjónustu sem við eigum til hjá Smartmedia til að gefa möguleikann á því að tengjast gagnagrunninum frá mismunandi öppum, þannig væri í raun hægt að skrifa „Native app“ fyrir Android, iOS eða Windows Phone og láta þau tala alltaf við vefþjónustuna til að birta viðeigandi gögn eftir staðsetningu.“ Endalausir möguleikar Hvernig virkar þetta fyrir hinn almenna snjallsímaeiganda? „Ég er búinn að vera að vinna með fjórar staðsetningar sem eru allar hérna í kringum heimilið mitt á Hvítingaveginum þannig að eflaust hafa einhverjir séð mig í göngu fram og til baka hérna þegar ég hef verið að prófa þetta og það er alveg að skila réttum niðurstöðum. Hugmyndin er að þú getir í raun farið inn á þetta í símanum þínum hér í Eyjum þar sem þú myndir fá upp kort sem sýnir staðsetningar á myndum í kringum þig. Þú getur þá í raun gengið að næstu stað‑ setningu og svo þegar þú ert kominn innan við einhverja X metra frá þeim stað þá fengir þú við‑ eigandi mynd sem sýnir þér nákvæmlega sömu sýn frá árinu 1973. Þessi tækni hefur verið að þróast mikið á síðustu árum og eru möguleikarnir endalausir. Sem dæmi, ef þetta gengur allt upp, þá hef ég hugsað að það væri hægt að setja upp nokkrar svona sýningar sem slíkar inn í sömu tækni þannig að þú gætir t.d. farið niður á bryggju og þá væri búið að setja upp sýningu sem væri t.d. um útgerð eða fiskvinnslu á fyrri tímum og myndi þá birta myndir á þeim staðsetningum sem þær eru teknar. Það væri svo líka hægt að setja upp sýningu af húsum undir hrauni þar sem fólk myndi ganga gönguleiðir uppi á hrauni, bara svona sem dæmi.“ Jóhann segir að það hafi ekki staðið á viðbrögðum eftir að hann kynnti hugmyndina inni á Heima‑ klettssíðunni á facebook. „Já, ég fékk mjög jákvæð viðbrögð við því og er nú þegar kominn með nokkrar myndir sem ég er strax búinn að setja við staðsetningar sem ég ætla að reyna að prófa á næstu dögum. Ég er ekkert endilega að leita eftir miklu magni af myndum, heldur vill ég fá flottar myndir sem getur gefið okkur ákveðna sýn á það hvernig ákveðin staðsetning var í gosinu og þannig getur fólk staðið á þeim stað og horft á breytingu frá gosinu og í dag,“ sagði Jóhann. Þeim sem vilja aðstoða hann í þessu verkefni, er bent á að hafa samband við hann með því að senda tölvu póst á gudmundssonjohann@ gmail.com eða með því að senda honum skilaboð á facebook. Jóhann Guðmundsson, forritari hjá Smartmedia hannar gosapp: Söguskoðun frá gosinu með aðstoð snjallsíma :: Hægt að kalla fram myndir úr gosinu á hverjum stað fyrir sig á gönguferð um Eyjuna :: Appið klárt en myndirnar vantar JúlíuS G. InGaSon julius@eyjafrettir.is Fjórða Vestmannaeyjahlaupið verður laugardaginn sjötta september nk. og er búist við góðri þátttöku. Að venju verður boðið upp á þrjár vegalengdir, fimm, tíu og 21 kílómetra eða hálfmaraþon. Vestmannaeyjahlaupið er að ná að festa sig í sessi þótt það hafi aðeins farið fram þrisvar sinnum. Einn okkar mesti afreksmaður í lang‑ hlaupi, Kári Steinn Karlsson, hefur verið með frá upphafi og er búinn að skrá sig í hlaupið í september. Þegar Eyjafréttir ræddu við hann á mánudaginn var hann á leiðinni í hálfs mánaðar æfingabúðir í Bandaríkjunum sem er liður í undirbúningi fyrir Evrópumeistara‑ mótið í frjálsum íþróttum sem fram fer í Zurich í Sviss í ágúst. Kári Steinn er okkar skærasta stjarna í langhlaupum í dag, setti Íslandsmet í maraþoni í Berlín í september 2011 og varð 42. á Olympíuleikunum í London 2012 þar sem keppendur voru 105. Hann kemur svo má segja beint af EM í Vestmannaeyjahlaupið. „Ég hef ýmist hlaupið hálft maraþon eða tíu kílómetra í Vestmannaeyjahlaup‑ inu sem mér finnst rosalega skemmtilegt. Þetta er þrælerfitt en það er gaman að hlaupa í svona fallegu landslagi og er eins og allur bærinn taki þátt í þessu með okkur,“ segir Kári Steinn. Hann bendir þeim á sem ekki hafa tekið þátt í hlaupinu áður að fara rólega af stað. „Það eru erfiðar brekkur í byrjun og þá er hætta á að sprengja sig. Það er betra að spara sig og taka meira á í lokin.“ Kári Steinn á ættir að rekja til Eyja, tengist Laufásættinni og og var hér á ættamóti í fyrra. „Það er alltaf jafngaman að koma til Eyja og ég hlakka til að mæta í hlaupið í september.“ Kári Steinn er fæddur 1986 og á því framtíðina fyrir sér og tekur hann undir það. „Langhlauparar eru að bæta sig alveg fram að fertugu, það er eins og þeir byggi upp styrkinn með aldrinum. Ég gæti því átt eitthvað inni, er ekki nema 28 ára,“ sagði Kári Steinn að endingu. Vestmannaeyjahlaupið í fjórða sinn 6. sept. :: Kári Steinn mætir: Þrælerfitt en gaman að hlaupa í svona fallegu landslagi :: Hef verið með frá upphafi :: Eins og allur bærinn taki þátt með okkur Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Á morgun 17. júlí eru liðin rétt 387 ár frá einum ægilegasta harmleik í sögu Vestmannaeyja, Tyrkjaráninu. Sjóræningjar gengu þá hér á land, drápu á fjórða tug manna og fluttu aðra 242 á skip er sigldi til Alsír. Aðeins um 10% þeirra áttu fyrir höndum að komast til baka. Á þeim tíma bjuggu um 500 manns í Eyjum og blóðtakan því gífurleg. Þessara atburða hafa Vestmannaeyingar minnst æ síðan. Sögusetur 1627 efnir til sögu‑ göngu laugardaginn 19. júlí kl. 13, þar sem farið er í fótspor Tyrkja‑ ránsmanna. Gangan hefst við verslunarmiðstöðina Kjarval, Goðahrauni 1. Sem mörg undan‑ farin ár leiðir Ragnar Óskarsson gönguna og er áætlað að henni ljúki um það bil tveimur klukkutímum síðar á Skansinum. Á göngunni er staldrað við valda staði og atburðir þar rifjaðir upp. Sögusetur 1627 Fréttatilkynning: Sjórán í Eyjum

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.