Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Síða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Síða 13
° ° 13Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. júlí 2014 Síðastliðinn laugardag var opnuð sýning í Einarsstofu í Safnahúsinu við Ráðhúsströð, á öllum þjóðhátíðarmerkjunum frá árinu 1970 ásamt ýmsum öðrum munum tengdum þjóðhátíð, að frumkvæði Gunnars Júlíussonar. Það var árið 1970 að fyrst var reglulega farið að nota sérstakt merki á hverri þjóðhátíð. Reyndar var árið 1948 útbúið merki fyrir þjóðhátíðina það árið, sem var félagsmerki Íþróttafélagsins Þórs í grunninn. Einnig var sérstakt merki notað á þjóðhátíðinni 1951. En frá árinu 1970 hafa alltaf verið notuð sérstök merki, að undanskildu árinu 1985, allavega hefur ekki tekist að finna merki það árið. Merkin voru mismikið notuð, lengi vel voru þau prentuð á könnur og glös, einnig á fána. Þau birtust á síðum þjóðhátíðarblaðanna og þjóðhátíðardagskrám, og jafnvel sem skreyting í Herjólfsdal. Merkilegt starf um listrænan hluta þjóðhátíðar Framtak Gunnars er afar þakkar‑ vert. Hann tókst á við mikið og þarft verk um merkilegan hluta þjóðhátíðanna, við öflun upp‑ lýsinga um sögu þessara þjóðhá‑ tíðarmerkja og höfunda þeirra. Merkin þurfti hann flest að teikna upp á nýtt þar sem mörg þeirra voru það smá að ekki var hægt að stækka þau upp í sýningarstærð. Hann segir markmiðið með þessari söfnun merkjanna að varðveita og kynna þennan part af listasögu þjóðhátíðarinnar, hvaða listamenn gerðu þau og hvaða hugmyndafræði bjó að baki og hvernig merkin voru notuð í markaðssetningu þjóðhá‑ tíðar í gegnum tíðina. Í fyrstu voru merkin að grunni til skjaldarmerki Vestmannaeyja. Árið 1976 koma svo fuglar úr náttúru Eyjanna. Þá fallegar myndir úr umhverfi Eyjanna. Merkin urðu hringlaga og sporöskjulaga, þá komu stemmn‑ ingsmyndir frá þjóðhátíð og síðan fóru áhrif styrktaraðila að sjást í merkjunum og þau hönnuð af auglýsingastofum þeirra. Gunnar fór yfir sögu merkjanna og höfunda þeirra og sagði meðal annars frá því að þegar í merki þjóðhátíðar hafi í fyrsta sinn verið gosdrykkjaflöskur, sem styrktaraðili þjóðhátíðarinnar framleiddi, hafi það ekki mælst vel fyrir hjá samkeppnisaðila. Umboðsmaðurinn hans hefði komið inn í tjald formanns þjóðhátíðarnefndar, ekki kátur, hefði hann svipt dúknum af borðinu og allt sem á honum var fór í gólfið. Síðan lagði hann kókfán‑ ann yfir borðið og hvarf síðan af vettvangi, en ekki sjálfviljugur. Að grafa upp öll þessi merki og höfunda þeirra, reyndist erfiðara en Gunnar reiknaði með. Kom fram í máli hans við opnun sýningarinnar að þeir sem verið hafa í forsvari fyrir þjóðhátíðirnar hafi fæstir munað eftir höfundum merkjanna eða tildrögum þeirra, en með þrotlausri vinnu, símhringingum og samtölum við fjölmarga hafi tekist að finna út höfunda 25 þjóðhátíðar‑ merkja af 31 sem notuð hafa verið. Hárþvottur í boði Kletts Við opnun sýningarinnar flutti Magnús Sveinsson, kaupmaður á Kletti, skemmtilegt erindi um það að vera kaupmaður á þjóðhátíð. Þegar hann fyrst, árið 1974, stóð við afgreiðslu á Kletti, hafi verslunum verið lokað á hádegi á föstudegi í þjóðhátíð og ekki opnaðar aftur fyrr en á hádegi á mánudegi. Kaupmenn og starfsfólk hafði verið í Dalnum á þjóðhátíð. En oftsinnis hafi verið hringt í hann að degi eða kvöldi þjóðhátíða til að afgreiða fólk um bensín eða annað sem það vanhagaði um. Sjálfur hafi hann orðið bensínlaus á leið í Dalinn þannig að hann skildi þörfina vel. Þetta var bara siður þess tíma. Í dag séu margar verslanir opnar alla þjóðhátíðardag‑ ana og það sé vel. Lengi vel sagðist hann hafa þjónað bæði Mammoni og Bakkusi yfir þjóðhátíðina, haft opið á daginn en farið í Dalinn á kvöldin. Hin síðari ár sagði Magnús að hann sinnti eingöngu Mammoni. Magnús sagði skemmtilega sögu af starfi sínu á Kletti eina þjóðhá‑ tíðina. Nokkrir félagar hans höfðu komið í heimsókn á Klett einn daginn í þjóðhátíð. Þeir fengu sér nokkra bjóra baksviðs. Þá kemur inn í verslunina ung og myndarleg kona sem vantaði hársjampó. Eitthvað var hún að vandræðast með hvaða tegund hún ætti að kaupa. Þeir koma þá fram félagarnir sem áður héldu sig baksviðs og tóku að aðstoða konuna við að velja sér sjampóið. Það endaði með því að þeir tóku að sér að þvo konunni um hárið. Hún átti ekki orð yfir þessa fínu þjónustu á Kletti. Seinna sagðist Magnús hafa hitt hana í brúðkaupsveislu, þar vatt hún sér að honum og spurði hvort þessi þjónusta væri ennþá í boði á Kletti. Hvar eiga þjóðhátíðarmerkin heima í framtíðinni? Sýning Þþóðhátíðarmerkjanna í Safnahúsinu verður opin framyfir þjóðhátíð. Þá verður hún tekin niður, en hvað um þessa sýningu verður þegar henni lýkur er óvíst. Best ættu þessi merki heima í félagsheimili ÍBV íþróttafélags, í Týsheimilinu, og vonandi finnst þeim viðunandi staður á veggjum þess. Synd væri ef þau enduðu í geymslum Safnahússins, þau eru hluti af þjóðhátíðarsögunni og hana þarf að varðveita og gera sýnilega. Sagnheimar :: Þjóðhátíðarmerkin frá 1970 til sýnis :: Merkt framtak Gunnars Júlíussonar: Tókst á við mikið og þarft verk um merkilegan hluta þjóðhátíðar :: Við öflun upplýsinga um sögu þessara þjóðhátíðarmerkja og höfunda þeirra GíSlI ValTýSSon gisli@eyjafrettir.is Það var vel mætt í Einarstofu við opnun sýningarinnar á laugardaginn. Gunnar Júlíusson á frumkvæðið að sýningunni. Nú þegar nálgast Þjóðhátíð magnast spennan upp í Eyjum. Við náðum tali á Herði Orra Grettissyni. Hann á sæti í þjóðhátíðarnefnd ÍBV sem hefur í mörg horn að líta þessa dagana nú þegar aðeins er rúmur hálfur mánuður í þjóðhá- tíðina. Eyjafréttir báðu Hörð Orra að segja aðeins frá hátíðinni þetta árið. Nú er 140 ára afmæli Þjóðhátíðar- innar og þá ber að spyrja hvort hátíðin í ár verði frábrugðin að einhverju leyti? „Nei, þessi Þjóðhátíð verður með mjög hefðbundnum hætti og svipað uppsett og undafarin ár og við reiknum með sambærilegri hátíð og í fyrra.“ Verður eitthvað sérstakt í tilefni afmælisins? „Við settum af stað samkeppni um nýtt þjóðhátíðarmerki í vor í tilefni af 140 ára afmælisins og var nýja merkið afhjúpað á laugardaginn við hátíðlega athöfn í Einarsstofu. Um leið var opnuð sýning á merkjum Þjóðhátíðar frá 1970 sem ég mæli með að allir kíki á, skemmtileg og fróðleg sýning. En eins og áður segir þá verður engin sérstakur afmælisviðburður, hátíðin verður stórglæsileg eins og alltaf. Við ætlum þó að minnast annars afmælis, en það er 100 ára Afmæli Ása í Bæ og verður það á kvöld‑ dagskránni á föstudeginum.“ Hvaða tónlistarmenn/hljómsveitir verða á hátíðinni í ár? „Dagskráin hefur verið opinberuð á dalurinn.is og það mæta að sjálfsögðu vinsælustu skemmti‑ kraftar landsins. Ég er spenntastur fyrir John Grant, Kaleo og Quarashi en þeir eru að koma saman aftur í þetta eina skipti til að koma fram á Þjóðhátíð í Eyjum.“ Eru einhverjar nýjungar sem þið bjóðið upp á, til dæmis laugardags- passinn, út á hvað gengur hann? „Já, við ætlum að prufa að bjóða upp á laugardagspassa í ár. Hann gengur út á það sama og sunnu‑ dagspassinn hefur gert síðan 2012. Þá hefur fólk kost á því að koma í Dalinn í einn dag og upplifa þessa frábæru stemmingu og mögnuðu dagskrá án þess að þurfa að útvega sér gistingu og fleira. Í þessum pakka erum við að bjóða upp á ferðir fram og til baka með Herjólfi og miða í Dalinn á laugardeginum,“ sagði Hörður Orri. „Einnig verðum við með nýjung í barnadagskránni. Við fórum í samstarf við Leikjaland sem heitir Allra Gaman. Þar er boðið upp á leiki fyrir alla fjölskylduna og svo ætlum við að vera með kassabíla‑ keppni. Verður gaman að sjá hvort að þetta komi ekki vel út.“ Gaman verður að sjá nýjungarnar í bland við gömlu góðu þjóðhátíðar‑ stemmninguna. Hörður Orri Grettisson í þjóðhátíðarnefnd: Kassabílakeppni og laugardags- passi í Dalinn meðal nýjunga :: Reikna með sambærilegri hátíð og í fyrra SÓlEy DöGG GuðBJörnSDÓTTIr frettir@eyjafrettir.is Á laugardaginn, 19. júní verða tónleikar á Háloftinu sem Elvar Eðvaldsson stendur fyrir. Tónleikarnir eru til styrktar Björgunarfélagi Vestmannaeyja. „Þetta er band sem við höfum soðið saman og köllum við okkur Kósý bandið,“ sagði Elvar sem sér um trommusláttinn. „Þetta eru mikið krakkar úr Leikfélaginu og þau sem við vitum að koma fram eru Una Þorvaldsdóttir, Ólafur Freyr og Hannes Már. Þau verða örugglega fleiri. Nú er að styttast í þjóðhátíð og örugglega tekur lagavalið mið af því. Gæti verið létt upphitun fyrir hátíðina miklu,“ sagði Elvar. Húsið verður opnar kl 21:00 og tónleikarnir byrja 22.00. Háaloftið á laugardaginn: Kósý stemmning með þjóðhátíðarívafi

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.