Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Side 14

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Side 14
° ° 14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. júlí 2014 Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja fór fram í síðustu viku. Á mánudag og þriðjudag var leikið í barna- og unglingaflokkum en keppni í eldri flokkunum hófst á mið- vikudag og lauk á laugardag. Veðri var heldur misskipt þessa daga, talsverð rigning gerði kylfingum lífið leitt á miðviku- dag og föstudag en hið skapleg- asta veður var á laugardag. Alls tóku 46 kylfingar þátt í keppni í eldri flokkum, af þeim voru tveir gestir frá öðrum klúbbum sem gátu ekki keppt til verðlauna, samkvæmt mótsreglum. Af þessum 46 lauk 41 keppni en fimm hættu leik. Þetta er heldur minni þátttaka en verið hefur á undanförnum árum og gæti óhagstæð veðurspá fyrir móts‑ dagana átt sinn þátt í því. Þessi urðu úrslit í hverjum flokki fyrir sig: Meistaraflokkur karla (forgj. < 4,4): Högg 1. Örlygur Helgi Grímsson 288 2. Rúnar Þór Karlsson 294 3. Gunnar Geir Gústafsson 297 Alls voru níu kylfingar sem léku í meistaraflokki en þar leika þeir sem eru með forgjöf undir 4,5. Reyndar voru þrír með hærri forgjöf en ákváðu að leika með meistaraflokki, eins og þeim er heimilt, frekar en 1. flokki. Örlygur Helgi var með forystu allt frá byrjun og í þægilegri stöðu fyrir síðasta hringinn, gat leyft sér að „slappa af“ í honum og sigraði næsta örugglega. Þetta er í 11. sinn sem hann hampar Vestmannaeyja‑ meistaratitlinum og nálgast nú óðum þann sem oftast hefur hlotið þann titil en Sveinn heitinn Ársælsson varð 14 sinnum Vestmannaeyjameistari. 1. flokkur karla (forgj. 4,5 – 11,4): Högg 1. Lárus Garðar Long 312 2. Huginn Helgason 319 3. Hlynur Stefánsson 322 Sex kylfingar hófu leik í 1. flokki en fjórir luku leik. Lárus Garðar var vel að sigrinum kominn en hann er kornungur og einn efnilegasti kylfingur GV um þessar mundir. 2. flokkur karla (forgj. 11,5 – 18,4): Högg 1. Ágúst Ómar Einarsson 336 2. Sigurður Bragason 347 3. Jóhann Ólafur Guðmundsson 351 Níu kylfingar hófu leik í 2. flokki en tveir hættu leik. Ágúst Ómar sigraði nokkuð örugglega í þessum flokki og sýnilegt að þrotlausar æfingar hafa skilað sér en enginn hefur verið iðnari við að nýta sér æfingaaðstöðu klúbbsins en hann. 3. flokkur karla (forgj. 18,5 – 26,4): Högg 1. Guðm. Ingi Jóhannesson 391 2. Kristján Hauksson 432 Aðeins tveir keppendur voru í 3. flokki karla og enginn var skráður til leiks í 4. flokki þar sem þeir leika sem hæstu forgjöfina hafa, 26,5 – 36. Kvennaflokkur: Högg 1. Sara Jóhannsdóttir 389 2. Katrín Harðardóttir 398 3. Katrín Magnúsdóttir 430 Aðeins sex konur skráðu sig til leiks í mótinu. Reyndar er það fjölgun frá fyrri árum en undanfarin ár hafa þrjár til fjórar konur keppt á meistaramótinu. Vonir standa til að fjölga muni í kvennaflokkinum á næstu árum þar sem fjölmargar konur hafa á þessu ári bæst í hóp félaga í GV þó svo að þær hafi ákveðið að taka ekki þátt að þessu sinni. Í kvennaflokki var einnig keppt með forgjöf en sömu þrjár urðu einnig í efstu sætum með forgjöf. Sara Jóhannsdóttir er eiginkona Einars Gunnarssonar, golfkennara hjá GV og lék áður með Golf‑ klúbbnum Mostra í Stykkishólmi. Öldungaflokkur karla (55-69 ára): Högg Með forgjöf: 1. Ingibergur Einarsson 217 2. Sigurjón Pálsson 220 3. Gústaf Ó. Guðmundsson 224 Án forgjafar: 1. Sigurjón Pálsson 241 2. Ríkharður Hrafnkelsson 251 3. Ingibergur Einarsson 259 Öldungaflokkurinn var fjölmennasti flokkurinn á mótinu og hefur verið það á undanförnum árum en ellefu skráðu sig til leiks og af þeim luku tíu keppni. Sigurjón Pálsson vann þarna nokkuð öruggan sigur. Aðeins eru leiknir þrír hringir í öldunga‑ flokkunum en fjórir í öðrum flokkum. Öldungaflokkur karla (70 ára og eldri): Högg 1. Ársæll Lárusson NK 272 2. Sigurgeir Jónsson 276 3. Sigmar Pálmason 288 Aðeins þrír kylfingar kepptu í þessum flokki og þar sem Ársæll keppti sem gestur á mótinu, en hann er í Nesklúbbnum á Seltjarnarnesi, færðust þeir Sigurgeir og Sigmar upp í 1. og 2. sæti. Verðlaunaafhending fór fram í golfskálanum að loknum leik á laugardag og þar var þátttakendum boðið upp á hamborgara og franskar Góð þátttaka hjá krökkunum Meistaramót barna og unglinga hjá GV fór fram á mánudag og þriðjudag í síðustu viku. Leikið var í fjórum flokkum og þátttaka var góð en alls voru 36 kylfingar í mótinu. Unglingaflokkurinn lék 36 holu mót. Úrslit í unglingaflokkunum voru eftirfarandi: 14 ára og yngri unglingar 1. Kristófer Tjörvi Einarsson 2. Guðlaugur Gísli Guðmundsson 3. Andri Steinn Sigurjónsson 15 og 16 ára unglingar 1. Daníel Ingi Sigurjónsson 2. Lárus Garðar Long 3. Nökkvi Snær Óðinsson Í barnaflokkunum var keppt í drengjaflokki og stúlknaflokki og þar stóðu kylfingarnir sig með mikilli prýði að sögn Einars Gunnarssonar, golfkennara. GRILLUÐ SAMLOKA með skinku og osti, sósu og kryddi BEIKONBORGARI með osti, káli og hamborgarasósu KJÚKLINGASALAT með spartasósu LAMBA-KJÚLINGA SALAT með hvítlaukssósu DJÚPSTEIKTUR CHILIPIPAROSTUR með rifsberjasultu DJÚPSTEIKTIR LAUKHRINGIR í orly með sósu að eigin vali DJÚPSTEIKTIR KJÚKLINGANAGGAR með sósu að eigin vali DJÚPSTEIKTAR OSTASTANGIR með sósu að eigin vali DJÚPSTEIKTIR JALAPENOBELGIR með sósu að eigin vali OPIÐ Alla daga kl. 10 til 20 á Vigtartorgi. Nætursala um helgar kl. 00 til 05 á Skipasandi OSTBORGARI með osti, káli og hamborgarasósu FRANSKARPYLSA NÝR OG SPENNANDI MATSEÐILL 850 kr. 650 kr. 750 kr. 450 kr. 950 kr. 1000 kr. 1200 kr. 1450 kr.1450 kr. 1300 kr. 350 kr. 800 kr. HLÖLLABÁTAR DJÚPSTEIKTUR FISKUR m/ frönskum og sósu að eigin vali 1300 kr.1450 kr. SIGurGEIr JÓnSSon sigurge@internet.is Örlygur Helgi Grímsson sigurvegari í meistaraflokki. Lárus Garðar Long sigurvegari í 1. flokki. Örlygur Helgi Vestmanna- eyjameistari karla í 11. sinn :: Sara Jóhannsdóttir Vestmannaeyjameistari kvenna Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja:

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.