Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Qupperneq 16

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Qupperneq 16
° ° Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir situr ekki auðum höndum. Hún kom af stað fisksölu til Eyjamanna og annarra landsmanna í gegnum Böddabita. Þá keyrði hún með fisk á bændamarkaði á Suður- landi þar sem m.a. var til sölu brakandi ferskt grænmeti. Þá kviknaði hugmyndin um að koma glænýju grænmeti til Eyja og selja í Grænmetiskofanum. „Þetta eru nú engin geimvísindi,“ segir Þóra Hrönn sem er að byrja sína fjórðu viku í skúrnum á Vigtartorginu sem Emilía og Kalli notuðu í fyrra sem fiskbúð. „Ég er með alls konar grænmeti og líka ber og viðtökurnar eru ótrúlega góðar. Þetta er nú bara svona smá gæluverk‑ efni og það er frábært hvað fólk tekur vel í það,“ sagði Þóra Hrönn í gær. Hún er með opið þrisvar í viku og fer sjálf upp á land til að ná í grænmetið og berin. „Ég tek rúntinn einu sinni í viku og fer á fjóra bæi í kringum Flúðir. Fer að morgni og heim samdægurs. Ég er með opið frá klukkan 16.00 til 18.00 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga,“ segir Þóra Hrönn og úrvalið er nóg. „Ég er með alls konar grænmeti, gúrkur, tómata, kál, gulrætur, sveppi og það sem bændurnir eru með hverju sinni. Eykst úrvalið eftir því sem líður á sumarið. Berin; jarðar‑ berin og hindberin hafa algjörlega slegið í gegn og stundum fá færri en vilja. Ef veður og sjólag leyfa held ég þessu áfram fram á haustið eða eins lengi og fært er í Landeyjahöfn.“ S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s Eyjafréttir Síðastliðinn vetur óskaði þjóðhátíð‑ arnefnd eftir tillögum að nýju merki. Fimm tillögur bárust nefndinni og sagði Dóra Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags, í ávarpi sem hún flutti við opnun sýningarinnar, að eftir maraþonfund nefndarinnar hefði verið ákveðið að taka tillögu Gunnars Júlíussonar að nýju merki. Það þótti lýsandi fyrir hvað þjóðhátíðin stendur; brennan, flugeldar, tjöld, lundi og Ási í Bæ en hann hefði orðið 100 ára í ár. Eyjatónlistin skipar stóran sess á hverri þjóðhátíð og Ási er eins konar táknmynd hennar. Þá sagði Dóra Björk að þjóðhátíðar‑ nefnd hafi samþykkt að framvegis verði nýtt merki hannað á 10 ára fresti, næst þegar þjóðhátíðin verður 150 ára. :: Gunnar Júlíusson sigraði í samkeppni um 140 ára afmælismerki Þjóðhátíðar Nýtt merki á 10 ára fresti :: Þótti lýsandi fyrir hvað þjóðhátíðin stendur Grænmeti beint frá bónda :: Býður líka upp á ber sem slegið hafa í gegn Dóra Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags afhendir Gunnari Júlíussyni viðurkenningu. B ir ti st m eð fy ri rv ar a um in ns lá tt ar vi ll ur o g m yn da br en gl Opið Mán-fös kl. 7.30-19.00 / Lau. kl. 10-19 / Sun kl. 11-19 Vikutilboð SuSHi frá osushi Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30 Tökum niður pantanir ! 16.-22. júlí 2014 Heinz tómatsósa verð nú kr 298,- verð áður kr 3788,- Libresse innlegg verð nú kr 488,- verð áður kr 698,- Merrild kaffi 103 500 gr verð nú kr 698,- verð áður kr 1098,- Senseo púðakaffi 36 stk verð nú kr 698,- verð áður kr 998,- kjúklingabringur 900 gr frosnar verð nú kr 1998,- verð áður kr 2388,- Sumarleikur MERRiLD Sendu 5 toppa af Merrild á Merrild Sumarleikur, pósthólf 10078 Þú gætir unnið Stelton kaffikönnu. Sumarleikur SENSEO Sendu okkur 5 toppa af Senseo umbúðum Sumarleikur Senseo 2014, pósthólf 10078. og þú gætir unnið nýju Senseo kaffivélina! Grillmatur í úrvali !!

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.