Fréttir - Eyjafréttir - 16.09.2015, Side 20
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir
B
ir
ti
st
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
vi
ll
ur
o
g
m
yn
da
br
en
gl
Opið Mán-fös kl. 7.30-19.00 / Lau. kl. 10-19 / Sun kl. 11-19
VikuTILBoð
10. til 28. september 2015
SuSHI frá osushi
kemur til okkar á föstudögum kl.
17.00 með flugi! Tökum pantanir !
Nestle barnamatur
verð nú kr 298,-
verð áður kr 388,-
Sigdal hrökkkex
verð nú kr 498,-
verð áður kr 598,-
Þrif heimilisklútar
verð nú kr 368,-
verð áður kr 458,-
Maryland kex
verð nú kr 158,-
verð áður kr 198,-
Búrf hrossabjúgu 4 stk
verð nú kr 279,-
verð áður kr 558,-
Glútenfría hrískökur
verð nú kr 149,-
verð áður kr 218,-
Ballerinakex
verð nú kr 228,-
verð áður kr 298,-
Sveitabiti 1 kg
verð nú kr/kg 1198,-
verð áður kr/kg 1578,-
Búrf bláberjalæri
verð nú kr/kg 1398,-
verð áður kr/kg 1898,-
Hagnaður Ísfélags Vestmanneyja
árið 2014 var 24,8 milljónir
dollara, eða sem nemur tæpum
3,2 milljörðum íslenskra króna.
Eignir samstæðunnar í lok árs
voru 279,8 milljónir dollara, eða
um 36,8 milljarðar íslenskra
króna. Bókfært eigið fé í árslok
var 130,6 milljónir dollara, eða
tæpir 17 milljarðar króna og
eiginfjárhlutfall félagsins var
48,1%.
Þetta kemur fram á Vísi.is og sagðist
Stefán Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Ísfélagsins engu hafa við þetta
að bæta. Ísfélagið er með starfsemi í
Vestmannaeyjum og á Þórshöfn. Skip
félagsins eru uppsjávarskipin Álsey
VE, Heimaey VE og Sigurður VE og
togskipin Dala Rafn VE og Suðurey
VE. Sigurður VE bættist í flota
félagsins á síðasta ári og er eitt
öflugasta uppsjávarskip landsins.
Laun og launatengd gjöld sam-
stæðunnar voru 25,8 milljónir
dollara, rúmir 3,3 milljarðar
íslenskra króna. Ársverk samstæðu
voru samtals 283, ársverk móður-
félags voru 270 og fækkaði um 20
milli ára.
Hluthöfum fækkaði um tvo á árinu
og voru 137 í lok árs. ÍV fjárfest-
ingarfélag ehf. á um 88% útistand-
andi hlutafjár og er eini hluthafi
félagsins sem á yfir 10% hlut. ÍV
samstæðan á dótturfélögin Dala Rafn
ehf. og Fiskmarkað Þórshafnar ehf.
Heildarlaun og þóknanir til
stjórnenda samstæðunnar á árinu
2014 námu 1,4 milljónum dollara,
eða 180 milljónum íslenskra króna.
Aflahlutdeild og aflamark Ísfélags-
ins var á síðasta fiskveiðiári, sem
lauk 31. ágúst sl., í loðnu tæp 20%,
norsk-íslenskri síld, 20,2%, og síld
13,2%.
Í stjórn eru Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, stjórnarformaður,
Guðbjörg M. Matthíasdóttir,
Sigurbjörn Magnússon, Þórarinn
Sigurðsson og Einar Sigurðsson.
Stjórnendur félagsins eru Stefán
Friðriksson framkvæmdastjóri,
Eyþór Harðarson útgerðarstjóri og
Örvar Guðni Arnarson fjármálastjóri.
Framleiðslustjórar í Vestmannaeyjum
eru Björn Brimar, framleiðslustjóri í
frystihúsi og Páll Scheving, fram-
leiðslustjóri í mjölverksmiðju.
Framleiðslustjórar á Þórshöfn eru
Rafn Jónsson, framleiðslustjóri í
mjölverksmiðju og Siggeir Stefáns-
son, framleiðslustjóri í frystihúsi.
Ísfélag Vestmannaeyja :: Hagnaður 3,2 milljarðar:
Laun og launatengd
gjöld rúmir 3,3 millj-
arðar íslenskra króna
:: Ársverk samstæðu samtals 283
:: Fækkaði um 20 milli ára
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Um síðustu helgi fóru allar starfskonur á Sóla á Hjallaráð-
stefnu til Reykjavíkur. Sólasystur voru uppábúnar í anda
100 ára kosningaafmælis kvenna sem var þema ráðstefn-
unnar. Þær hlýddu á mörg spennandi erindi, m.a.
kynjafyrirlestur með Svandísi Önnu, Magga Pála var með
kraftmikið erindi og Jóhann Ingi sálfræðingur sömuleiðis.
Þar sem siglt var í Þorlákshöfn á fimmtudaginn þurftu
þær að biðja foreldra að aðstoða sig í lok dags. Helga
Björk, leikskólastýra, sagði að á Sóla væru einstakir
foreldrar og vildi senda bestu þakkir til þeirra.
Sólasystur á Hjallaráðstefnu