Fréttir - Eyjafréttir - 16.03.2016, Blaðsíða 10
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. mars 2016
Á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar í
byrjun mánaðarins var slegið
upp rokkmessu í Landakirkju af
feitari gerðinni. Landabandið sá
um tónlistina, prestur var séra
Guðmundur Örn, Gísli Stefáns-
son, tónlistarmaður og æsku-
lýðsfulltrúi predikaði og ung-
lingar í Æskulýðsfélaginu lásu
upp úr ritningunni.
Landabandið er þétt sveit, Gísli og
Sæþór Vídó sjá um gítarspil og
bakraddir, Kristinn plokkar
bassann, Þórir fer fimum fingrum
um hljómborðið og Biggi slær
trommur af allt að því guðlegri
næmni.
Það var Æskulýðsfélag Landa-
kirkju og KFUM & K í Vestmanna-
eyjum sem stóð að messunni. Það
skemmtilega var að þarna var eftir
áralangt hlé mættur Ólafur Kristján
Guðmundsson, einn albesti
rokksöngvari seinni ára á Íslandi
sem gerði garðinn frægan með
Hoffman. Það var vel til fundið því
fyrir um 20 árum síðan, í tíð Bjarna
Karlssonar og Jónu Hrannar
Bolladóttur, var haldin rokkmessa.
Voru það drengirnir í hljómsveitinni
D7, leiddir af söngvaranum Ólafi
sem þá fluttu rokkgospel af bestu
gerð.
Ólafur sýndi að hann hefur engu
gleymt og kannski aldrei verið betri
söngvari. Þegar best lét titruðu
ljósakrónur en enginn skaði hlaust
af. Hressileg kvöldstund þar sem
boðskapur Krists var í fyrirúmi, en
hann fór ekki alltaf með veggjum,
frekar en rokkið.
Áður hafa verið haldnar messur
með tónlist U2, Elvis, Johnny Cash,
Blúsbræðra og Pink Floyd en af
nógu er að taka, t.d eru Bítlarnir og
Stevie Wonder enn eftir.
Það gera sér ekki allir grein fyrir
fjölbreyttu starfi Tónlistarskól-
ans. Á árlegum degi Tónlistar-
skólanna í mars gefst tækifæri
til að kíkja inn fyrir og sjá og
heyra það sem þar fer fram.
Á Degi tónlistarskólanna í ár var
boðið til fjölbreyttrar veislu í
Tónlistarskólanum sem hófst með
leik Lúðrasveitar skólans í salnum á
neðstu hæð. Þegar ofar dró mátti sjá
nemendur leika á gítara, trommur
píanó og fjórir kennarar brugðu
bogum á fiðlur. Þar var líka
rokksveit sem hjólaði í David
Bowie eins og ekkert væri sjálf-
sagðar.
Já, það var gaman þessa stund í
Tónlistarskólanum þar sem
nemendum hefur fækkað nokkuð
undanfarin ár en Stefán Sigurjóns-
son, skólastjóri var ánægður með
daginn og sagði að nokkrir hefðu
skráð sig í skólann. Það er því
sjálfsagt fyrir áhugasama að kíkja
við hjá Stefáni og hans fólki og sjá
hvað er í boði í tónlistarnámi.
Tónlistarskóli Vestmannaeyja:
Vel heppnaður Dagur
tónlistarskólanna
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Rokkað feitt í Landakirkju með
Óla Guðmunds í broddi fylkingar