Fréttir - Eyjafréttir - 19.05.2016, Page 1
Eyjafréttir
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Hlýlegt og
notalegt Heimililagnir lagnamenn >> 12
ester og
tHeodór best >> 18 >> 16
Vestmannaeyjum 19. maí 2016 :: 43. árg. :: 20. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Í síðustu viku lagði Ásmundur
Friðriksson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi
fram fyrirspurn til innanríkis-
ráðherra, Ólafar Nordal um
rekstur Herjólfs. Hvort afkoman
hafi batnað með lægra olíuverði
og ef svo sé hvort hægt sé að
lækka fargjöld og farmgjöld.
Spurningarnar eru fimm og er sú
fyrsta hver voru árleg framlög
ríkissjóðs árin 2013 til 2015 til
reksturs ferjunnar Herjólfs? Númer
tvö, hver var árleg rekstrarafkoma,
hagnaður/tap, Herjólfs á sama
tímabili?
Þriðja, hvernig hefur gjaldskrá
fargjalda og farmflutninga breyst á
árunum 2013 til 2015? Fjórða, hefur
lækkun olíuverðs skilað sér í bættri
afkomu í rekstri Herjólfs? Fimmta,
hefur afkoma útgerðar Herjólfs
batnað á umræddu tímabili? Ef svo
er, er óskað upplýsinga um hvernig
ráðherra hafi tryggt þeim sem nýta
sér þjónustu Herjólfs lægri fargjöld
og farmgjöld.
Ásmundur óskar eftir skriflegu
svari.
Frumvarp um heimild til útboðs
nýrrar Vestmannaeyjaferju liggur
fyrir Alþingi þar sem gert er ráð fyrir
að kostnaður ríkisins vegna kaupa á
nýrri ferju nemi allt að 4,8 millj-
örðum króna. Verði frumvarpið að
lögum er Vegagerðinni heimilt að
bjóða út annars vegar að gerður verði
þjónustusamningur um smíði og
rekstur skips til allt að tólf ára eða að
samið verði um smíði skips fyrir allt
að 4,8 milljarða á verðlagi í árslok
2015.
Gert er ráð fyrir að við lok hins tólf
ára frests eignist ríkið skipið á 36%
af kaupverði sem er tæpir 1,5
milljarðar.
Gangi allt eftir verður hægt að
auglýsa útboð á næstu vikum og
opna þau í haust. Miðað er við að
nýtt skip verði afhent um mitt ár
2018 eða fyrr.
Frumvarp um útboð á nýrri ferju:
Tilbúin um mitt ár 2018
Alþingi ::
Ásmundur um
rekstur Herjólf:
Hefur
hann
batnað
og er
það að
skila sér?
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Síðastliðinn laugardag hélt níu manna hópur úr Eyjum í leiðangur upp á hæsta tind Íslands. Veðrið var með
eindæmum gott og gekk gangan vonum framar. Hægt er að lesa nánar um ferðina á bls. 10.