Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2016, Síða 15
15Eyjafréttir / Miðvikudagur 6. júlí 2016
Meistaraflokkur karla tryggði sér
líkt og stelpurnar sæti í undanúr-
slit Borgunarbikarsins í vikunni.
ÍBV er því eina liðið sem mun
eiga tvö lið í undanúrslitum
bikarkeppninnar.
Strákarnir fóru í Kópavoginn og
áttu þar erfitt verkefni fyrir höndum
þar sem Breiðablik hefur verið að
spila vel og komu þeir meðal annars
til Eyja og tóku öll stigin með sér.
Þeir virtust vera með yfirhöndina í
leiknum og komust yfir skömmu
fyrir hálfleikinn, þar skoraði Gísli
Eyjólfsson eftir dapran varnarleik
Eyjamanna. Ekki batnaði staðan
þegar fyrirliði Blika, Arnór Sveinn
Aðalsteinsson, tvöfaldaði forystuna
í upphafi síðari hálfleiks.
Þá hófst ótrúleg endurkoma ÍBV
þar sem Hafsteinn Briem skoraði
skallamark á 50. mínútu. Fjórum
mínútum seinna skoraði Simon
Smidt, sem var óvænt í byrjunarlið-
inu mark, eftir sendingu Arons
Bjarnasonar. Simon skoraði aftur
rúmum fimm mínútum seinna þegar
hann negldi boltanum á nærstöng-
ina.
Þarna var ÍBV búið að breyta
stöðunni úr 2-0 í 2-3 á einungis níu
mínútum. Blikar voru ekki
hættulegir eftir markið og ÍBV því
áfram.
Bjarni Jóhannsson var að sjálf-
sögðu ánægður með sína menn í
leikslok og hafði þetta um málið að
segja. „Þessu lauk vel fyrir okkur,
eftir að hafa lent í hræðilegri brekku
fyrir hálfleik og svo strax í seinni.
Við vorum sjálfum okkur verstir í
fyrri hálfleik, vorum að spila
nokkuð agað en vorum ekki nógu
klókir að losa okkur úr pressunni
þeirra,“ sagði Bjarni og hélt áfram.
„Það var frábært að ná þessu marki,
strax eftir að þeir skora. Það fýraði
upp í mínum mönnum, það var
hrikalegur neisti í þeim og við
kláruðum þetta með stæl.“
Aðspurður hvort að hann hafi ekki
verið svartsýnn eftir annað mark
Blika segir Bjarni svo ekki vera.
„Maður hafði ekki tíma í að vera
svartsýnn, eins og við ræddum í
hálfleik, eftir þrjátíu sekúndur fór
hálfleiksræðan út í veður og vind.
Frábær karakter að koma til baka og
loksins náðum við að hundskast til
að ná forystu eftir að hafa lent
undir. Ég vona að það verði vani hér
eftir,“ sagði Bjarni að lokum í
viðtali á Fótbolta.net.
Íþróttir
u m S j ó n :
guðmundur tómaS
SigFúSSon
gudmundur@eyjafrettir.is
Framundan
Fimmtudagur 7. júlí
Kl. 17:15 Grindavík - ÍBV/
Keflavík
2. flokkur kvenna
Kl. 18:00 ÍBV/Selfoss - HK
3. flokkur kvenna
Kl. 17:00 ÍBV - Snæfellsnes
4. flokkur karla
Kl. 15:00 Afturelding - ÍBV
5. flokkur karla ABCD-lið
Föstudagur 8. júlí
Kl. 18:00 KR - ÍBV
Pepsi-deild kvenna
Kl. 16:30 ÍBV - Þróttur R.
4. flokkur kvenna AB-lið
Sunnudagur 10. júlí
Kl. 11:30 ÍBV/Selfoss - Grótta/
KR 3. flokkur kvenna
Mánudagur 11. júlí
Kl. 18:00 Valur - ÍBV
Pepsi-deild karla
Kl. 18:00 Selfoss - ÍBV
2. flokkur karla
Kl. 15:00 ÍBV - Njarðvík
5. flokkur karla AB-lið
Kl. 15:00 ÍBV - Keflavík 2
5. flokkur karla CD-lið
Kl. 17:40 ÍBV 2 - HK 3
5. flokkur karla D-lið
Þriðjudagur 12. júlí
Kl. 18:00 ÍBV/KFR - ÞrótturR.
3. flokkur karla
Kl. 16:30 ÍBV - Skallagrímur
4. flokkur karla
Kl. 16:30 ÍBV - RKV
4. flokkur kvenna A-lið
Kl. 18:00 ÍBV - Stjarnan 2
4. flokkur kvenna B-lið
Evrópumeistaramótið í kraftlyft-
ingum var haldið í Finnlandi nú á
dögunum, en þar voru tveir
Eyjamenn sem kepptu, þeir Jóhann
Gíslason og Hermann Haraldsson.
Eyjapeyjarnir stóðu sig með stakri
prýði og slógu bæði Evrópumet og
heimsmet. Jóhann Gíslason keppti í
kraftlyftingum (öllum greinum) í
-110 kg flokki M4 (55–59 ára).
Jóhann sló heimsmet í hnébeygju
þar sem hann lyfti 232,5 kg. Jóhann
tók einnig 140 kg. í bekkpressu,
setti bæði Evrópumet og heimsmet í
réttstöðulyftu, en þar lyfti hann 240
kg. Samanlagður árangur Jóhanns
var 612,5 kg, sem var einnig
heimsmet. Hann fékk 8 af 9 lyftum
gildar og varð Evrópumeistari.
Hermann Haraldsson keppti bæði í
bekkpressu og réttstöðulyftu í -110
kg. M4 (55 – 59 ára). Þar lyfti hann
165 kg. í bekkpressu og varð
Evrópumeistari og í réttstöðulyftu
lyfti hann 235 kg. sem var heims-
met og varð hann Evrópumeistari.
Bekkpressa 165 kg og varð
Evrópumeistari. Glæsilegur árangur
hjá þessum flottu kraftajötnum úr
Eyjum.
Stelpurnar okkar unnu stórsigur
í Suðurlandsslagnum gegn
Selfossi í 8-liða úrslitum Borg-
unarbikarsins á mánudaginn en
stelpurnar voru frábærar.
ÍBV byrjaði leikinn miklu betur og
yfirspiluðu slakt lið Selfoss út um
allan völl. Aðallega voru Selfyss-
ingar í vandræðum aftast þar sem
miðverðir þeirra litu út eins og
gamalmenni við hlið framherja
ÍBV. Þær Cloe Lacasse og Rebekah
Bass áttu mikinn þátt í öllum
mörkum ÍBV í leiknum.
Það var aðallega hraði þeirra sem
lét Selfoss líta út eins og slakt 4.
flokks lið inni á vellinum og var á
tíðum pínlegt að horfa á það. Fyrsta
markið kom eftir látlausar sóknir
ÍBV þar sem Cloe vann skallaein-
vígi og kom boltanum á Rebekah
Bass sem var komin ein í gegn og
kláraði færið snyrtilega.
Næsta mark skoraði Cloe upp á
eigin spýtur en hún fékk boltann
nokkuð aftarlega, lagði af stað, inn í
teig og kláraði með fallegu vinstri
fótarskoti framhjá markverði
gestanna. Þriðja markið kom rétt
fyrir hálfleik en þar komst Rebekah
fyrir aftan miðverði Selfoss og kom
boltanum inn í teig á Cloe sem
skoraði með hnénu.
Seinni hálfleikur byrjaði eins og sá
fyrri, ÍBV sótti og sótti og sótti.
Cloe skoraði þriðja mark sitt í
leiknum eftir einleik. Hún fékk
boltann frá Sigríði Láru Garðars-
dóttur upp í hornið, lék inn á
völlinn, framhjá varnarmönnum
Selfoss og bombaði boltanum í
nærhornið.
Sama staða kom upp nokkru
seinna, Cloe fékk boltann úti á
kantinum, lék inn í teiginn en nú
var hún felld af þreyttum varnar-
mönnum Selfoss. Sigríður Lára
steig á punktinn og kom boltanum
af miklu afli í netið. 5-0 því
lokatölur í þessum frábæra leik
stelpnanna okkar.
Ian Jeffs var að vonum ánægður
með sigurinn og hafði mikið að
segja í viðtali eftir leik á Fótbolti.
net.
„Ég er mjög ánægður, þetta var
flottur leikur í dag, það gekk allt
upp varnarlega og sóknarlega. Við
vorum hundsvekkt með úrslitin á
móti Breiðablik og ég var mjög
ánægður með hvernig þær náðu að
hreinsa þetta út og sýna góðan
karakter í daga,“ sagði Ian.
„Við fórum vel yfir sóknarleikinn,
við tókum mjög góða æfingu,
uppspilsæfingu. Það gekk mjög vel
í dag, við komumst bakvið vörn
þeirra, oft í fyrri hálfleik. Við
fundum framherjana í fætur og
uppspilið gekk mjög vel í dag. Það
kom meiri þolinmæði og meira
sjálfstraust í dag.
Það er ótrúlegt að hún sé ekki búin
að skora mark fyrr en í dag. Mér
finnst hún hafi verið okkar besti
leikmaður á tímabilinu hingað til.
Við vorum að bíða eftir þessu, hún
var að komast í færi og leggja upp
mörk. Þetta var að detta inn og
gerði það í dag, hún var frábær eins
og margir leikmenn í dag.
Við reyndum að nýta okkar
styrkleika og þeirra veikleika. Þær
skildu mikið svæði fyrir aftan
öftustu línu, við þurftum ekki að
spila það mikið í fyrri hálfleik,
settum boltann bara fyrir aftan
varnarlínuna þeirra. Þær læstu á
þetta í seinni hálfleik en þá fundum
við stelpurnar í fæturnar og
byrjuðum að spila meira,“ sagði Ian
Jeffs að lokum en hann var virki-
lega ánægður með sínar stelpur.
Knattspyrna | Borgunarbikar kvenna :: 8 liða úrslit :: ÍBV 5 - 0 Selfoss
Stórsigur í Suðurlands-
slagnum í bikarnum
Knattspyrna | Borgunarbikar karla :: 8 liða úrslit ::
Breiðablik 2 - 3 ÍBV
Frábær endurkoma
:: Sneru leiknum sér í hag á níu mínútum í seinni hálfleik
Cloe Lacasse átti stórleik á mánudaginn og skoraði þrennu.
Pablo Punyed gegn Breiðablik á Hásteinsvelli á dögunum.
Jóhann Gíslason.
Kraftlyftingar | Evrópumeistaramót
Eyjapeyjar
gerðu gott mót
í Finnlandi
:: Slógu heimsmet og Evrópumet