Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2016, Side 16
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir Vikutilboð
13. til 19. júlí 2016
B
ir
ti
st
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
vi
ll
ur
o
g
m
yn
da
br
en
gl SuShi frá osushi
Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30
Tökum niður pantanir !
ath! Opið aLLa DaGa tiL KL. 21.00
B
ir
ti
st
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
vi
ll
ur
o
g
m
yn
da
br
en
gl
Grillmatur
í úrvali !
Hin árlega sjö tinda ganga var haldin
í Vestmannaeyjum síðastliðinn
laugardag í blíðskapar veðri. Gangan
hófst klukkan 11.30 við Klaufina
þetta árið og voru þáttakendur
rúmlega 40. Fyrst var gengið
hringinn í kringum Stórhöfða og eftir
það var arkað uppá Sæfell, Helgafell,
Eldfell og Heimaklett. Á Heimakletti
tóku á móti göngugörpunum
björgunarsveitarmenn frá Björgunar-
félagi Vestmannaeyja og sáu þeir um
að allir kæmust heilir á húfi upp og
niður. Eftir Heimaklett var gengið
upp á Hánna og yfir Molda og
Eggjarnar og svo niður Dalfjallið.
Einnig voru nokkrir aðilar í göngunni
sem fóru upp á Blátind. Alls voru
gengnir 16 kílómetrar. Fyrsti
göngugarpurinn kom í mark á
rúmum þremur klukkustundum og
þeir síðustu á um sex klukkustund-
um, þannig að hver og einn gekk á
sínum hraða og tók sinn tíma í þetta.
Að sögn Katrínar Laufeyjar, sem er
ein af skippuleggjendum göngunnar
fór gangan vel fram og allt gekk eins
og í sögu. ,,Við vorum alveg
svakalega heppin með veður og það
gekk allt eins og það átti að ganga.
Þátttaka var góð og það voru allir í
skýjunum með daginn. Alls söfnuð-
ust um 80.000 krónur en sá peningur
rennur til Krabbavarnar í Vestmanna-
eyjum.“ Katrín segir að ákveðið hafi
verið að halda gönguna á næsta ári á
Jónsmessunni, þann 24. júní og en þá
á að labba að kvöldi til, en stefnt er
að gangan hefjist klukkan 19.00 að
ári. ,,Við ákváðum í kjölfar göng-
unnar í ár að hafa hana á Jónsmess-
unni að ári, eins og hún var í upphafi.
Það er ákveðin stemning að ganga að
kvöldlagi og því tilvalið að taka það
upp aftur á næsta ári. Við bíðum
spennt eftir göngunni á næsta ári því
þetta er svo skemmtileg hefð sem
komin er til að vera hérna í Eyjum.”
Katrín vildi að lokum koma á
framfæri innilegum þökkum til allra
sem tóku þátt í göngunni. ,,Það er
svo frábært að ganga á fjöllin hér í
Eyjum og þá sérstaklega í svona
góðum félagsskap eins og mætti til
göngu í ár. Hlökkum til að sjá sem
flesta að ári og þökkum fyrir okkur í
ár.”
Vel heppnuð sjö
tinda ganga
SædÍS eVa BirGiSdóttir
seva@eyjafrettir.is
Sara og Rakel Perla á toppi Helgafells.
Veðrið lék við göngufólkið á laugardaginn.
gevalía kaffi 500 gr
verð nú kr 698,-
verð áður kr 998,-
Hleðsla 250 ml
verð nú kr 198,-
verð áður kr 255,-
Capri sonne 10x200 ml
verð nú kr 588,-
verð áður kr 698,-
maryland kex
verð nú kr 95,-
verð áður kr 198,-