Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Qupperneq 4

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Qupperneq 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017 Ég vil þakka Betsý kærlega fyrir áskorunina. Ég ætla að gefa uppskrift af einföldum en mjög góðum kjúklingarétt sem ég hef haft í pallíettuklúbbnum oftar en einu sinni og mjög góðum ís í eftirrétt sem við fengum einu sinni í klúbb hjá Guðbjörg uLilju pallíettu!! Góður kjúklingaréttur Ég fer sjaldnast eftir uppskriftum þannig að hlutföllin eru ca! Ca. 6 kjúklingabringur skornar í bita. 1 krukka rautt pestó (sett saman í poka með kjúklingnum, því velt saman og látið liggja í ca 1 klst.). Kjúklingablandan er síðan sett í eldfast mót. 1 krukka rautt pestó og ca 100-150 gr. rjómaostur hrært saman og sett yfir kjúklinginn. Döðlur brytjaðar yfir og fetaostur að vild. Sett í ofn í 180° í ca 40-50 mín. Borið fram með salati og hrís- grjónum. Kanilís með nóakroppi og karmellu-pipp 6 egg 6 msk. sykur 150 gr. dökkur púðursykur 7 dl. rjómi, þeyttur 200 gr. Konsum-súkkulaði fræ úr einni vanillustöng (má sleppa) 1 tsk vanilludropar 1 tsk kanill. Þeytið eggjarauður og sykur varlega saman þar til blandan verður ljós og létt. Blandið púðursykrinum varlega saman við með sleif. Þeytið rjómann og blandið honum saman við með sleif og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Grófsaxið 100 gr. súkkulaði og blandið saman við ísblönduna. Blandið því næst fræjum úr einni vanillustöng, vanilludropum og kanil saman við. Þeir sem vilja geta síðan þeytt eggjahvíturnar þar til þær verða stífar og blandað þeim saman við ísinn svo það verði meira úr honum eða geymt þær til annarra nota. Hellið ísblöndunni í hringlaga smelluform, bræðið hin 100 gr. af súkkulaðinu, hellið yfir ísinn og létthrærið í forminu. Frystið ísinn í lágmark 5 klst. Toppur 1 poki Nóa kropp 100 gr karmellupipp og 3 msk. rjómi, brætt saman. Skreytið ísinn með Nóa kroppi og bræðið karmellupippið ásamt rjómanum og hellið yfir. Upp- skriftin dugar fyrir 10-12 manns. Í pallítteuklúbbnum eru bara myndarlegar konur þannig að ég ætla að halda þessu innan pallíettu- klúbbsins og skora næst á Guðnýju Björgvinsdóttur en hún er snillingur, hvort sem er í hannyrðum eða matargerð og er hafsjór af góðum matar- og kökuuppskriftum. Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu? Al-Anon fyrir ættingja og vini alkóhólista Fundir á þriðjudögum kl. 20.30 Byrjendafundir kl. 20.00 að Heimagötu 24 AA fundir eru haldnir sem hér segir að Heimagötu 24: Mánudagur: kl.20.30 Miðvikudagur: kl.20.30 Fimmtudagur: kl.20.30 Föstudagur: kl.23.30 Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur Sunnudagur: kl.11.00 Athugið, allir fundir reyklausir Móttaka nýliða hálfri klst. fyrir hvern auglýstan fundartíma. Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag, hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn fundartíma og eru 2 klst. í senn. Sími 481 1140 Matgæðingur vikunnar Landakirkja Föstudagur 7. júlí Kl. 16:00 Tónleikar Ólafs F. Magnússonar sem flytur lög sín sem sum fjalla um Eyjar og nýtur liðsinnis hins ástsæla Gunnars Þórðarsonar. Sunnudagur 9. júlí Kl. 11:00 Göngumessa frá Landa- kirkju að gíg Eldfells og að Stafkirkju. Samkirkjuleg guðsþjón- usta þar sem félagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja leika. Í lok messu mun sóknarnefnd bjóða í kaffi. Hvítasunnu- kirkjan Fimmtudagur kl. 20:00 Biblíu- og bænastund. Föstudagur kl. 20:30 AA fundur. Sunnudagur kl. 11:00 Göngumessa frá Landa- kirkju niður á Skans. Kirkjur bæjarins: Aðvent- kirkjan Laugardagur 8. júlí kl. 11:30 Biblíurannsókn fullorðna og barnabiblíuskóli. kl. 12:00 Samkoma. Ræðumaður: Gavin Anthony Eyjamaður vikunnar Dreymir um að komast í landsliðið Andri Erlingsson, leikmaður 6. flokks ÍBV í fótbolta, var einn þeirra fjöl- mörgu drengja sem tóku þátt í hinu árlega Orkumóti sem fram fór í síðustu viku. Fyrir vasklega fram- göngu á mótinu var Andri valinn í Landsliðið, sem samkvæmt hefð- inni keppti á móti Pressuliðinu, ásamt því að vera valinn í úrvalslið mótsins. Andri er Eyjamaður vikunnar. Nafn: Andri Erlingsson. Fæðingardagur: 29.06.2007. Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar. Fjölskylda: Mamma og pabbi, Sandra systir og Elmar bróðir. Draumabíllinn: Lamborghini. Uppáhaldsmatur: Kjöt í karrý hjá ömmu. Versti matur: Humar. Uppáhalds vefsíða: Youtube. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Rapp. Aðaláhugamál: Fótbolti. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Mig langar helst að hitta Neymar. Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Skíðasvæðin í Austurríki. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Neymar. ÍBV og SG Empor Berlín. Ertu hjátrúarfull/ur: Hvað er að vera hjátrúarfullur? Stundar þú einhverja hreyfingu: Já, er oft að hreyfa mig í fótbolta, körfubolta, handbolta, sundi og í golfi. Uppáhaldssjónvarpsefni: Henry Danger. Hvað fannst þér skemmtilegast við Orkumótið: Að keppa er skemmtilegast. Var ekki gaman að vera valinn í Orkumótsliðið og landsliðið: Jú, bara mjög gaman. Ætlar þú að fylgjast með EM: Já. Hvert stefnir þú í fótbolta: Mig dreymir um að komast í landsliðið. Andri Erlingsson er Eyjamaður vikunnar Kjúklingur og kanilís Kolbrún Matthíasdóttir er matgæðingur vikunnar Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma Svana Þ. Ingólfsdóttir Klébergi 13, Þorlákshöfn lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 19. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og umhyggju. Kristján Sigmundsson, Ragnheiður Inga Kristjánsdóttir, Ómar Björn Stefánsson, Elías Rúnar Kristjánsson, Ásta Rut Ingimundardóttir, Sigmundur Karl Kristjánsson, Þóra Hjördís Þorsteinsdóttir, María Kristjánsdóttir, Albert Guðjónsson, Erna M. Kristjánsdóttir, Sören Mogensen, Klara Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Afar áhugaverð sýning verður sett upp um Goslok í Einarsstofu í Safnahúsinu. Um er að ræða afrakstur fjölmargra einstaklinga undir stjórn Péturs Steingrímssonar við söfnun örnefna í Vestmanna- eyjum. Á sýningaspjöldum er dreginn saman fjöldi örnefna og sýnt á myndrænan hátt hvar í landslaginu þau eru. Á borðum verða blöð og penni og eru áhorfendur vinsam- legast beðnir um að rita þar athugasemdir, leiðréttingar eða viðbætur því hugmyndin er að safna saman á einn stað allri þeirri þekkingu sem unnt er að ná í um örnefni í Eyjum. Mikilvægt er að láta nafn og símanúmer fylgja því haft mun verða samband við þá sem koma með gagnlegar upplýsingar. Meðan á sýningu stendur mun áhugahópur um skráningu örnefna í Vestmannaeyjum boða til opins fundar þar sem örnefnin eru skýrð nánar og tekist á um ólíkar túlkanir og staðsetningar sumra örnefnanna. Söfnun örnefna í nærumhverfi er afar nauðsynleg í nútímanum þar sem sú kynslóð sem þekkti að heita mátti hverja þúfu og gat rakið sögur og viðburði sem þeim tengdust er nú sem óðast að týna tölunni. Meginmarkmiðið er að sú þekking sem fólgin er í örnefnum í nærum- hverfi Vestmannaeyja haldi áfram að vera lifandi veruleiki fyrir sem flesta. Ástæða er til að hvetja sem flesta til að líta við í Einarsstofu og skoða sýninguna. Fréttatilkynning. SUÐUR-SETI NORÐUR-SETI Þau eru ófá örnefnin í Eyjum. Goslok 2017 :: Örnefni í Vest- manna- eyjum :: Ný sýning í Einarsstofu Pétur Steingrímsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.