Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Qupperneq 10

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Qupperneq 10
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017 Eftir fund ræddi blaðamaður við þau James Burleigh og Christine Dure-Smith frá Merlin en bæði eru þau vongóð og bjartsýn fyrir komandi tímum. „Þetta hefur tekið lengri tíma en við höfðum vonað en við er samt bjartsýn,“ sögðu þau James Burleigh og Christine Dure-Smith þegar blaðamaður spurði út í framvindu mála. „Öll okkar samtöl við fólk hérna á Íslandi hafa verið jákvæð en það eru engin fordæmi fyrir svona löguðu, þetta er fordæmið, þannig að allir vilja vera vissir um að hér sé rétt staðið að verki. Þetta verkefni kom mjög óvænt þannig allir þurfa að fá sínar skýringar á því og þurfum við að sýna þolinmæði,“ sagði James. Hvernig fannst ykkur viðbrögð fólks hér í dag? „Mjög góð, við erum í skýjunum. Augljóslega skildum við ekki það sem fram fór á íslensku en maður sá það í andlitum fólks að það er jákvætt gagnvart þessu og ánægt að fá nánari skýringar. Gagnsæi skiptir miklu máli svo fólk skilji ástæður okkur fyrir þessu verkefni. Þetta snýst ekki um neinn gróða heldur að gera hið rétta í stöðunni en það getur hljómað framandi í eyrum fólks þegar stórt fyrirtæki eins og Merlin er annars vegar,“ sagði James. Á öllum þeim stöðum sem heyra undir Merlin er það stefna fyrir- tækisins að notast við heimamenn eins og unnt er. „Jafnvel þótt við verðum með erlenda sérfræðinga til að byrja með þá viljum við þjálfa upp heimamenn svo þeir geti tekið við innan fárra ára. Í verkefni sem þessu, þar sem höfuðtilgangurinn er að gera það rétta í stöðunni, er mjög mikilvægt að samfélagið í heild sinni finnist það vera partur af verkefninu og verkefnið partur af þeim. Að því leyti finnst okkur Keikó verkefnið vera frábrugðið því sem við erum að gera þar sem þau voru frekar mikið út af fyrir sig. Við viljum vera staður fyrir Vestmanna- eyjar frekar en fyrir Merlin,“ sagði Christine. Hvað mun þetta verkefni gera fyrir Vestmannaeyjar sem samfélag? „Þetta er mjög áhugavert. Það sem við höfum orðið var við hingað til er að það er mjög fjölbreytt verslun hérna og mikil kunnátta sem við höfum þegar sett okkur inn í, hvort sem það eru verktakar eða aðrir þá eru allir tilbúnir til að vinna með okkur. Þetta mun svo sannarlega skila enn einu stóra verkefninu til bæjarfélagsins sem í augnablikinu er í miklum framkvæmdum eins og allir vita. En við verðum líka að fara varlega því verkefni á þessari stærðargráðu og með þennan tilgang sem á sér engin fordæmi mun vekja athygli og fá mikla umfjöllun. Eyjan hefur sínar takmarkanir stærðarlega séð, hún getur ekki tekið á móti milljónum ferðamanna og verðum við því að varðveita það sem hún hefur upp á að bjóða og taka réttar ákvarðanir,“ sagði James. Mun taka tíma og þjálfun að venjast nýjum aðstæðum Undir hvaða kringumstæðum þurfa hvalirnir að dvelja innandyra? „Við höfum augljóslega ekki fullkomlega tæmandi rannsóknir á veðráttunni frá degi til dags, hvort sem það er ölduhæð, vindur eða annað. Víkin er nokkuð vel varin frá náttúrunnar hendi og getur verið allt að fjögurra metra ölduhæð fyrir utan hana án þess að það hafi áhrif á víkina sjálfa. Aftur á móti geta verið sterkir straumar og hringiður neðan- sjávar í víkinni og fyrir hvíthvali sem hafa verið í sundlaugum tekur tíma og þjálfun að venjast þessum aðstæðum. Fyrstu veturna þurfa hvalirnir líklega að koma inn en það er alls ekki víst en við mundum aldrei gera neitt sem gæti stofnað lífi þeirra og heilsu í hættu. Þangað til þeir verða nógu sterkir munum við hafa varann á,“ sagði James og bætir við að það sé nokkuð auðveld aðgerð að koma hvölunum inn í hús. „Það verður auðvelt í saman- burði við það að ferðast með hvalina í 35 klst. frá Shanghai.“ Þegar talið barst að því hvort hvalirnir myndu þrífast í kletts- víkinni benti Christine á að Keikó hafi plummað sig vel alveg þangað til hann átti að fara að lifa í villtri náttúru. „Þessi dýr eru mjög félagslynd og eru þessir þrír hvalir mjög vanir fólki. Ef bátur rennur upp að víkinni munu þeir vilja koma og rannsaka hvað sé um að vera og sömuleiðis þegar fólk er að klifra í fjöllunum, þeim þykir það áhugavert því hingað til hafa þeir nánast bara fengið að sjá öskrandi kínversk börn. Þetta mun vera fullkomlega frábrugðið því sem þeir hafa átt að venjast og alveg pottþétt betra.“ Kynningarfundur Merlin Entertainments: Engin fordæmi fyrir svona löguðu :: Þurfum að sýna þolinmæði :: Fullkomlega frábrugðið því sem hvalirnir hafa átt að venjast og alveg pottþétt betra Heimkynni hvalanna í Klettsvík verður 1 km².Rauða línan sýnir leiðina út í kvína frá bryggju. Eins og kortið sýnir verður safnið stórt í sniðum. Einar KriStinn HElgaSon einarkristinn@eyjafrettir.is Fulltrúar Merlin á kynningarfundinum í Eldheimum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.