Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Síða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Síða 14
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017 ekki gosið þá væri Landaeyjahöfn ekki vandamálið heldur inn- siglingin hjá okkur. Því hér var bara rótsjór bara í ákveðnum áttum og ekki hægt að fara hér inn og út sko. Hann bendir ennfremur á að ef að aðstæður við innsiglinguna hefðu ekki lagast væri enn erfiðara að búa í Eyjum í dag. Kröfurnar hafa aukist þegar kemur að samgöngum og fjarskiptum og því yrði grundvöllur fyrir byggð í Vestmannaeyjum veikur ef samgöngurnar væru verri en þær eru í dag. Samfélagið er svo gjörbreytt Þegar ég spyr þau eldri út í hvaða þýðingu gosið hefði fyrir Vest- mannaeyjar í nútíð bentu þau á að það sé löngu liðin tíð að Eyjamenn geti notað gosið og hörmunga tengt því til að fá stærri hlut af þjóðar- kökunni og ná fram betri gæðum í samfélaginu. - Ég held sko... samfélagið er svo gjörbreytt. Við erum náttúrulega orðin svo blönduð. Mér finnst svona gosið ekki... ég horfi ekki á gosið sem neitt einhverja lausn fyrir okkur Vestmannaeyinga á hvorki... þið sjáið með ferðir eða samgöngur eða sjúkrahúsið og svona. Það er engin hjálp í gosinu lengur, ekki finnst mér það. Það er bara túrisminn sem er yfir stuttan tíma. Það er ekki útaf gosinu held ég eingöngu. Það er margt annað sem spilar inn í en það er alltaf áræðni hérna. Menn eru að reyna en við erum bara á eyju. Það er bara grundvallarmunur að búa á svona eyju eða á fastalandinu. Það er... og sumir bara skilja það ekki. Nú ég er búinn að búa erlendis. Ég flutti nú tvisvar erlendis og maður hefur svona samanburð. Búa í stórborg og litlum bæjum og... þetta samfélag hér er engu líkt. Það er þessi áræðni sem á kannski rætur sínar enn lengra aftur en í gosið. Hér öldum saman voru útvegsbændur að berjast við hafið og skipskaðar og manntjón voru hlutir sem samfélagið þurfti reglulega að takast á við. Ásamt því minnast þau á samstöðuna en setja spurningamerki við að næstu kynslóðum takist að viðhalda henni. - Ég held að það sé þessi samstaða og ég er svoldið hrædd við það að þegar þessi kynslóð sem upplifði gosið fellur frá þá verði... ég veit ekki... mér finnst þetta vera svona... ok það er eitthvað verkefni þarna og við förum og tæklum það. Ég held að þetta sé eins við klárum bara þetta verkefni sjálf... mikið til... ég er svo hrædd um það... að kynslóð- irnar sem koma lifa á fornri frægð eða einhvern veginn, þið skiljið hvað ég á við. Þetta er svoldið orðið ég um mig frá mér til mín samfélag í dag, en við vitum þegar á reynir að þá er samtakamátturinn ótrúlega sterkur og við höfum alveg sýnt það. Þegar þau eldri eru spurð út í hvort þau sjái jákvæðar afleiðingar af gosinu eru þau sammála þeim yngri þegar kemur að vandanum við innsiglinguna sem leystist með skjólinu af nýja hrauninu. Til viðbótar nefnir einn stórt vandamál sem lengi hafði verið í uppsiglingu því mikil uppbygging hafði verið í húsbyggingum í Vestmannaeyjum frá því á 5. og 6. áratugnum og fram að gosi. - Já, Helgafellið var að hverfa og gryfjan þarna inni í hún var orðin svakalegt svað. En þarna fengum við byggingarefni þannig að þó að hús foreldra minna hafi farið undir og hverfið mitt og allt svona þá held ég að þetta hafi í raun og veru verið svakaleg blessun fyrir þetta byggðarlag. Grunnþekking byggð á gamansögum Það verður að segjast eins og er að þessi orð segja mikið um hvernig eldri kynslóðir hugsuðu til að takast á við gosið. Hugarfar margra snerist og snýst um að sjá ljósið í myrkr- inu, hugsa í lausnum, henda baksýnisspeglinum og horfa fram á veginn. Mín grunnþekking á gosinu byggist á þeim gamansögum, sem ég minnist á í kaflanum sem snýr að bakgrunni mínum hér fyrr í ritgerðinni, ásamt þekkingu á grunnþáttum í tímalínu gossins. Það er fyrst og fremst fyrir það að aldrei var talað um gosið í minni fjöl- skyldu. Það leiddi til þess að það var ekki fyrr en ég var orðinn unglingur sem ég áttaði mig á því að e.t.v. hefði gosið verið aðeins meira en eitthvað sem byrjaði og lauk, og svo hafi lífið gengi sinn vanagang eftir það. Ég var orðinn unglingur þegar ég áttaði mig á því að fólki hafi liðið illa, verið hrætt og hafi þurft að færa miklar fórnir til að ég og mín kynslóð gæti búið í Vestmanna- eyjum í dag. En þrátt fyrir að ég geri mér grein fyrir því í dag að þetta voru hörmungar þá er alltaf þessi jákvæða glansmynd sem ég sá sem barn mér fremst í huga þegar ég hugsa um gosið. Líklega vegna þess að þó að ég þekki betur fórnirnar í dag er samfélagið hér lifandi sönnun þess að fólkið barðist við náttúruöflin og hafði sigur. Þannig er þetta fólk sem kom aftur og byggði bæinn miklar hetjur í mínum huga. Ég velti því upp við þau yngri hvort þau deildu þessari upplifun með mér. - Maður heyrir miklu minna þetta neikvæða heldur en jákvæða, sem mér finnst ótrúleg hetjudáð [að hafa haldið áfram]. - Já, en það er bara ákveðin frontur sem fólk setur á sig. En þetta sem þú talar um, það er þessi hetjudáð, hún er bara sett fram fyrir allt hitt og hitt er bara svona undirliggjandi og má helst ekki ræða. Þegar þau yngri eru spurð hvað einkenni þeirra ímynd af gosinu þá eru þættir eins og mannbjörgin um gosnóttina og þakklæti fyrir hana, og sameiningarmátturinn sem dreif áfram björgunarstarfið í gosinu og uppbygginguna eftir gos. Að öllu leyti er gosið og allt sem það snertir ótrúleg saga sem á sér fáar líkar. - Kannski er orðið kraftaverk ekki oft notað um þetta en þetta er ekkert annað. Bara hvernig þetta gerðist, hvernig var tekið á því. Þetta er bara ekkert annað en kraftaverk að hér skuli vera byggð í dag og það er náttúrulega bæði kraftaverk af náttúrunnar hendi og mannavöldum. Það sem samt kannski situr eftir er að það hefur verið tínt úr þetta góða og það látið lifa og slæmu hlutirnir soldið svona... einhvern veginn heyrast ekki eins mikið. Þau eldri eiga erfiðara með þessa spurningu mína. Tilfinningar þeirra gagnvart gosinu eru blendnar. Hér er fólk sem upplifði heim sem hvarf og byggði upp nýjan bæ á rúst- unum. - Ja, þetta er bara eitthvað sem þú upplifir og maður lifir með því. - Já, já, og maður lærir að lifa með. - Og ég sé ekkert annað en jákvætt við það. Við getum ekkert breytt því. Við megum þakka fyrir...það var fólk sem fór og við erum hérna aftur komin. - Ég hefði alveg viljað sleppa þessu... Ekki hefðu allir í hópnum viljað missa af gosinu. Nefna þeir, máli sínu til stuðnings, bætta innsiglingu, byggingarefnið og svo þá upplifun sem var að vera í björgunarstarfinu og vinna við hraunkælinguna. - Já, og við höfðum ekki mikla trú á þessu en við fórum í þetta og hérna... ég var bara í fremstu víglínu. Það hitti svo á. Við vorum komnir upp á alveg... þetta var ótrúlegt... ótrúleg upplifun þegar það kom fullt rör og bara bæng... og við vorum að ýta því til þar sem við vissum að það væri rauðast... hraunið fyrir framan og maður sá bara augnablik sprenginguna og alveg stærðar grjót í allar áttir og svo sáum við ekki neitt og þurftum að fikra okkur niður með rörinu og það lá við köfnun... en ég hefði ekki viljað missa af þessu. Mikið rosalega stórkostlegt. Umræða Heimaeyjargosið og atburðir sem því tengjast verða að teljast ótrúlegir í alla staði. Í þeim sem upplifðu gosið berjast tilfinningar sem eiga sér rætur í ótrúlegum minningum frá ótrúlegum tíma. Munur á sameignarminni þessara tveggja hópa sem tóku þátt í rannsókninni er auðmerkjanlegur. Munurinn byggist að mínu mati á tveimur grunnþáttum. Í fyrsta lagi liggur munurinn í því augljósa, það að upplifa gosið. Þau eldri voru á staðnum í lengri eða skemmri tíma eða fylgdust með í fjarlægð þegar gosið vann á Heimaey, braut og bramlaði og skapaði þennan nýja heim sem Vestmannaeyingar gengu inn í að gosi loknu. Þau yngri voru ekki á staðnum enda ekki fædd og geta því aðeins fengið innsýn í hvernig það líf var með því að afla sér heimilda. Seinni þátturinn sem ræður muninum á sameignarminni hópanna er sá að aðgangur að heimildum um gosið takmarkast að mestu við sagnfræðilegar heimildir um tímalínu gossins, líkt og þær birtust í fjölmiðlum á þessum tíma. Einnig má þar nefna Eldheima og sýninguna þar sem og þær bækur og heimildamyndir sem gerðar hafa verið um gosið. Heimildamyndir skipta máli Heimildamyndirnar eru nánast eini vettvangurinn þar sem hægt er að sækja persónulegar frásagnir upplifendanna, sem takmarkast þó við sögur örfárra útvaldra. Að sjálfsögðu er ekki mögulegt að gera öllum sjónarhornum skil en ljóst er að upplifendur völdu að tjá sig sem minnst um upplifun sína af gosinu nema e.t.v. þegar þær upplifanir voru skemmtilegar og gamansamar. Fólk valdi að loka á þetta erfiða og halda uppi hinu góða. Það má svo bersýnilega sjá á viðtali mínu við eldri hópinn að þessi aðferð er enn við lýði. Einn viðmælenda minna minntist á að byggingarefnið sem fékkst með gosinu hafi verið mikil blessun. Hann hafi ekki viljað missa af gosinu þó það hafi kostað hann heimili hans og foreldra hans. Fyrir þann sem hefur ekki heyrt fólk tala á þennan máta kann þetta að þykja frekar einkennileg og sérstök fullyrðing, en það var nákvæmlega þetta viðmót sem kom þessari kynslóð í gegnum erfiðleikana. Að sjá ljósið í myrkrinu. Saga úr fjölskyldunni Ég átti samtal við móður mína eftir að viðtölunum var lokið. Ég spurði hana út í gosið og hvort hún myndi eftir að hún hafi sjálf eða aðrir átt erfiðar stundir á gostímanum. Hún sagðist ekki muna eftir því beint nema hvað afi hennar, sem hafði unnið hjá bænum og var að vinna í björgunarstarfinu hafi verið sóttur af fjölskyldumeðlimi og færður til Reykjavíkur áður en gosinu lauk, einfaldlega vegna þess að ástandið var þannig að hann var engum til gagns lengur. Hann hafði horft upp á húsið sitt fara undir hraun. Einnig minntist mamma á að minnstu hefði munað að hún og foreldrar hennar hefðu ekki flutt aftur til Eyja. Hvoruga söguna hafði ég heyrt áður því það passaði ekki því þögla samkomulagi sem þeir sem komu aftur gerðu ósjálfrátt með sér, um að tala aðeins um kostina en ekki erfiðleikana. Í mínu tilfelli sögurnar af því þegar afi bjargaði húsi hans og ömmu frá bruna og þegar mamma slapp við prófið. Því má við bæta að afi var iðnaðarmaður og nóg vinna fyrir hann í Eyjum eftir gos. Því var það fjárhagslega rökrétt ákvörðun á þeim tíma fyrir hann og fjölskyldu hans að flytja aftur til Eyja. Sterkt og blómlegt samfélag á árunum fyrir gos Hugarfarið lýsir líka vel hvað skiptir þetta fólk í raun og veru máli. Í Vestmannaeyjum hafði fólk byggt upp sterkt og blómlegt samfélag á árunum fyrir gos. Mikið var af nýbyggingum, unga fólkið vildi skapa framtíð sína í Vest- mannaeyjum og þeir eldri voru orðnir rótfastir. Þegar gosið er hafið og ljóst er í hvað stefndi er ljóst að það eina sem getur haldið þessu samfélagi gangandi ef einhvern tíma hættir að gjósa er samtaka- máttur og það að þörfum einstak- lingsins sé pakkað niður og þarfir samfélagsins í heild verða æðri öllu. Við, afkomendur kynslóðarinnar sem upplifði gosið erum því firrt af upplifun upplifendanna. Munur á sameignarminni þessa tveggja hópa byggir því fyrst og fremst á þessum aðgangi að upplýsingum sem þeir eldri hafa lokað inni og ræða lítið sín á milli og við afkomendur sína. Eftir stendur glansmyndin sem sigurinn yfir náttúruöflunum og enduruppbygging samfélagsins skóp. Persónulegar upplifanir þeirra sem gengu í gegnum gosið eru of fáar og takmarkaðar til að fylla upp í eyðurnar sem standa eftir. Þar er gjá á milli þeirra sem upplifðu og afkomenda þeirra sem aðeins þeir sem upplifðu geta brúað. Þeir hafa lykilinn að innilokuðum tilfinn- ingum og hinni raunverulegu upplifun. Afkomendurnir geta aðeins kallað yfir gjána og þó þeir fái einstaka sinnum svar gefur það svar ekki mikið upp. Neikvætt tal ógn við uppbygg- ingu. Þetta er skiljanlegt að mínu mati því neikvætt tal um erfiðar tilfinningar er ógn við uppbyggingu. Það getur heldur enginn einn kallað eftir vorkunn þegar allir eiga það sameiginlegt að hafa lent í vand- anum. Einnig tel ég að þetta hafi aðeins slæm áhrif á þá sem loka inni þessar tilfinningar. Glansmyndin hefur skapað jákvæða ímynd af Vestmannaeying- um, hvernig þeir takast á við erfiða hluti og vinna í sameiningu að settum markmiðum. Gosið tryggir þá ímynd, a.m.k. á meðan atburð- inum er haldið á lofti. Hún hjálpar okkur við að sameinast jafnt þegar gárar á og þegar gengur vel. Á sama tíma tel ég erfitt að brjóta aftur þá glansmynd þó að fleiri og persónu- legri upplýsingar bætist í sarpinn. Ég tel að það efli ímynd okkar enn frekar því það hjálpar okkur að skilja betur hvaðan við komum og hvers vegna við viljum búa á þessum stað. Einn úr yngri hópnum benti á eftirfarandi. - Vitiði mig langar ofsalega til að fá að heyra... kannski endilega slæmar....mig langar að heyra hvað fólk upplifði. Þú veist mig langar stundum... Auðvitað finnst mér æðislegt að þau bara séu þakklát fyrir... þú veist að bátarnir voru í landi og þau gátu komið aftur en mig langar soldið að vita hvað þú upplifðir. Mig langar til að heyra... maðurinn minn var eftir og ég fór ein með börnin fjögur upp á land og við þurftum bara... Maður er alveg búinn að heyra það en mig langar heyra meira. „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ segir máltækið. Við sem erum afkomendur getum sjálfsagt aldrei skilið það á sama hátt og þeir sem upplifðu gosið. Það breytir þó því ekki að okkur langar að heyra meira til að skilja betur. Framhaldið og spurningar sem vakna Þess ber að geta að þessi rannsókn tekur ekki á öllum þeim hópum sem upplifðu gosið og vert er að rannsaka þá einnig á sama máta og gert er í þessari rannsókn. Til mótvægis við þá tvo hópa sem um ræðir í þessari rannsókn má nefna þá sem upplifðu gosið en komu ekki aftur og svo afkomendur þeirra. Er sameignarminni þessara hópa einnig ólíkt og hvernig þá? Hver er munur á sameignarminni þeirra sem komu aftur og þeirra sem gerðu það ekki? Getur verið að afkomendur þeirra sem komu ekki aftur hafi aðra sögu að segja en afkomendur þeirra sem komu aftur? Amma og afi á Vallargötunni, Gísli Engilbertsson og Elín Loftsdóttir.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.