Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Síða 16
16 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017
Ísleifur Arnar Vignisson, sem betur
er þekktur sem Addi í London
verður með ljósmyndasýningu
goslokahelgina í Akóges. Sýningin
verður opnuð á morgun, 6. júlí
klukkan 20.00 og verður opin til
22.00.
„Ég byrjaði að taka ljósmyndir
fljótlega eftir gos og hef verið að
síðan,“ segir Addi. „Það eru þessi
stóru viðburðir eins og þjóðhátíð
sem hafa verið viðfangsefnið hjá
mér. Líka náttúran þar sem ég er
m.a. með Smáeyjarnar fyrir utan
stofugluggann og fylgist með þegar
sólin er að setjast sem oft er mikið
sjónarspil. Fuglalífið er líka
endalaus uppspretta góðra mynda
en núna sakna ég lundans sem er í
mikilli lægð.“
Addi vann í Fiskiðjunni á sínum
tíma og nú í Vinnslustöðinni. „Ég
hef tekið margar myndir á báðum
stöðum og ég verð með sitt lítið af
þessu öllu á sýningunni. Í allt verða
þetta 30 til 40 myndir sem ég sýni
og eru þær allar til sölu.“
Nokkrar af myndum
Adda.
Andrés Sigmundsson ætlar ekki að
sitja auðum höndum goslokahelg-
ina. Hann opnar málverkasýningu á
morgun, fimmtudaginn kl: 17.00. í
Gallery Papacross Heiðarvegi sjö
sem verður opin alla helgina.
Svo leiðir hann sögugöngu um
miðbæinn á laugardag. Lagt verður
af stað í gönguna frá Galleríinu kl:
11.00. Andrés hefur verið afkasta-
mikill og segir að Galleríið sé fullt
og við það að springa. „Í mynd-
listinni er ég á einhverju ferðalagi
sem ég átta mig satt að segja ekki á.
Í nýjustu myndunum er ég staddur í
rigningunni niður á bryggju eða á
þjóðhátíð, það er bara svona.
Speglunin er svo mögnuð.“
„Við leggjum af stað í sögugöngu
laugardagsmorgunn kl: 11.00 frá
Galleríinu. Fræðandi, skemmtilegt
og tekur ekki mjög langan tíma. Ég
mun reyna að hafa það þannig.
Gengið verður austur Strandveg,
Miðstæti nálægt hraunkantinum,
Bárustíg, Vesturveg, Heiðarveg að
Galleríinu. Stoppað verður á
nokkrum stöðum og sagt frá.
Áætlaður tími er ein og hálf klukku-
stund.“
„Samfélagið hér í Eyjum er að fara
í gegnum gríðalegar breytingar.
Atvinnuhættir eru má segja að
stokkast upp. Við sjáum í göngunni
hvernig bærinn byggðist. Húsin,
mannlífið og breytingarnar. Sögur
af fólki í gleði og sorg. Eithvað grín
fylgir með. Það koma allskonar
spörvar við sögu. Já já, konur og
karlar, prestar og skáld, Jóna í
Drífanda, Óli hóla, Gölli Valda,
Lautarpeyjar o.fl. o.fl.“
Ísfélagið býður til barnaskemmt-
unar á Stakkagerðistúni á föstudag-
inn þar sem margt verður í boði.
Hátíðin hefst klukkan 13.30 og þar
koma fram Aron Brink sem syngur
nokkur lög. Einnig verður atriði frá
Latabæ þar sem Íþróttaálfurinn
verður í stóru hlutverki. Klukkan
18.00 er það svo Leikhópurinn
Lotta sem mætir á Stakkó.
Öll hlakka þau til að skemmta á
barnaskemmtun Ísfélagsins á
Goslokahátíðinni í ár. Þá verður
einnig gefinn sérútbúinn goslokaís
frá Hafís. „Ísfélag Vestmannaeyja á
bestu þakkir skilið fyrir að taka þátt
í hátíðinni með okkur,“ segir
FB-síðu hátíðarinnar.
Við erum búin að panta gott veður
og hlökkum til!
Myndin er um klukkustundarlöng
og er handritið byggt á samnefndri
bók Gísla Pálssonar um líf Hans
Jónatans. Gísli er sögumaður í
myndinni og hann leiðir hóp
afkomenda Hans Jónatans í fótspor
forföður þeirra á fæðingarstað hans,
eyjunni St. Croix í Karíbahafi.
Einnig eru gerð skil þess hluta sögu
Hans Jónatans sem fram fer í
Kaupmannahöfn – og svo að lokum
lífi hans á Íslandi, eða nánar tiltekið
Djúpavogi. Viðburðir í lífi Hans
Jónatans eru sviðsettir í myndinni
og viðtal tekið við afkomendur
hans, en alls eru afkomendurnir
orðnir yfir 1000. Nokkrir þeirra
hafa búið í Vestmannaeyjum og það
voru þeir sem vöktu athygli Gísla á
söguefninu og urðu þess valdandi
að hann réðst í að rita ævisögu
Hans Jónatans. Viðstaddir sýn-
inguna verða Gísli Pálsson,
Valdimar Leifsson kvikmyndagerð-
armaður og framleiðandi, og
Bryndís Kristjánsdóttir, höfundur
handrits.
Gísli og Valdimar vinna nú að
heimildamynd (,,Eldhugarnir”) í
samstarfi við Ara Trausta Guð-
mundsson um Heimaeyjargosið þar
sem sjónum er beint að fólkinu sem
glímdi við rennandi hraun og
björgun mannvirkja.
Goslokahátíð 2017 :
Andrés með
sýningu og fer
í sögugöngu
Goslokahátíð 2017 :: Ný heim-
ildamynd sýnd á laugardag kl. 16:
Hans Jónatan:
Maðurinn sem
stal sjálfum sér
:: verður sýnd í Eyjabíói
Goslok 2017 ::
Barnaskemmt-
un Ísfélagsins á
Stakkó á föstu-
daginn:
Aron Brink,
Latibær og
Leikhópur-
inn Lotta
Frá frumsýningu heimildamyndarinnar í Reykjavík 6. maí. Frá vinstri,
Sigurður Tómasson (Vestmanneyingur og afkomandi Hans Jónatans),
Bryndís Kristjánsdóttir (handritshöfundur heimildamyndar), Valdimar
Leifsson (kvikmyndagerðarmaður og framleiðandi), Gísli Pálsson
(bókarhöfundur og sögumaður) og þau sem léku Katrínu Antoníus-
dóttur (Edda Björnsdóttir, afkomandi Hans Jónatans) og mann hennar
Hans Jónatan (George Leite de Oliveira Santos, brasilískur ljósmynd-
ari og leikari). Aron Brink,Andrés Sigmundsson.
Goslokahátíð 2017 :
Addi í London með ljós-
myndasýningu í Akóges
Klukkan 18.00
á morgun
opnar Magni
Freyr Ingason
sýningu á
verkum sínum
í Húsi
Taflfélagsins
að Heiðarveg
níu. Sýninguna kallar hann Trú,
tákn og tilfinningar.
„Verkin eru akrýlmyndir og
myndir með blandaðri tækni unnar
á striga. Myndirnar hef ég unnið
undanfarin tvö ár þannig að þetta er
yfirlitssýning á vinnu minni síðustu
misseri. Þema sýningar er Trú, tákn
og tilfinningar. Myndlistarferill
minn hófst fyrir rúmlega tveimur
árum og er ég sjálfmenntaður í
myndlist,“ segir Eyjamaðurinn
Magni Freyr.
„Ég hef í gegnum árin verið virkur
í tónlist og var í Tónlistarskóla
Vestmannaeyja í mörg ár og lærði
þar á trompet og píanó. Einnig var
ég eitt ár í Tónlistarskóla FÍH á
slagverk. Var svo einnig mikið í
hljómsveitarbransanum og stofnaði
ásamt vinum mínum hljómsveitina
Hoffman sem flestir bæjarbúar ættu
að þekkja en þar var ég trommu-
leikari í rúmlega átta ár.
Bíð alla hjartanlega velkomna á
sýninguna. Opnun sýningar er
fimmtudaginn 6. júlí kl. 18.00 í Sal
Taflfélagsins Heiðarvegi 9 og svo
alla helgina frá kl. 13.00 til 18.00.
Vonast til að sjá sem flesta gos-
lokagesti.
Goslok 2017 ::
Magni
Freyr sýnir
í Húsi Tafl-
félagsins