Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Blaðsíða 17

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Blaðsíða 17
17Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017 GOSLOK Goslokanefnd áskilur sér rétt til þess að breyta dagskrá ef þörf þykir, breytingar verða þá kynntar á netinu. Þá vill Gosloka- nefnd benda á útivistarreglur og að börn eru ætíð á ábyrgð foreldra. Þökkum öllum sem hafa aðstoðað ánægjulegt samstarf. Góða skemmtun og gleðilega hátíð! facebook.com/goslokahatid Hluti viðbyggingar hússins Blátinds Heimagötu 12 sem stóð út úr hrauninu í goslok 1973 varð fljótlega táknmynd þeirra byggðar sem fór undir hraun og ösku í Heimaeyjargosinu. Árin og áratugir liðu, en í júní 2013 40 árum eftir gos féll síðasti hluti Blátinds. Áhugi að ganga að rústum Blátinds eftir gos var ávallt til staðar og hafði aðgengi að svæðinu verið bætt. Síðasta haust ákváðu bæjaryfirvöld að endurgera gluggahlið Blátinds með einhverj- um hætti og var leitað til Arnars Sigurmundssonar að mynda vinnuhóp úr hópi þeirra sem komu að verkefninu Húsin í hrauninu hjá Visku sem Arnar stýrði og skilaði af sér 23. janúar 2013. „Hópurinn tók fljótlega til starfa og vann að verkefninu með fulltrúum umhverfis- og skiplags- ráðs og Þekkingarseturs Vestmanna- eyja. Í upphafi var áformað að freista þess að tengja saman veggbrotin í gluggahlið Blátinds en það reyndist ógerlegt. Var þá ákveðið að endurgera gluggahliðina með svalahandriðinu og hafa hana sem allra líkasta því sem var. Jafnframt var ákveðið að segja sögu hússins og fjölskyldunnar sem þar bjó frá upphafi 1942 og fram að gosinu 1973. Aðalverktaki við verkið er Ársæll Sveinsson, húsasmíðameistari og hófst útivinna í byrjun maí sl. Að auki hafa ýmsir iðnaðarmenn komið að verki og umhverfið gert aðgengilegt og einnig verður hægt að skoða það sem eftir stendur af rústum Blátinds. Myndirnar á skjánum eru fjölbreyttar og koma þar um tugur ljósmyndara við sögu. Flestrar myndirnar tók Sigurgeir Jónasson í Skuld. Á goslokahátíð föstudaginn 7. júlí kl. 17.00 verður endurgerð gluggahliðar Blátinds vígð. Nýtt útiskilti með upplýsingum hefur verið komið upp og einnig verður hægt að skoða í gegnum gluggann 30 rúllandi myndir á stórum sjónvarpsskjá sem tengjast sögu hússins, fjölskyldunnar og eldgossins á Heimaey 1973,“ segir í frétt frá hópnum. Landsbankinn í Vestmannaeyjum stendur fyrir fjölskylduhátíð í tengslum við Goslokahátíðina. Fjölskylduhátíðin er haldin laugardaginn 8. júlí við útbú bankans við Bárustíg og stendur frá kl. 14.00 til 16.00. Þar geta krakkar á öllum aldri leikið sér í hoppikös- tulum og spreytt sig í Skólahreysti- braut sem sett er upp í tilefni hátíðarinnar. Tríó Þóris Ólafssonar leikur fyrir gesti og gangandi og Sproti heilsar upp á yngstu gestina. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og fleira góðgæti. Meistaraflokkur kvenna í fótbolta hjá ÍBV og fimleikafélagið Rán munu aðstoða við hátíðina, s.s. við að grilla pylsurnar, útbúa sykurflos o.fl. en samstarfið við bankann er liður í fjáröflun þeirra. „Við erum mjög ánægð með þá góðu mætingu og fínu stemningu sem hefur alltaf myndast á fjölskylduhátíðinni. Við vonum að sem flestir komi við á Bárustíg á laugardag og fagni goslokunum með okkur," segir Jón Óskar Þórhallsson, útibússtjóri Lands- bankans í Vestmannaeyjum. Þetta er í þriðja sinn sem Landsbankinn stendur fyrir Fjölskylduhátíðinni en áður var hún í boði Sparisjóðs Vestmannaeyja sem sameinaðist bankanum árið 2015. Goslokahátíð 2017 : Endurgerð glugga- hliðar Blátinds vígð á föstudaginn Síðasti fundur hópsins. F.v. Páll Marvin Jónsson, Ívar Atlason, Ólafur Snorrason, Gísli Valtýsson, Ársæll Sveinsson, Arnar Sigurmundsson og Stefán Óskar Jónasson. Goslokahátíð 2017 : Fjölskylduhátíð Landsbankans á laugardaginn Ein af öflugu dælunum sem komu að hraunkælingu í Heimaeyjargos- inu er líklega gangfær. Hún hefur varðveist og er í vörslu Áhaldahúss Vestmannaeyja. Til stendur að ræsa dæluna á Básaskersbryggju á Goslokahátíð 2017. Flóvent Máni og samstarfsmenn hans hjá Áhaldahúsinu munu gera sitt besta. Um leið verður þess minnst að nú í sumar (19. júní) hefði sá sem átti þá byltingarkenndu hugmynd að kæla hraun í því skyni að bjarga Vestmannaeyjabæ, Þorbjörn Sigurgeirsson, orðið hundrað ára. Goslokahátíð 2017 : Látum dæluna ganga!

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.