Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Side 21
21Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, var einn af þeim fjölmörgu
foreldrum sem ferðuðust til Eyja til
að fylgjast með sonum sínum á
Orkumótinu sem fram fór um
helgina. Guðni, sem er harður
Stjörnumaður, var einmitt að horfa
á leik liðsins gegn Fylki þegar
blaðamaður hitti á hann en sonur
hans, Duncan Tindur, leikur með
liðinu.
Hvernig hefur þín upplifun á
mótinu verið? „Þetta hefur verið
einstaklega gaman, hér er allt í
föstum skorðum og einvala lið sem
stýrir mótinu. Það er vel hugsað um
strákana og þeir hafa skemmt sér
vel. Mesta fjörið er inni á vellinum
en utan vallar er einnig margt í
boði, þeir eru t.d. búnir að spranga,
fara í Eldheima og fara í sund, svo
er bara svo gott að vera hérna úti í
Eyjum og höfum við notið okkar
mjög vel hérna sem og liðið allt,“
sagði Guðni endurnærður og hélt
áfram á svipuðum nótum. „Þetta er
mjög notalegt, losna úr ys og þys
hinna daglegu anna og vera í
skemmtilegum félagsskap. Ég sé
ekki betur en að allir njóti lífsins
hérna og það er bara frábært fyrir
okkur Íslendinga að eiga svona
viðburði eins og þessi íþróttamót
eru, þar sem strákar og stelpur alls
staðar að af landinu, og foreldrar
með, hittast. Hér eru allir jafnir og
allir vinir.“
Mótið var skammt á veg komið
þegar blaðamaður hitti á Guðna en
lið hans, Stjarnan, var þegar búið að
sigra sinn fyrsta leik á mótinu og í
vænlegri stöðu gegn Fylki meðan á
viðtalinu stóð. „Þeir eru enn
taplausir en þegar á móti blæs þá er
það hlutverk okkar foreldranna og
þjálfaranna að segja þeim að hengja
ekki haus og það gangi bara betur
næst, spila heiðarlega, þakka
mótherjanum fyrir leikinn og horfa
síðan fram til næsta leiks. Þeir eru
líka að læra þetta, það þarf að læra
að tapa rétt eins og menn þurfa að
læra að taka ósigri utanvallar,“
sagði Guðni.
Hér get ég gengið um eins og
hver annar pabbi
Eru strákarnir eitthvað að kippa sér
upp við það að forsetinn sé alltaf á
hliðarlínunni, eru þeir kannski bara
búnir að venjast þessu? „Já já, þeir
eru kurteisir og hressir, koma
kannski og vilja fá fimmu, sjálfu
eða eitthvað slíkt. Það er bara
gaman að verða við því og eitt af
því sem ég vil segja að sé gott við
Ísland er að hér get ég gengið um
eins og hver annar pabbi og ekkert
sem kallar á öryggisgæslu eða neitt
af því taginu,“ sagði Guðni í þann
mund sem Stjarnan skoraði mark.
Þú ert fyrst og fremst bara pabbi
þessa dagana? „Já já, ég er bara
pabbi hérna og nýt þess. Ég veit það
frá þeim sem skipuleggja þetta mót
að hingað hafa komið atvinnumenn
í fótbolta, ráðamenn og frægt fólk
af ýmsu tagi en hér fá allir að vera í
sínu foreldrahlutverki og það er
mjög dýrmætt,“ sagði Guðni sem
var þakklátur fyrir sína upplifun í
Vestmannaeyjum. „Ég vil þakka
mótshöldurum fyrir hversu vel þeir
hafa staðið að þessu og Eyja-
mönnum öllum, þetta mót er íbúum
bæjarfélagsins til mikils sóma.“
Úrslit
mótsins
Heimaeyjarbikarinn:
1. Þróttur R. 2
2. ÍBV 1
Eldfellsbikarinn:
1. Grótta 2
2. Vestri 2
Álseyjarbikarinn:
1. KA 3
2. HK 3
Elliðaeyjarbikarinn:
1. HK 1
2. KR 1
Stórhöfðabikarinn:
1. Höttur 1
2. Dalvík 1
Heimaklettsbikarinn:
1. HK 2
2. Þróttur R. 3
Surtseyjarbikarinn:
1. Breiðablik 5
2. Álftanes
Bjarnareyjarbikarinn:
1. Valur 1
2. FH 1
Helliseyjarbikarinn:
1. Stjarnan 4
2. Þróttur V
Suðureyjarbikarinn:
1. Stjarnan 2
2. Þór 3
Ystaklettsbikarinn:
1. Þór 4
2. Valur 4
Helgafellsbikarinn:
1. Snæfellsnes 1
2. ÍBV 2
Orkumótsbikarinn:
1. Stjarnan 1
2. Grótta 1
Háttvísi KSÍ:
ÍR, Þróttur R., Skallagrímur
og IFK Aspudden-Tellus
Prúðustu liðin:
ÍA og Fjarðabyggð
Orku-
móts-
liðið
2017:
Tómas Óli Kristjánsson
(Stjarnan),
Thomas Ari Arnarsson
(Breiðablik),
Atli Hrafn Hjartarson
(Stjarnan),
Andri Erlingsson (ÍBV),
Benedikt Jóel Elvarsson
(Valur),
Björgvin Brimi Andrés-
son (Grótta),
Dagur Már Sigurðsson
(ÍR),
Daníel Erick Clarke
(Keflavík),
Viktor Nói Viðarsson
(FH),
Örn Bragi Hinriksson
(Þróttur Reykjavík),
Tómas Johannessen
(Grótta),
Andri Kári Unnarsson
(HK).
Nafn: Ísak Vífilsson.
Lið: ÍR.
Hvenær byrjaðir þú að æfa
fótbolta: Eitt ár síðan.
Hvað er það skemmtilegasta við
Orkumótið: Eiginlega bara að
keppa og vinna.
Uppáhalds leikmaður: Gylfi Þór
Sigurðsson.
Ætlar þú að fylgjast með EM: Já.
Ertu spenntur fyrir Víti í
Vestmannaeyjum: Já.
Heldur þú að þú komir fyrir í
henni: Já.
Nafn: Marinó Þór Pálmason.
Lið og staða: Þjálfari Skallagríms.
Hvernig finnst þér umgjörð
mótsins: Mér finnst hún bara mjög
flott.
Ætlar þú að fylgjast með EM: Já,
að sjálfsögðu mun ég gera það.
Verður þú var við áhuga hjá
strákunum fyrir EM: Já.
En eru þeir áhugasamir um Víti í
Vestmannaeyjum: Já, fyrst það er
verið að taka hana upp hérna þá er
mikill áhugi fyrir því.
Nöfn: Eyrún Rafnsdóttir og Harpa Rut Heimisdóttir.
Lið og staða: Við erum mömmur og fararstjórar hjá Dalvík og Fjallabyggð.
Hvernig finnst ykkur umgjörð mótsins: Rosalega flott, með því flottasta
sem maður sér.
Ætlið þið að fylgjast með EM: Já, að sjálfsögðu.
Verðið þið varar við áhuga hjá strákunum fyrir EM: Ekki eins og hjá
körlunum en þeir vita alveg að það er en alls ekki sama stemning fyrir því.
Umfjöllunin er bara ekki eins áberandi, í fjölmiðlum og annars staðar, því
miður.
En eru þeir áhugasamir um Víti í Vestmannaeyjum: Nei, þeir hafa
kannski bara meiri áhuga á því að vera að keppa sjálfir en þegar myndin
kemur finnst þeim ábyggilega spennandi að hafa verið þátttakendur í
myndinni en þeir eru svo sem ekkert að spá í þessu núna.
Forseti Íslands fylgdist með Orkumótinu:
Frábært fyrir okkur Íslend-
inga að eiga svona viðburði
eins og þessi íþróttamót
:: Notalegt að losna úr ys og þys hinna daglegu anna og vera í skemmti-
legum félagsskap :: Strákarnir koma stundum og fá fimmu eða sjálfu
Það var mikil gleði á lokahófinu.
Guðni ásamt liði sínu.
Úrvalslið mótsins.