Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Blaðsíða 21

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Blaðsíða 21
21Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var einn af þeim fjölmörgu foreldrum sem ferðuðust til Eyja til að fylgjast með sonum sínum á Orkumótinu sem fram fór um helgina. Guðni, sem er harður Stjörnumaður, var einmitt að horfa á leik liðsins gegn Fylki þegar blaðamaður hitti á hann en sonur hans, Duncan Tindur, leikur með liðinu. Hvernig hefur þín upplifun á mótinu verið? „Þetta hefur verið einstaklega gaman, hér er allt í föstum skorðum og einvala lið sem stýrir mótinu. Það er vel hugsað um strákana og þeir hafa skemmt sér vel. Mesta fjörið er inni á vellinum en utan vallar er einnig margt í boði, þeir eru t.d. búnir að spranga, fara í Eldheima og fara í sund, svo er bara svo gott að vera hérna úti í Eyjum og höfum við notið okkar mjög vel hérna sem og liðið allt,“ sagði Guðni endurnærður og hélt áfram á svipuðum nótum. „Þetta er mjög notalegt, losna úr ys og þys hinna daglegu anna og vera í skemmtilegum félagsskap. Ég sé ekki betur en að allir njóti lífsins hérna og það er bara frábært fyrir okkur Íslendinga að eiga svona viðburði eins og þessi íþróttamót eru, þar sem strákar og stelpur alls staðar að af landinu, og foreldrar með, hittast. Hér eru allir jafnir og allir vinir.“ Mótið var skammt á veg komið þegar blaðamaður hitti á Guðna en lið hans, Stjarnan, var þegar búið að sigra sinn fyrsta leik á mótinu og í vænlegri stöðu gegn Fylki meðan á viðtalinu stóð. „Þeir eru enn taplausir en þegar á móti blæs þá er það hlutverk okkar foreldranna og þjálfaranna að segja þeim að hengja ekki haus og það gangi bara betur næst, spila heiðarlega, þakka mótherjanum fyrir leikinn og horfa síðan fram til næsta leiks. Þeir eru líka að læra þetta, það þarf að læra að tapa rétt eins og menn þurfa að læra að taka ósigri utanvallar,“ sagði Guðni. Hér get ég gengið um eins og hver annar pabbi Eru strákarnir eitthvað að kippa sér upp við það að forsetinn sé alltaf á hliðarlínunni, eru þeir kannski bara búnir að venjast þessu? „Já já, þeir eru kurteisir og hressir, koma kannski og vilja fá fimmu, sjálfu eða eitthvað slíkt. Það er bara gaman að verða við því og eitt af því sem ég vil segja að sé gott við Ísland er að hér get ég gengið um eins og hver annar pabbi og ekkert sem kallar á öryggisgæslu eða neitt af því taginu,“ sagði Guðni í þann mund sem Stjarnan skoraði mark. Þú ert fyrst og fremst bara pabbi þessa dagana? „Já já, ég er bara pabbi hérna og nýt þess. Ég veit það frá þeim sem skipuleggja þetta mót að hingað hafa komið atvinnumenn í fótbolta, ráðamenn og frægt fólk af ýmsu tagi en hér fá allir að vera í sínu foreldrahlutverki og það er mjög dýrmætt,“ sagði Guðni sem var þakklátur fyrir sína upplifun í Vestmannaeyjum. „Ég vil þakka mótshöldurum fyrir hversu vel þeir hafa staðið að þessu og Eyja- mönnum öllum, þetta mót er íbúum bæjarfélagsins til mikils sóma.“ Úrslit mótsins Heimaeyjarbikarinn: 1. Þróttur R. 2 2. ÍBV 1 Eldfellsbikarinn: 1. Grótta 2 2. Vestri 2 Álseyjarbikarinn: 1. KA 3 2. HK 3 Elliðaeyjarbikarinn: 1. HK 1 2. KR 1 Stórhöfðabikarinn: 1. Höttur 1 2. Dalvík 1 Heimaklettsbikarinn: 1. HK 2 2. Þróttur R. 3 Surtseyjarbikarinn: 1. Breiðablik 5 2. Álftanes Bjarnareyjarbikarinn: 1. Valur 1 2. FH 1 Helliseyjarbikarinn: 1. Stjarnan 4 2. Þróttur V Suðureyjarbikarinn: 1. Stjarnan 2 2. Þór 3 Ystaklettsbikarinn: 1. Þór 4 2. Valur 4 Helgafellsbikarinn: 1. Snæfellsnes 1 2. ÍBV 2 Orkumótsbikarinn: 1. Stjarnan 1 2. Grótta 1 Háttvísi KSÍ: ÍR, Þróttur R., Skallagrímur og IFK Aspudden-Tellus Prúðustu liðin: ÍA og Fjarðabyggð Orku- móts- liðið 2017: Tómas Óli Kristjánsson (Stjarnan), Thomas Ari Arnarsson (Breiðablik), Atli Hrafn Hjartarson (Stjarnan), Andri Erlingsson (ÍBV), Benedikt Jóel Elvarsson (Valur), Björgvin Brimi Andrés- son (Grótta), Dagur Már Sigurðsson (ÍR), Daníel Erick Clarke (Keflavík), Viktor Nói Viðarsson (FH), Örn Bragi Hinriksson (Þróttur Reykjavík), Tómas Johannessen (Grótta), Andri Kári Unnarsson (HK). Nafn: Ísak Vífilsson. Lið: ÍR. Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Eitt ár síðan. Hvað er það skemmtilegasta við Orkumótið: Eiginlega bara að keppa og vinna. Uppáhalds leikmaður: Gylfi Þór Sigurðsson. Ætlar þú að fylgjast með EM: Já. Ertu spenntur fyrir Víti í Vestmannaeyjum: Já. Heldur þú að þú komir fyrir í henni: Já. Nafn: Marinó Þór Pálmason. Lið og staða: Þjálfari Skallagríms. Hvernig finnst þér umgjörð mótsins: Mér finnst hún bara mjög flott. Ætlar þú að fylgjast með EM: Já, að sjálfsögðu mun ég gera það. Verður þú var við áhuga hjá strákunum fyrir EM: Já. En eru þeir áhugasamir um Víti í Vestmannaeyjum: Já, fyrst það er verið að taka hana upp hérna þá er mikill áhugi fyrir því. Nöfn: Eyrún Rafnsdóttir og Harpa Rut Heimisdóttir. Lið og staða: Við erum mömmur og fararstjórar hjá Dalvík og Fjallabyggð. Hvernig finnst ykkur umgjörð mótsins: Rosalega flott, með því flottasta sem maður sér. Ætlið þið að fylgjast með EM: Já, að sjálfsögðu. Verðið þið varar við áhuga hjá strákunum fyrir EM: Ekki eins og hjá körlunum en þeir vita alveg að það er en alls ekki sama stemning fyrir því. Umfjöllunin er bara ekki eins áberandi, í fjölmiðlum og annars staðar, því miður. En eru þeir áhugasamir um Víti í Vestmannaeyjum: Nei, þeir hafa kannski bara meiri áhuga á því að vera að keppa sjálfir en þegar myndin kemur finnst þeim ábyggilega spennandi að hafa verið þátttakendur í myndinni en þeir eru svo sem ekkert að spá í þessu núna. Forseti Íslands fylgdist með Orkumótinu: Frábært fyrir okkur Íslend- inga að eiga svona viðburði eins og þessi íþróttamót :: Notalegt að losna úr ys og þys hinna daglegu anna og vera í skemmti- legum félagsskap :: Strákarnir koma stundum og fá fimmu eða sjálfu Það var mikil gleði á lokahófinu. Guðni ásamt liði sínu. Úrvalslið mótsins.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.