Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Qupperneq 22
22 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017
Eyjamaðurinn og fyrrum fyrirliði
íslenska landsliðsins í knattspyrnu,
Hermann Hreiðarsson, var að
sjálfsögðu staddur í Vestmanna-
eyjum á meðan Orkumótinu stóð.
Síðustu daga hefur Hermann verið
að láta til sín taka á allt öðrum
vettvangi en hann er vanur en hann
mun fara með hlutverk í kvikmynd-
inni Víti í Vestmannaeyjum. Þegar
blaðamaður hitti Hermann á
Týsvellinum var hann í óðaönn að
undirbúa sig fyrir tökur en þessi
mikli leikari gaf sér þó tíma til að
ræða málin.
„Ég er kvikmyndastjarna, ekki
leikari,“ sagði Hermann auðmjúkur
í upphafi viðtalsins. „Ég er kallaður
„The Talent“ á settinu en það segir
allt sem segja þarf.“
Aðspurður út í hlutverk sitt í
kvikmyndinni var fátt um svör hjá
Hermanni. „Ég veit eiginlega ekkert
hvað ég má segja um þetta hlutverk
en ég mun vera að leika sjálfan mig.
En þetta er búið að vera alveg
hrikalega skemmtilegt, ég er
þakklátur og spenntur,“ sagði
Hermann sem tók einmitt þátt í
fyrsta pollamótinu á sínum tíma.
„Lárus heitinn Jakobsson, sem
stofnaði þetta mót, var búinn að
vera að byggja upp spennu hjá
okkur peyjunum allan veturinn og
búinn að tala mikið um þetta áður
en mótið var fyrst haldið. Að sjá
hvernig þetta hefur vaxið og
hvernig þetta mót hefur orðið stór
hluti af íslensku íþróttalífi er bara
frábært,“ sagði Hermann að lokum,
í þann mund sem hann var kallaður
á sett.
Kvikmyndahópur Sagafilm er búinn
að vera við tökur í Vestmannaeyjum
frá 21. júní og ljúka tökum í Eyjum
í dag, miðvikudag. Eftir það halda
tökur áfram á höfuðborgarsvæðinu.
Það eru alls kyns atriði sem eiga að
gerast innandyra og auðveldara að
setja slíkt upp í alvöru stúdíói.
Fyrir og eftir Orkumótið einbeittu
þeir sér að tökum þar sem landslag
Eyjanna fékk að njóta sín, en
mótsdagana nýttu þau til að fanga
keppnina, fjörið og andrúmsloftið á
mótinu.
Jónas Sigurðsson í Orkumótsnefnd
segir að tökur í Eyjum hafi tekist
mjög vel og það hafi verið auðvelt
að vinna með kvikmyndahópnum á
mótinu sjálfu, því þau voru vel
meðvituð um að ekki mætti raska
mótinu á neinn hátt.
„Það var mikið rætt um kvöldvök-
una. Við ræddum kvöldvökuna á
fararstjórafundi á miðvikudeginum,
áður en kvöldvakan fór fram. Á
fimmtudeginum sendum við líka
bréf til allra fararstjóra, þjálfara og
liðsstjóra sem voru á netfangalist-
anum okkar og skýrðum út að
kvöldvakan yrði æfing fyrir
lokahófið. Það var rætt að það væri
ekki viðeigandi að setja þessar
upplýsingar á vefinn, heldur voru
fararstjórar beðnir að koma þessum
skilaboðum til allra í sínu félagi.
Auðvitað hefðum við getað komið
þessum skilaboðum betur frá okkur
og Sagafilm verið með þéttari
dagskrá á kvöldvökunni og
biðjumst við afsökunar á því,“ sagði
Jónas.
Hann segir að kvöldvakan hafi
gengið mjög vel. „Við fundum út
alla hnökra, þannig að lokahófið
gekk frábærlega fyrir sig. Sagafilm
talaði um að fá fólk til að sitja
lengur vegna upptöku þeirra af
verðlaunaafhendingu sem verður í
kvikmyndinni, en þetta gekk svo
vel á lokahátíðinni að það þurfti
ekki að bæta neinum tökum við og
við kláruðum lokahófið á tíma.
Við höfum aðeins fengið að skoða
efni sem hefur verið tekið upp og
það er alveg hægt að fullyrða að
það er flottur fótbolti, landslag og
glaðir og ánægðir strákar t.d. í
skrúðgöngu, kvöldvöku og
lokahófi.
ÍBV þakkar öllum mótsgestum
fyrir góða þátttöku í þessu einstaka
verkefni. Þetta gekk vonum framar
og bíðum við nú spennt eftir
forsýningunni hér í Eyjum næsta
vor,“ sagði Jónas að endingu.
Víti í Vestmannaeyjum :: Tökum lýkur í dag:
Flottur fótbolti, landslag
og glaðir og ánægðir
strákar í skrúðgöngu,
kvöldvöku og lokahófi
Ég er kvikmynda-
stjarna, ekki leikari
Einar KriStinn HElgaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Fálkarnir spila stórt hlutverk í myndinni.
Hermann Hreiðarsson ásamt mótleikara sínum Íseyju Heiðarsdóttur.
Vestmannaeyjameistaramót Íslands
fór fram í síðustu viku, það hófst á
fimmtudag og stóð fram á laugar-
dag. Veður var gott mótsdagana,
ekki síst á laugardaginn þegar
Vestmannaeyjar skörtuðu sínu
fegursta.
Vestmannaeyjameistari karla var
Örlygur Helgi Grímsson og kom
það fáum á óvart. Í fyrsta flokki
karla var Bjarni Þór Lúðvíksson í
fyrsta sæti. Í öðrum flokki var Andri
Steinn Sigurjónsson í fyrsta sæti, í
þriðja flokki Karl Jóhann Örlygsson
og þeim fjórða Guðmundur Ingi
Jóhannesson.
Vestmannaeyjameistari kvenna var
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir. Í fyrsta
sæti með forgjöf var Ásta Björt
Júlíusdóttir og í byrjendaflokki
Birgitta Karen Guðjónsdóttir.
Á efri myndinni eru
meistararnir
Jóhanna Lea og
Örlygur Helgi.
Á þeirri neðri má sjá alla
vinningshafana.
ÍBV og Víkingur R. mættust í átta
liða úrslitum Borgunarbikars karla á
sunnudaginn þar sem Eyjamenn
fóru með sigur af hólmi, 1:2.
ÍBV lenti undir eftir 24. mínútna
leik en þar var að verki Ivica
Jovanovic. Alvaro Montejo Calleja,
framherji ÍBV, jafnaði hins vegar
metin eftir 36 mínútna leik og
þannig var staðan í hálfleik.
Jafnræði var með liðunum í síðari
hálfleik og voru færi á báða bóga.
Það var hins vegar Arnór Gauti
Ragnarsson sem innsiglaði sigur
Eyjamanna með marki undir lok
leiks og tryggði farseðilinn í
undanúrslitin en hann hafði komið
inn á sem varamaður á 76. mínútu.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem
hafði einnig komið inn á sem
varamaður, laumaði boltanum
skemmtilega inn á Arnór Gauta sem
kláraði færi sitt með föstu skoti upp
í þaknetið og þar með voru úrslitin
ráðin.
Í undanúrslitum fara Eyjamenn í
Garðabæ þar sem þeir mæta
Stjörnunni en í hinum leiknum
mætast FH og Leiknir R. í Hafnar-
firði. Leikirnir fara fram dagana 27.
og 28. júlí.
Golf |
Örlygur Helgi og Jóhanna
Lea Vestmannaeyja-
meistarar í golfi
Knattspyrna | Borgunarbikar karla
:: Víkingur R. 1:2 ÍBV
Eyjamenn
komnir í und-
anúrslit Borg-
unarbikarsins
:: Drógust á móti Stjörnunni í
undanúrslitum