Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Blaðsíða 8
8 - Eyjafréttir Miðvikudagur 28. febrúar 2018
Heildarfjöldi seldra eigna í
Vestmannaeyjum árið 2017 var 105
eignir, það er 64 íbúðir í fjölbýli og
41 einbýli. Þetta er yfir meðaltali
síðustu ára, því það hafa verið á
milli 80 til 90 eignir seldar á ári,
síðustu ár. Árið 2017 var því gott
söluár í Eyjum. Ekki er mikið af
eignum til sölu eins og er en
markaðurinn er samt sem áður
virkur.
Helgi Bragason lögfræðingur og
fasteignasali fræddi okkur um
stöðuna á fasteignamarkaðinum í
Vestmannaeyjum.
Ennþá talsvert undir
meðalfermetraverði
Helgi sagði að meðalverð á íbúðum
í Eyjum í fjölbýli hafi hækkaði úr
160 þúsund árið 2016 í 185 þúsund
árið 2017. En að meðalverð á
einbýli hafi staðið í stað, eða um
170 þúsund. „Yfirleitt er meðal-
fermetraverð minni eigna hærra en
stærri eigna,“ sagði Helgi. Meðal-
fermetraverð í Reykavík er um 430
þúsund og á Akranesi, Akureyri,
Reykjanesbæ og Árborg er það á
bilinu 250 - 290 þúsund. „Við erum
því ennþá talsvert undir meðal-
fermetraverði í stærri sveitar-
félögum,“ sagði Helgi.
Virkur leigumarkaður er
nauðsynlegur fyrir samfélagið
Fasteignaverð í Vestmannaeyjum
hefur hækkað talsvert þó við séu
enn undir meðalverði. En leigu-
markaðurinn er virkari og öruggari
fyrir leigutaka. „Það sem ég hef séð
helst er að það eru komin leigufélög
hér inná markaðinn sem eru að
fjárfesta í íbúðum og hefur það haft
áhrif til hækkunar og að minna er til
af eignum og þær hafa selst hraðar.
Ég tel innkomu leigufélaga jákvæða
að því leyti að það verður virkari
leigumarkaður og meiri möguleiki
fyrir fólk að fá langtímaleigu. Áður
var leiga bundin því að leigja eignir
til skamms tíma og þær þá oft í
sölumeðferð samtímis sem skapaði
óöryggi fyrir leigutaka. Virkur
leigumarkaður er nauðsynlegur fyrir
samfélagið. Leiguverð hefur
hækkað í samræmi við verðlagsþró-
un og meðalleiguverð á þriggja
herbergja íbúð í dag er um 140.000
þús en er misjafnt eftir gæðum,
staðsetningu og fleiru. Leigumark-
aðurinn er og hefur verið þannig að
það er erfitt að fá húsnæði á vorin
og sumrin, einkum stærra húsnæði
en tilkoma leigufélaga gerir það að
verkum að meira framboð er af
minna húsnæði,“ sagði Helgi.
Nýbyggingar toga verð
uppá við
Það er talsvert mikið af nýbygg-
ingum og talsvert af nýjum íbúðum
að koma inná markaðinn. „Fer-
metraverð á nýju íbúðunum er í
takti við nýbyggingarverð. Það er
jákvætt að menn séu að byggja en
ég hef trú á að það muni toga verð
uppá við, “ sagði Helgi að lokum.
Það hefur ekki farið framhjá
neinum að mikil uppbygging á
sér stað í Vestmannaeyjum.
Margir fermetrar hafa verið
byggðir og það má segja að
allar tegundir af byggingum
séu í framkvæmd og mörg
spennandi verkefni í vinnslu.
Það má því áætla að nóg sé
um að snúast hjá skipulags- og
byggingarfulltrúa bæjarins.
Sigurður Smári Benónýsson,
skipulags- og byggingarfulltrúi
Vestmannaeyjabæjar sagði að
síðustu ár hafi verið annasöm á
byggingarsviðinu. „Það má segja að
allar tegundir af byggingum séu í
framkvæmd. Atvinnuhúsnæði,
fjölbýli, einbýli, sumarhús og
töluvert magn í endurbyggingu eins
og sést sunnan við Vigtartorgið,“
sagði Sigurður Smári.
Ekkert laust til úthlutunar
miðsvæðis
Sigurður Smári sagði að nú væru
um 30 íbúðir í byggingu á um
4000m2, „sumt í eigu einstaklinga
annað í eigu byggingarfélaga. Það
er annað eins magn íbúða í
undirbúningi en misjafnlega langt
komið í ferlinu.“ Aðspurður sagði
Sigurður Smári að nú væru um 50
lóðir lausar til umsóknar. „Þessar
lóðir eru flestar í vesturbæ, nokkrar
í austurbæ en ekkert er laust til
úthlutunar miðsvæðis.“
Þörf fyrir nýtt íbúðarhúsnæði
Sveitafélagið er að undirbúa
kynningarefni fyrir nýtt aðalskipu-
lag (2015-2035) sem verður auglýst
á næstunni og kynningarfundir
haldnir í framhaldi af því. „Í þessari
skipulagstillögu er m.a. fjallað um
þörf fyrir nýtt íbúðarhúsnæði á
skipulagstímabilinu, íbúaþróun
skoðuð, lögð fram íbúaspá þar sem
talið er að íbúar sveitafélagsins geti
orðið um 5.100 við lok skipulags-
tímabilsins árið 2035. Þessar tölur
gefa okkur þörf fyrir 340 nýjar
íbúðir á skipulagstímabilinu ef
miðað er við að fjöldi íbúa í íbúð
verði um 2,5,“ sagði Sigurður
Smári að lokum.
Sigurður Smári Benónýsson, skipulags- og byggingarfulltrúi:
Síðustu ár hafa verið annasöm
á byggingarsviðinu
:: Þörf á 340 nýjum íbúðum á næstu sautján árum :: 50 lóðir lausar til umsóknar
SARA SJöfN GREttISdóttIR
sarasjofn@eyjafrett ir. is
Helgi Bragason lögfræðingur og fasteignasali
Leigufélög hafa haft áhrif til hækkunar
:: Árið 2017 var gott söluár :: Nýjar íbúðir í takti við nýbyggingarverð
Lykiltölur í byggingariðnaði 2004 – 2017 - Vestmannaeyjabær
Samþykkt byggingaráform byggingarnefndar
frá 1 jan. 2004 til 1 jan. 2018.
Tölurnar taka til
• Nýbygginga
• Viðbygginga
• End rbygginga
• 2004 – 1.703,50m2
• 2005 – 1.812,90m2
• 2006 – 4.171,40m2
• 2007 – 4.714,10m2
• 2008 – 4.915,60m2
• 2009 – 6.705,90m2
• 2010 – 6.866,60m2
• 2011 – 7.239,40m2
• 2012 – 7.735,40m2
• 2013 – 7.829,30m2
• 2014 – 8.026,30m2
• 2015 – 11.785,20m2
• 2016 – 15.820,30m2
• 2017 – 11.577,10m2
0
2
4
6
8
10
12
14
16
18
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
m2
Íbúðasvæði nýrrar aðalskipulagstillögu.Framkvæmdir í fullum gangi við Ægisgötu.
Íbúafjöldi í Vestmannaeyjum 2000-2016 miðað við 1. janúar ár hvert.
Samþykkt byggingaráform 2004 til 2017 í þúsundum fermetra.
Tölurnar taka til nýbygginga, viðbygginga og endurbygginga.