Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Page 12

Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Page 12
12 - Eyjafréttir Rosalega mikið stuð og alltaf gaman að fara á skátamót Í liðinni viku héldu skátarnir uppá 80 ára afmælið sitt og skólalúðrasveitin uppá 40 ára afmæli. Eva Sigurðar- dóttir er ein af þeim sem er partur af báðum hópum. Hefur verið skáti í tvö ár og spilar í lúðrasveitinni. Eva er Eyjamaður vikunnar. Nafn: Eva Sigurðardóttir. Fæðingardagur: 18. febrúar 2004. Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar. Fjölskylda: Mamma mín heitir Anna Lilja, pabbi minn heitir Sigurður Ingi og svo heitir stóra systir mín Ragnheiður Sigurðar- dóttir. Uppáhalds vefsíða: YouTube. Aðaláhugamál: Sund. Uppáhalds app: Snapchat. Hvað óttastu: Drauga. Mottó í lífinu: Koma fram við aðra eins og þú vilt að það sé komi fram við þig. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Langömmu mína sem ég er skírð í höfuðið á. Hvaða bók lastu síðast: Hjálp eftir Þorgrím Þráinsson. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Ég á ekki uppáhalds íþróttamann og ÍBV! Ertu hjátrúarfull: Já, mjög. Stundar þú einhverja hreyfingu: Já, ég æfi sund. Uppáhaldssjónvarpsefni: Sakamálaþættir. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Eurovision lög. Á hvaða hljóðfæri spilar þú í lúðrasveitinni: Þverflautu. Hvenær byrjaðir þú að æfa og hversu lengi ertu búin að vera í lúðró: Ég er búin að vera í henni í fjögur ár, held ég. Hvenær byrjaðir þú í skátunum: Ég held að ég hafi byrjað snemma, árið 2016. Hvað er það skemmtilegasta við að vera skáti: Það er bara svo rosalega mikið stuð og svo er alltaf gaman að fara á skátamót. eyjAmAður vikunnAr frAmundAn:mest lesið á eyjAfrettir.is Lágkúruleg aðför góða fólksins Þetta finnst mér Er Vegagerðin að fokka í okkur? Uppstilling hjá Sjálf- stæðisflokknum Pítsa á Bárustíg og Gott í Reykjavík Eyjamenn kunna að hafa gaman Nafnið Herjólfur fékk afgerandi kosingu Dýpkun að hefjast í landeyjahöfn Samgöngur á sjó Yfirlýsing frá Eyverjum 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 föstudagur 2. mars ---------------------------------------------------------- 16:30 - Safnahús Ganga á alþjóðlegum bænadegi kvenna. Gangan hefst við Safna- húsið og endar í Landakirkju laugardagur 3. mars ---------------------------------------------------------- 17:00 - Eyjabíó Lói: Þú Flýgur Aldrei Einn 19:00 - Eyjabíó Black Panther 21:45 - Eyjabíó Game Night 23:59 - Höllin Ball með Brimnes sunnudagur 4. mars ---------------------------------------------------------- 11:00 - Landakirkja Sunnudagaskóli í Landakirkju í umsjón Leó Snæs og sr. Viðars. Saga, söngur og gleði. 14:00 - Landakirkja Guðsþjónusta í Landakirkju. Sr. Viðar prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Kitty Kovács 15:00 - Landakirkja Aðalfundur Kvenfélags Landa- kirkju í safnaðarheimilinu. 17:00 - Eyjabíó Lói: Þú Flýgur Aldrei Einn 19:00 - Eyjabíó Game Night 20:00 - Landakirkja Fundur hjá ÆsLand - æskulýðs- félagi KFUM&K og Landakirkju í Vestmannaeyjum 21:15 - Eyjabíó Black Panther Miðvikudagur 28. febrúar 2018 Miðstöðin stendur á gömlum merg, verður 80 ára árið 2020 og hefur reksturinn sennilega aldrei verið öflugri en núna. Í allt eru 13 á launaskrá auk verktaka sem eru kallaðir inn þegar mikið liggur við. Mikið hefur verið að gera undanfarin ár, er enn og ekki að sjá nokkra breytingu þar á. Miðstöðin er bæði pípulagningaverkstæði og alhliða byggingavöruversl- un og er vöxtur í báðum deildum. Þetta kemur fram í samtali við Dadda Mar (Bjarna Ólaf Marinós- son) framkvæmdastjóra og Björgvin Hallgrímsson, fjármálastjóra. Báðir eru tiltölulega nýir í sínum störfum en hafa lengi unnið í Miðstöðinni. Daddi tók við af föður sínum, Marinó Sigursteinssyni og eru þeir þriðji og fjórði ættliðurinn í fyrirtækinu. „Já, við erum 13 á launaskrá, sjö píparar og sex í versluninni. Einnig erum við með þrjá verktaka til að aðstoða okkur í stærri verkum. Allt eru þetta vanir menn og flestir með réttindi,“ sagði Björgvin. „Við erum með fjóra pípulagningameistara, fjóra sveina og tvo verkamenn sem hafa mikla reynslu af pípulögnum.“ Fjölbreytt verkefni Daddi segir þetta styrk fyrir fyrirtækið og verkefnin eru fjölbreytt. „Við erum í lögnum fyrir bæinn og HS Veitur sem eru í miklum framkvæmdum. Bærinn að endurbæta fráveitukerfið og HS Veitur að tengja Sjóvarmadælustöð- ina sem er mjög spennandi verkefni,“ sagði Daddi. „Það eru alltaf stanslaus verkefni hjá Ísfélaginu og Vinnslustöðinni og alltaf tveir fastir menn á hvorum stað,“ bætir hann við. „Við höfum komið að öllum stærstu verkefn- unum hjá stöðvunum.“ Og hjólin halda áfram að snúast og næsta stóra verkefni er uppbygg- ing nýs fiska- og hvalasafns á fyrstu hæð Fiskiðjunnar og austan við hana. Þar verður Miðstöðin meðal verktaka. „Það verður vonandi skrifað undir í mars við enska fyrirtækið Merlin Entertainment sem ætlar meðal annars að flytja hvali frá Kína og koma upp aðstöðu fyrir þá hér. Við höfum verið í sambandi við Derek, í samvinnu með Mannvit, sem er verkefnastjóri hjá Merlin Entertainment og er áætlað að afhenda hvalina í mars 2019. Framkvæmdum hér á að vera lokið í nóvember nk. og þá koma Bretarnir í lokafráganginn,“ segir Daddi. Verkefni út um allan bæ Björgvin og Daddi segja að þó þeir starfi mikið fyrir stóru fyrirtækin og Vestmannaeyjabæ séu viðskiptin við einstaklinga hryggjarstykkið í starfseminni. „Já, við erum út um allan bæ og erum að sinna upp í tíu verkefnum á dag. Án viðskipta við hinn almenna bæjarbúa hefði fyrirtækið ekki gengið,“ segir Björgvin. „Við komum líka að stærri framkvæmdum einstaklinga og fyrirtækja, eins og byggingu íbúðanna á Vigtarhúsinu og í Goðahrauninu, gamla verslunarhús- inu þar sem er verið að útbúa leiguíbúðir,“ segir Daddi. Daddi er enginn nýgræðingur í Miðstöðinni. Byrjaði fyrst árið 1989 en tók sér hlé á meðan hann var í námi í Danmörku og eftir það hafði hann viðkomu hjá Vest- mannaeyjabæ. Hann þekkir því taktinn í starfinu og hann segir nóg fram undan. „Þegar ég byrjaði var talað um fyrir og eftir vertíð sem markaði að einhverju leyti verk- efnastöðuna. Það hefur ekkert breyst en er nú jafnara. Og allt fer þetta í hring og nú segist pabbi vera að klára verk eftir pabba sinn, afa Didda, sem var örugglega að klára eftir pabba sinn.“ Mikið byggt Þeir félagar eru sammála um að mikið hafi verið byggt á undan- förnum árum og mun meira en á árunum í kringum aldamótin. „Húsin við Litla Gerði voru einu húsin sem byggð voru á löngu tímabili en nú er mikið byggt og mikið að gera hjá iðnaðarmönnum,“ segir Daddi. „Það er með pípu- lagnir eins og annað að allt gengur í hringi þannig að ég óttast ekki framtíðina. Allt hefur sinn líftíma og lagnir eru í stöðugri framþróun. Ég sé því ekki annað en áframhald- andi góða verkefnastöðu.“ Björgvin, sem sér stöðuna ekki síður í gegnum verslunina segist hafa góða tilfinningu fyrir komandi árum. „Þar erum við að sjá aukningu á milli ára í kaupum á tækjum í baðherbergi, gólfefnum og málningu. Fyrirtækið stendur enn á sama grunni og það var stofnað á árið 1940. Miðstöðin er ekkert án viðskiptavina og við viljum halda því góða samstarfi sem við höfum átt við þá. Á því byggist framtíð fyrirtækisins og okkar sem hér vinnum,“ sagði Björgvin. Miðstöðin :: Fjórða kynslóðin tekin við rekstrinum: Þau stóru skipta máli en viðskipti ein- staklinga hryggjarstykkið í starfseminni :: Út um allan bæ og sinna upp í tíu verkefnum á dag :: Fjölbreytt verkefni Öflugur hópur hjá Miðstöðinni og flestir með réttindi. Eva Sigurðardóttir er Eyjamaður vikunnar

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.