Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Síða 16
pistillinn
Opnunartími / mánudaga-föstudaga kl . 7.30-21.00 / um helgar kl . 10-21
góð verslun í alfaraleið
Ný tilboð vikulega
Heimsendingarþjónusta.
sushi frá Osushi
kemur til okkar föstudaga kl. 17.30.
tökum niður pantanir!
vetraráætlun herjólfs
*áætlun getur tekið breytingum – nánar á saeferdir.is
vestmannaeyjar - þorlákshöfn
alla daga 08:00 15:30
þorlákshöfn - vestmannaeyjar
alla daga 11:45 19:15
Nánari upplýsingar á Marmari.is | sími 861 3886 | palmi@psr.is
Við fl ytjum inn hágæða
marmara, granít og aðra
eðalsteina milliliðalaust
frá stærsta marmara-
svæði heims, Carrara á
Ítalíu og náum þannig
gæðavöru á góðu verði.
Eldhús í Eyjum hjá
Berglindi og Sigurði.
Fanntófell ehf. | Bíldshöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
· Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré.
· Mikið úrval efna, áferða og lita.
· Framleiðum eftir óskum hvers og eins.
· Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði.
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern
dag, hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
Fyrir ekki mjög löngu síðan var ég
spurður að því hvort ég ætlaði að
halda áfram að búa í Vestmanna-
eyjum. Ástæðan, að ekki aðeins
voru allir ungarnir flognir úr
hreiðrinu heldur enginn þeirra
búandi í Eyjum. Ég svaraði
hiklaust játandi og þrátt fyrir að
hafa velt spurningunni fyrir mér
síðan er svarið hið sama. Ég og frú
Þorsteina erum ekki á förum.
Ástæðurnar eru nokkrar enda
jákvæðu hliðarnar fleiri en hinar
neikvæðu og þar skorar fólkið
hæst, því það er sama hvað hver
segir, Eyjamenn eru skemmtilegir
og eru lítið fyrir að flækja hlutina.
Eitthvað sem hentar mér, verandi
frekar hrekklaus og einföld sál.
Það er ótrúleg orka í þessu
samfélagi okkar sem Eyjafréttir
hafa endurspeglað frá árinu 1974
og eiga vonandi eftir að gera um
ókomna tíð. Orkan birtist okkur í
menningar- og félagslífi, atvinnu-
lífi og íþróttum þar sem ÍBV-
íþróttafélag flýgur flestum félögum
hærra þessa dagana. Hér er líka
metnaður í rekstri stofnana og
skólarnir eru að aðlaga sig nýjum
tímum.
Eins og kemur fram í blaðinu í dag
hefur mikið verið byggt hér síðustu
ár og nú eru fleiri íbúðahús í
byggingu en nokkurn tímann sem
sýnir að ungt fólk hefur trú á
framtíð Vestmannaeyja.
Þá má ekki gleyma hvað hér er
stutt í allt og gott aðgengi að
starfsfólki opinberra stofnana, hjá
bænum og í bönkunum. Eigi
maður erindi við þær allar er hægt
að græja það á einum klukkutíma
eða tveimur.
Þegar maður er kominn á þann
aldur að vera hættur að vinna er
fróðlegt að skoða hvað það er sem
skiptir máli. Þar er fjölskyldan
auðvitað efst á blaði og sú þjónusta
sem stendur fólki til boða þegar
kemur á efri árin.
Þar virðast Vestmannaeyjar vera á
pari við það besta sem býðst og þó
heilbrigðisþjónustan mætti vera
betri er til staðar sjúkrahús og fært
starfsfólk til að græja hlutina ef
eitthvað bjátar á. En þessu fólki
þarf að skapa betri tækifæri til að
takast á við erfiðari tilfelli og hér
eiga konur að geta fætt börn sín
með fullu öryggi.
Samgöngur er mála málanna þar
sem flugið sem valkostur hefur
algjörlega gleymst. Við höfum
einblínt á sjóleiðina og vonandi
sjáum við fram á betri tíð með nýju
skipi í haust. Krafan er svo að
haldið verði áfram að gera
Landeyjahöfn að því sem lagt var
upp með, að vera heilsárshöfn.
Í þessu samfélagi vil ég búa.
Hér vil
ég búa
ómar Garðarsson
omar@eyjafrett ir. is
Stimplar
Ýmsar gerðir og litir
Eyjafréttir
Strandvegi 47 | S. 481 1300