Fréttir - Eyjafréttir - 26.06.2018, Page 9
Eyjafréttir - 9Miðvikudagur 26. júní 2018
Það er á þessum tíma ársins
sem flestir Eyjamenn fara að
huga að fyrstu helginni í ágúst.
Það eru 37 dagar í að Eyja-
menn og aðrir gestir flykkjast
niður í Herjólfsdal til að hefja
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Ómissandi hluti hátíðarinnar er
hið árlega Þjóðhátíðarlag, að
þessu sinni eru lögin tvö og
eru það bræðurnir Jón og
Friðrik Dór Jónssynir sem þau
flytja lögin og semja. Lögin
heita Á sama tíma, á sama
stað sem er hið eiginlega
Þjóðhátíðarlag 2018 og
Heimaey sem er aukalag frá
þeim bræðrum.
Bræðurnir voru léttir og kátir á því
á kaffihúsi í Rússlandi að fylgja
Heimi og félögum á HM þegar
blaðamaður sló á þráðinn. Það var
heppni að ná þeim bræðrum saman
og voru þeir meira en til í að taka
spjall við Eyjafréttir.
Alltaf best þegar Eyjamenn
hrósa laginu
Aðspurðir sögðu þeir að viðbrögð
við lögunum tveimur hafi verið
ótrúlega góð. „Ótrúlega skemmtileg
og góð viðbögðin sem við höfum
fengið, það er reyndar alltaf best
þegar Eyjamenn hrósa því og það
hefur gerst núna nokkru sinnum,“
sagði Jón og tók Friðrik undir það
„já við höfum fengið frábær
viðbrögð við báðum lögunum og
fólk er að átta sig á því sem við
lögðum upp með, að á sama tíma á
sama stað sé hið eigilega þjóðhá-
tíðarlag og hitt sé aukalag,“ sagði
Friðrik Dór.
Gátum ekki sleppt þessu
klassíska þjóðhátíðarlagi
En að lögunum tveimur, af hverju
tvö lög? „Okkur langaði uppruna-
lega gera eitthvað öðruvísi
þjóðhátíðarlag, en svo fannt okkur
ekki geta sleppt þessu klassíska
þjóðhátíðarlagi og ákváðum því
bara að gera bæði og alveg sitthvora
nálgunina á þau og þetta var
útkoman,“ sagði Friðrik Dór.
Bræðurnir fóru fögrum orðum um
samstarfið milli þeirra tveggja,
„samstarfið gekk nokkur vel og við
vinnum vel saman,“ sagði Friðrik
Dór. „Þetta gekk bara þrusu vel,
byrjuðum að fara heim til mömmu
og pabba að glamra á píanóið sem
þar er svona aðeins til að átta okkur
á hvað við vildum gera. Síðan
unnum við náið með Pálma Ragnari
Ásgeirssyni í Stop Wait Go, hann
útsetti lagið með okkur og hjálpaði
helling til,“ sagði Jón.
Tökum þroskuðu týpuna á
þetta og tökum fjölskylduna
með
Bræðurnir eru að vanda vel
stemmdir fyrir þjóðhátíðinni og
hlakka til, „við tökum þroskuðu
týpuna á þetta og tökum fjölskyld-
una með, skemmtum okkur vel og
höfum þetta huggulegt. Það er alltaf
mjög vel hugsað um okkur og vel
tekið á móti okkur,“ sagði Friðrik
Dór. „Okkur þykir líka mjög vænt
um Þjóðhátíð, bæði sem listamenn
og gestir. Við vitum nokkurveginn
hvernig við getum kallað fram
þessa sönnu þjóðhátíðartilfiningu,“
sagði Jón.
Aðspurðir sögðu þeir báðir að taka
lagið á þjóðhátíð væri klárlega einn
af hápunktunum á árinu í vinnunni.
Að lokum vildu þeir svo senda
kærleikskveðjur til allra Eyja-
manna, „hlökkum til að sjá ykkur í
dalnum,“ sögðu bræðurnir að
endingu.
Írafár, Todmobile, Emmsjé
Gauti, Páll Óskar og fleiri
Þau atriði sem að hafa nú þegar
verið tilkynnt á Þjóðhátíð 2018
ásamt bræðrunum eru: Írafár,
Emmsjé Gauti, Jói Pé og Króli,
Skonrokk, Áttan, Páll Óskar,
Todmobile, DJ Egill Spegill,
Albatross, Jóhanna Guðrún, Salka
Sól, Sverrir Bergmann og Halldór
Gunnar, Stuðlabandið, Herra
Hnetusmjör. Ásamt fleiri lista-
mönnum.
Friðrik Dór og Jón Jónssynir höfundar Þjóðhátíðarlagsins í ár:
Þykir mjög vænt um Þjóðhátíð
:: bæði sem listamenn og gestir
SARA SjöfN GREttiSdóttiR
sarasjofn@eyjafrett ir. is
Þann 20. Júlí nk. verða liðin 50 ár
frá því fyrsta vatnsleiðslan var lögð
milli lands og Eyja. Bæjarstjórn
Vestmannaeyja hafði lengi fjallað
um þetta brýna hagsmunamál. Eftir
árangurslausar bornanir eftir vatni
var samþykkt í bæjarstjórn í júní
1965 að stofna Vatnsveitu Vm. og
fylgdu í kjölfarið miklar fram-
kvæmdir sem hófust vorið 1966,
fyrst uppi á landi, síðan lagningu
vatnsleiðslu milli lands og Eyja ,
koma upp dreifikerfi innanbæjar
og bygging stórs vatnstanks upp af
Löngulág. Framkvæmdum við
þetta umfangsmikla verk lauk að
mestu í apríl 1972.
Þessa merka atburðar í sögu
byggðarlagsins verður minnst með
útgáfu sérstaks 12 síðna Vatnsblaðs
sem verður fylgiblað með Eyja-
fréttum sem verða í aldreifingu í
næstu viku. Þá verður haldið opið
málþing í Safnahúsinu laugardag-
inn 7. Júlí kl. 14.00-16.00. Þar
verður farið yfir söguna í stórum
dráttum á myndrænan hátt og greint
frá vatnsskorti eins og hann birtist
húsmæðrum og fyrirtækjum í
Eyjum áður en vatnið kom. Þá
munu verktakar og eftirlitsmenn
fara yfir sinn þátt og á eftir verður
pallborð. Í lok dagskrár verður
sýnd 20 mín. kvikmynd um
lagningu fyrstu vatnsleiðslunnar til
Eyja 1968 , sem danska fyrirtækið
NKT framleiðandi leiðslanna lét
gera á sínum tíma. Er þetta liður í
dagskrá 45 ára goslokaafmælis.
Fjögurra manna áhugahópur
skipaður þeim Arnari Sigurmunds-
syni , Ívar Atlasyni, Stefáni Ó.
Jónassyni og Kára Bjarnasyni
hefur unnið að málinu og fékk
Ómar Garðarsson til að stýra 50 ára
afmælisblaði. Verkefnið hefur
hefur fengið góðan stuðning frá
Vestmannaeyjabæ og nokkrum
fyrirtækjum og stofnunum til að
létta kostnað undir útgáfuna og
opna málþingið laugardaginn 7.
Júlí kl. 14.00-16.00 á 2. hæð
Safnahússins. Þetta er opið
málþing og eru allir velkomnir.
50 ár frá komu vatnsins til Eyja:
Vatnsblað og
opið málþing í
Safnahúsinu
Vestmannaeyjabær:
Anna Rós skólastjóri og
Bjarney leikskólastjóri
Anna Rós Hallgrímsdóttir
ráðin skólastjóri GRV
Vestmannaeyjabær hefur valið
Önnu Rós Hallgrímsdóttur til að
gegna starfi skólastjóra Grunnskóla
Vestmannaeyja. Anna Rós er
grunnskólakennari með diplóma í
náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla
Íslands árið 2006. Hún hefur gegnt
starfi deildarstjóra við GRV frá
árinu 2010 og áður starfi grunn-
skólakennara við sama skóla.
Einnig hefur hún starfað sem
námsráðgjafi og kennari við
Árbæjar-skóla. Alls sóttu þrír um
starfið. Anna Rós mun taka við
stöðunni í næsta mánuði.
Á næstu vikum verður deildar-
stjórastaðan, sem Anna Rós gegndi,
auglýst og jafnframt gengið frá
ráðningu í áður auglýsta stöðu
aðstoðarskólastjóra Hamars-skóla
og deildastjórastöður á mið- og
yngsta stigi. Skólastjóri GRV
gengur frá þessum ráðningum.
Bjarney Magnúsdóttir ráðin
leikskólastjóri Kirkjugerðis
Vestmannaeyjabær hefur valið
Bjarneyju Magnúsdóttur til að
gegna stöðu skóla-stjóra leikskólans
Kirkjugerði. Bjarney er leikskóla-
kennari með framhalds-menntun í
sérkennslufræðum og stjórnun. Hún
hefur gegnt ýmsum störfum innan
leikskóla, s.s. sem deildarstjóri,
aðstoðarleikskólastjóri, sinnt
sérkennslu og nú síðustu 10 árin
hefur hún verið leikskólastjóri við
leikskólann Sólhvörf í Kópa-vogi.
Bjarney tekur við starfi leikskóla-
stjóra um miðjan ágúst. Alls sóttu
þrír um stöðu leikskólastjóra
Kirkjugerðis.
Vestmannaeyjabær þakkar Thelmu
Sigurðardóttur, fráfarandi leikskóla-
stjóra Kirkjugerðis, fyrir hennar
starf en hún hefur sinnt stöðu
leikskólastjóra afburða vel á því
tæpa ári sem hún hefur gegnt því.
Anna Rós Hallgrímsdóttir. Bjarney Magnúsdóttir.