Skessuhorn - 25.02.1998, Blaðsíða 4
4
Miðvikudagur 25. febrúar 1998
^áí^Sdutu/iwl
Skaginn býbur góban
daginn!
Stefnumótun Akraneskaupstabar vegna
Hvalfjarbarganga
BÆJARSTJÓRN Akraness var í
síðustu viku afhent fyrstu eintökin af
stefnumótunarskýrslu sem nýlokið er
við vegna opnunar Hvalfjarðargang-
anna. Um er að ræða veglegt rit því alls
eru um 370 blaðsíður f skýrslunni að
viðaukum meðtöldum. Yfirumsjón með
vinnslu stefnumótunarinnar var í hönd-
um sjö manna verkefnisstjómar undir
formennsku Gísla Gíslasonar bæjar-
stjóra. Auk hans sátu í nefndinni Gylfi
Þórðarson, Sturlaugur Sturlaugsson,
Sveinn Kristinsson, Birgir Jónsson,
Björgheiður Valdimarsdóttir og Lngólf-
ur Ingólfsson. Að verkefninu vann auk
þeirra stór hópur fólks. Þar má nefna
ýmsa embættismenn bæjarins, Byggða-
stofnun auk sjálfstæðra verktaka í ýms-
um efnisþáttum.
Miðað við umfang skýrslunnar má
segja að verkefnisstjórnin hafi verið
stórhuga við upphaf vinnu sinnar í októ-
bermánuði árið 1996. Samhliða útgáfu
aðalskýrslunnar em lagðar fram 8 við-
aukaskýrslur sem verkefnisstjómin og
bæjaryfirvöld hafa látið vinna undanfar-
ið ár. Þar má nefna stefnumótunar-
skýrslu í verslun, þjónustu, ferðaþjón-
ustu og afþreyingu á Akranesi fyrir árin
1997-2005 sem unnin er af Bjamheiði
Hallsdóttur og Sigríði Þrúði Stefáns-
dóttur, könnun á stöðu atvinnulífs á
Akranesi var unnin af Atvinnuráðgjöf
Vesturlands og Jóhannesi Finni Hall-
dórssyni, Gallup könnun um viðskipta-
venjur Akumesinga, kynningaráætlun
fyrir Akraneskaupstað unnin af nem-
endum Samvinnuháskólans á Bifröst
og markaðsáætlun Akraness sem Bjöm
S. Lámsson markaðs- og ferðamála-
fulltrúi samdi. Viðaukaskýrslumar em
síðan nýttar sem grunnur að sjálfri
stefnumótun Akraness sem fengið hef-
ur það ágæta nafn „Skaginn býður góð-
ann daginn - Akranes við upphaf nýrr-
ar aldar.“
Markmib
I inngangi skýrslumiar segir að meg-
inverkefni hennar séu:
„Að setja fram markmið og stefnu á
sem flestum sviðum samfélagsins á
Akranesi við upphaf nýrrar aldar.“
„Að gera tillögur um hvemig nýta
megi sem best þau jákvæðu áhrif sem
Hvalfjarðargöng geta haft á samfélag-
ið en reyna að draga úr neikvæðum
áhrifum.“
Akrafjall
í inngangi segir einnig að samtaka-
máttur íbúanna vegi þyngst í því að ár-
angur geti náðst svo að nýta megi
breyttar ytri aðstæður með tilkomu
Hvalfjarðarganganna, bæjaifélaginu til
framdráttar.
Jákvæð niöurstaða
Björn S. Lárusson starfaði með
verkefnisstjóm og átti meðal annarra
þátt í að búa skýrsluna til prentunar.
Hami hefur staifað mikið að þessu verk-
efni frá því hann tók við stöðu Mark-
aðs- og ferðamálafulltrúa á Akranesi
s.l. vor. Hann sagði í viðtali við Skessu-
hom að „ein helsta niðurstaða verkefn-
isstjómar er sú að í rauninni era engin
neikvæð áhrif sem Hvalfjarðargöng
hafa á bæjarfélagið á Akranesi ef und-
an er skilinn sá þáttur að um 40 manns,
sem unnið hafa við Akraborgina, missa
vinnu sína. Það er í raun afar jákvæð
niðurstaða að raunverulegar hættur fyr-
ir bæjarfélagið af tilkomu ganganna eru
fáar. Fátt bendir því til þess að Akranes
verði svefnbær, líkt og sumir hafa hald-
ið fram. Ef við t.d. tökum mið af
svokölluðum kringbyggjum Reykjavtk-
ur þá sjáum við að menningarlíf
blómstrar víða á þessum stöðum í formi
listasafna og þess háttar. Við eigum að
nýta áhrifin jákvætt. Ein mikilvægasta
niðurstaða stefnumótunarvinnunnar er
því sú að bæjarstjóm sem slík, getur
ekkert gert bæjarfélaginu til framdrátt-
ar nema að bæjarbúar standi saman,
allir sem einn. Ef menn eru sáttir við
þau búsetuskilyrði sem hér ríkja þurf-
um við engar áhyggjur að hafa“ sagði
Bjöm. Hann sagði einnig að verkefnis-
stjómin hefði leitað fanga mjög víða
varðandi efnisöflun. „Við vorum líka
stálheppin því okkur barst óvænt í
hendur skýrsla Byggðastofnunar, Bú-
seta á Islandi, þar sem Stefán Olafsson
prófessor rannsakaði orsakir búferla-
flutninga“.
Búsetuskilyrbi
I a.m.k. þremur viðaukaskýrslum
stefnumótunarskýrslunnar eru búsetu-
skilyrði könnuð sérstaklega. Þar kem-
ur m.a. fram að verð hitaveitu er hátt á
Akranesi og útsvarsprósenta er eimiig í
hærra lagi. Jákvæð búsetuskilyrði eru
hins vegar fleiri og veigameiri. Þar má
m.a. nefna þjónustulfamboðið í bænum,
tjölbreytta verslun, gott heilbrigðiskerfi,
skólamál og samgöngur auk félags- og
íþróttastarfs. Bjöm sagði að það væri
áhugavert að skoða hvemig Akumes-
ingar líta á ógnanir og tækifæri vegna
Hvalfjarðarganganna. Helsta ógnunin
er sú að ferðir Akraborgar leggjast af og
menn missa því vinnu sína. Tækifærin
era þó veigamikil. Þar má nefna bætt-
ar samgöngur, stærra atvinnusvæði,
aukin flutningaþjónusta sem eykur sam-
keppnishæfni fyrirtækja á Akranesi,
aukin eftirspum eftir vöru og þjónustu
sem ætti að leiða til aukins vömúrvals
auk þess sem búast má við jákvæðri
þróun búsetu á svæðinu þó vinna sé
stunduð í nágrannasveitarfélögunum.
Aögeröaáætlun
Til að lesendur geti glöggvað sig á
innihaldi stefnumótunar af þvf tagi sem
hér um ræðir er rétt að grípa niður í
skýrsluna. Fyrst skoðum við tillögur
verkefnisstjómar.
Hún skiptir tillögum sínum í fyrir-
byggjandi aðgerðir vegna opnunar
Hvalfjarðarganganna niður í „fyrstu að-
gerðir“ og „langtímaáætlun“. Til að
skipuleggja fyrstu aðgerðir leggur
nefndin fram verkefnaskrá fyrir árið
1998 til að nýta sem best þá athygli
sem opnun Ganganna vekur á Akranesi
og nágrenni. Þar era nefnd alls um 24
atriði sem á dagskrá verða áiið 1998 til
að vekja athygli á bænum. Sérstakir
viðburðir eru skipulagðir auk þess sem
lögð er aukin áhersla á viðburði sem í
undirbúningi era hjá félögum og sam-
tökum í bænum, t.d. landsmótið í hesta-
fþróttum á Æðarodda í júlílok. Þeir við-
burðir hafa verið felldir inn í áætlunina
en aðrir atburðir hafa verið samþykkt-
ir sem sérstakar aðgerðir bæjarstjómar.
Því má segja að búið sé að skipuleggja
samfellda dagskrá allt þetta ár með það
fyrir augum að koma Akranesi á kort-
ið í huga landans og ferðamanna al-
mennt. Meðal skipulagðra atburða má
nefna opnunarhátíð í júlí þar sem fyrir-
tæki á Akranesi nýta þá umferð sem
verður fyrstu dagana eftir að Göngin
opna með tilboðum í verslunum, úti-
markaði eða öðrum hvetjandi atburð-
um. Annar sérstakur liður í aðgerðaá-
ætluninni er að í samráði vð Reykjavík-
urmaraþon og Spöl er stefnt að því að
keppa í hlaupi í gegnum Göngin nokkra
áður en þau verða opnuð.
Langtímaáætlun
I langtímaáætlun leggur verkefhis-
stjórn áherslu á ýmis verkefni til að
draga úr neikvæðum áhrifum Hvalfjarð-
arganga. Bent er á að húshitunarkostn-
aður á Akranesi er hár og því óhag-
stæður þegar fólk ber saman búsetu-
skilyrði þar og á höfuðborgarsvæðinu.
f skipulagsmálum er bent á nauðsyn
þess að endurskoða aðalskipulag sveit-
arfélagsins með tilliti til Hvalfjarðar-
ganga og sameiningar Reykjavíkur og
Kjalamess. í atvinnumálum er bent á að
þær atvinnugreinar sem kunna að vera
í aukinni hættu era sérstaklega á sviði
sérhæfðrar þjónustu og -verslunar. Þær
atvinnugreinar sem kunna að vaxa era
tengdar byggingariðnaði, ferðaþjónustu
og smáiðnaði.
f umhverfismálum er lagt til að bæj-
aryfirvöld í samráði við fyrirtækin í
bænum móti umhverfisstefnu. Þar þurfi
að setja markmið m.t.t. nálægðarinnar
við stóriðjusvæðið á Grandartanga og
stóriðnaðarfyrirtækin þrjú, þ.e. Sem-
Minnismerki sjómannsins á Akratorgi eftir Martein Gu&mundsson.