Skessuhorn


Skessuhorn - 25.02.1998, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 25.02.1998, Blaðsíða 7
*i&£i$dumsk«l.- Miðvikudagur 25. febrúar 1998 7 Þorri er nú um garð genginn Upphaflega var Þorri blótaður á fyrsta degi hans. Þorrablót lögðust síðan af og urðu ekki almenn aftur fyrr en á síðari hluta síðustu aldar. Þá tóku ýmis félög upp á því að halda þorrablót aftur, fyrst í kaup- stöðum og síðan til sveita. Sá siður að blóta Þorra hefur ui lanfarna fjóra áratugi verið aðf erast í vöxt á nýjan leik og nú þykir enginn maður með mönnum nema hann mœti á a.m.k. eittþorrablót árlega, drekki mikrið brennivín, éti hákarl frá Hildibrandi í Bjarnarhöfn og syngi síðan fram undir morgun, eða á meðan vín og heilsa leyfa. Táp og fjör og frískir menn.....Sungib minni karla á þorrablóti í Logalandi 24. janúar sí&astlibinn. Loksins snjór! Börnin í Stykkishólmi fagna snjónum, --( ......- Kom vel út í verðkönnun Apótek Borgarness meb þeim lægstu SAMSTARFSVERKEFNI ASÍ, BSRB og Neytendasamtakanna um verðlagsaðhald og verðkannanir gerði verðkönnun á lyfjaverði utan höfuð- borgarsvæðisins þriðjudaginn 10. febr- úar s.l. í könnuninni kom fram að lyfjaverð er hærra á landsbyggðinni en á höfuð- borgarsvæðinu. Utan höfuðborgar- svæðisins var verðið lægst í þeim sveit- arfélögum þar sem samkeppni ríkir og stórir markaðir eru til staðar, sem og ná- lægð við höfuðborgarsvæðið. Undantekning frá þessu eru apótek- in í Borgamesi og á Siglufirði sém.hafa lágt verð þrátt fyrir takmarkaða sam- keppni og lítinn markað. í könnuninni var kahnað verð á 32 algengum lyfjum og tekið með bæði verð til sjúklings og verð til elli- og ör- orkulífeyrisþega. Þrjú Apótek á landsbyggðinni voru lægri en Borgarness Apótek. Þau voru Selfoss Apótek, Sunnu Apótek á Akur- eyri og Siglufjarðar Apótek. Fimm lægstu lyfjaverslanirnar voru undir meðalverði á höfuðborgarsvæðinu. Miðað við að meðalverð á höfuð- borgarsvæðinu sé 100 er Borgarness Apótek með verðið 93,89 samkvæmt könnuninni. Þór Oddsson apótekari í Borgamesi var að vonum ánægður með niðurstöð- ur könnunarinnar en bætti því við að hann hefði lækkað lyfjaverð enn frek- ar frá því að könnunin var gerð. Þór Oddsson lyfjafræbingur í Borg- arness Apóteki. Sólarkaffi í Grundarfirbi í nokkur ár hafa starfsmenn áhalda- húss Eyrarsveitar fagnað sólarkomu með því að bjóða öðrum starfsmönnum sveitarfélagsins í nýbakaðar pönnu- kökur og rjómavöfflur. Blaðamaður Skessuhorns rann á lyktina og varð ekki fyrir vonbrigðum. Pönnukökumar í Grundarfirði fá a.m.k. fjórar stjömur. Á myndinni eru bakarameistaramir að störfum. Ostur er veislukostur OSTAHORNIÐ er nýleg verslun í Borgarnesi sem opnuð var skömrnu fyrir jól á síðasta ári. Blaðamaður leit við í Ostahominu s.l. föstudag en þá bauð eigandinn, Sigurbjörg Viggós- dóttir, gestum og gangandi að bragða á ostakökum og fleira góðgæti. Sigurbjörg sagði að vestlendingar hefðu tekið versluninni velog ágætis verslun hefði verið fyrir jólin. I Ostahorninu selur Sigurbjörg alla helstu íslensku ostana auk innfluttra osta. Þá er hún með á boðstólum ým- iskonar heilsuvörur og síðast en ekki síst er hún með veisluþjónustu þar sem hún útbýr snittur, brauðtertur og osta- bakka af ýmsum stærðum og gerðum. Sigurbjörg ásamt a&sto&arkonum sínum í Ostahorninu. Canon Canon litaprentarar Verðfrákr. 13.750, AOpen tölvur útbúnar sam- kvæmt óskum hvers og eins (verð við allra hæfi) HP litaprentarar Verð frá kr. 11.900, Margmiðlunartölvur hlað- nar búnaði * Módem * Minni * Harðir diskar * Hljóðkort og margt fleira TOLVUBONDINN Egilsgötu 11,310 Borgarnesi Sími 437-2050

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.