Skessuhorn


Skessuhorn - 25.02.1998, Page 6

Skessuhorn - 25.02.1998, Page 6
6 Miðvikudagur 25. febrúar 1998 Samvinnuháskólinn í alþjóblegt samstarf Rætt vib fjóra Bifrestinga SAMVINNUHÁSKÓLINN á Bif- röst tekur nú þátt í Erasmus /Sókra- tes samstarfsáætluninni sem miðar að nemenda- og kennaraskiptum há- skóla hér á landi og erlendis og styrkt er af Evrópusambandinu. Skólinn er nú í samstarfi við aðra háskóla í Englandi, Hollandi, Austurríki og Þýskalandi. Kennaraskipti eru hafin og viðræður eru í gangi um aukið samstarf á því sviði við skóia í Evr- ópu og Bandaríkjunum. f haust fóru fyrstu nemendurnir frá Samvinnuhá- skólanum til náms erlendis. Tveir fóru til Englands og einn til Hollands. Eftir áramót komu síðan þrír Þjóð- verjar til námsdvalar á Bifröst. Blaðamanni Skessuhorns lék for- vitni á að kynnast þessu samstarfi skól- ans og hitti að máli Arinbjöm Kúld, einn af þremur nemendum BS deildar við Samvinnuháskólann sem fóru utan sd. haust til námsdvalar. Einnig var rætt við Þjóðverjana sem nú dvelja við nám á Bifröst. Einn af stærstu háskólum Englands Arinbjöm er nú að ljúka sínu 4. ári á Bifröst. Hann var spurður hvert hann efði farið. „Háskólinn sem ég og Agn- s Vala Bryndal völdum okkur nefnist outhampton Institute of Higher Ed- cation og er einn af stærstu háskólum Englands með um fimmtán þúsund nemendur. Það var greinilegt af þeim móttökum sem við fengum við komuna í skólann að þar vom engir aukvisar á ferð heldur fólk sem var vant því að taka á móti erlendum gestum. Það var mjög mikilvægt fyrir okkur og hina 300 erlendu nemendurna að finna að við vorum velkomin og að heimamenn vom tilbúnir til að gera allt sem í þeir- ra valdi stóð til að okkur liði vel. Það reyndist okkur samt þegar upp var stað- ið svolítið erfitt að fmna taktinn á með- al enskra samnemenda okkar þar sem þeir reyndust yfirleitt svolítið lokaðir. Við náðum hins vegar fljótlega góðum takti með öðmm erlendum nemendum, t.d. frá Noregi og Svíþjóð og ekki síst hinum blóðheitu Spánverjum sem lífg- uðu all vemlega upp á tilveruna á með- an á dvöl okkar stóð“. Samvinnuháskóiinn á Bifröst. Ólík uppbygging námsins En hvað var ólíkt í náminu á Bifröst og í Southamton? „Námið í South- ampton Institute er byggt upp á annan hátt en í Samvinnuháskólanum. I fyrs- ta lagi em námsgreinarnar sem nem- endur þurfa að taka á misserinu aðeins þrjár miðað við fimm hér heima. Mun- urinn liggur í dýpt námsins, þ.e. að mun dýpra er farið í viðkomandi náms- greinar. I öðru lagi er lögð önnur áher- sla á fjölda verkefna. Þar þarf aðeins að skila tveimur til þremur verkefnum í hverri námsgrein, ritgerð og kymiingum og er umfangið þess í stað mun meira rniðað við verkefnin hér heima. A móti kemur að verkefnin í Samvinnuháskól- anum eru mun fleiri eða a.m.k. tíu í hverri grein. í þriðja lagi er meira lagt upp úr heimanámi, bóka- og tímarita- lestri og heimildaleit á bókasafni og í gagnabönkum. I fjórða lagi er mikið lagt upp úr alþjóðleika í viðskiptatengd- um fögum og lögð áhersla á að nem- endur tileinki sér alþjóðleg viðhorf og sjónarhorn. I fimmta og síðasta lagi þarf að sjálfsögðu að vinna öll verk- efni á ensku og tjá sig á málinu“, sagði Arinbjöm. Ómetanleg reynsla „Það vill oft brenna við þegar mað- ur er í eins afmörkuðu umhverfi og er hér á Bifröst að maður verður þröng- sýnn og sér oft ekki annað en það sem í bókunum stendur þó námið eigi að gefa tilefni til annars. Það var því einna helst það að auka víðsýni og fá dýpri skilning á því sem að gerast í umheim- inum sem við lögðum upp með í byrj- un. Því verður ekki neitað að þessar væntingar okkar voru uppfylltar og má því segja að tilganginum hafi verið náð. Það sem stendur helst upp úr þegar heim er komið eru öll samskiptin og samvinnan sem við höfðum við nem- endur víða að úr Evrópu. Samskipti við fólk af hinum ýmsu þjóðemum og al- þjóðlegt yfirbragð námsins er það sem eftir situr ásamt því að htifa kynnst ólfk- um menningarhefðum og lífsháttum. Auk þess fengum við smjörþefinn af því hvemig hlutirnir ganga fyrir sig í er- lendum skólum og hvaða væntingar em gerðar til nemenda þar“, sagði Arin- bjöm að lokum. Þýskir nemendur á Bifröst Nú í janúar komu fyrstu erlendu skiptinemarnir til námsdvalar í Sam- vinnuháskólanum. Þau koma frá Bayer- ische Beamtenfachhochschule í Hof sem tilheyrir Bæjaralandi í Þýskalandi. Þau heita Andrea Pompe, Miriam Rneix og Peter Polzer. Háskólinn þeirra sér- hæfir sig í að þjálfa og mennta fólk til stjómsýslustarfa. Námið tekur þrjú ár og lýkur með sérhæfðu BA prófi í op- inbeni stjórnsýslu. Fjöldi nemenda við skólann er um 800. Ólík uppbygging námsins Skiptinemarnir munu dvelja á Bif- röst næstu þrjá mánuði og nema þau viðskiptatengdu fög sem kennd eru á þriðja fjórðungi í BS deild Samvinnu- háskólans. Kennsla fer öll fram á ensku og er það nýjung við skólann. Aðspurð segja þau að það sé ekkert vandamál og sé góð reynsla þar sem þau eru ekki vön kennslu á ensku og það þjálft þau í notkun enskrar tungu. Þeim finnst námið og uppbygging þess mjög góð en samt öðruvísi en í Þýskalandi og mun- ar þar mest um mikið hópstarf, verk- efnavinnu, umræður um námsefnið í verkefnatímum og persónulegt sam- band við nemendur og kennara. Margt ólíkt hér Þeim fannst öllum mjög skrýtið að koma til Bifrastar þar sem engar versl- anamiðstöðvar eru, né heldur miðbær, líkt og í Þýskalandi. Engin veitingahús eru heldur og það að versla inn getur verið mikið mál þegar enginn er bíllinn. Annars þykir þeim umhverfið á Bifröst einstakt og margir fagrir staðir sem þau hafa skoðað og nefna sérstaklega Glanna, Grábrók og Hreðavatn í því sambandi. Þau hafa í hyggju að skoða fleiri staði í Borgarfirði næstu vikur og víðar ef tími gefst til. Þeim finnst íslensku nemendumir rnjög opnir og vingjamlegir og alltaf tilbúnir til að hjálpa. Þau búa í nýju nemendagörðunum á Bifröst með ís- lenskum samnemendum þeirra og gengur sambúðin vel. Þau hlakka mik- ið til að fara á Bifróvision [sem haldin var um s.l. helgi] og kynnast því hvem- ig Islendingar skemmta sér! íslenska vatnib og loftiö einstakt ísland kom þeim á óvart; var ekki eins kalt og dimmt og þau áttu von á. Náttúran var einnig ólfk því sem þau bjuggust við, þ.e. óbeislaðar ár (Norð- urá), breytileiki veðursins, norðurljós- in og hin sérstaka litríka birta sem skap- ast í sólarlaginu og skýjafarinu. Þau stefna á að koma aftur og þá að sumar- lagi til að upplifa 24 stunda bjartan dag og sumarnáttúrana. Komandi úr meira en milljón manna borg finnst þeim hreina og tæra loftið og vatnið einstakt og benda á að við ættum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda því óspilltu áfram. Að svo mæltu eru viðmælendur okkar roknir í amstur skólavikunnar. Talib frá vinstri: Miriam, Peter, Andrea og Arinbjörn KúSd, nemendur á Bif- röst. Bifróvisíón, árshátíö og söngvakeppni Samvinnu- háskólans var haldin laugar- dagskvöldið 21. febrúar í Hótel Borgamesi. Myndimar hér til hliðar vom teknar við það tœkifœri og skýra sig sjádfar. Myndin fyrir neðan sýnir gesti á Bifró. IT’S A BOYI IT'S v IAOB V S.il Aoa v s.ii

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.