Skessuhorn - 25.02.1998, Side 9
JnJ&SdUfltSftd. I
Miðvikudagur 25. febrúar 1998
9
Langþrábur
áfangi
Slitlag á Kalmansvelli og
Smibjuvelli
FJÁRHAGSÁÆTLUN Akranes-
kaupstaðar var afgreidd í síðustu viku.
Stærstu framkvæmdir ársins eru bygg-
ing leikskóla við Laugarbraut sem sagt
er frá annars staðar í blaðinu. Þá er
áætlað að verja um 30 milljónum til
gatnagerðar. Stærstí liðurinn í gatna-
gerðinni verður lagning slitlags á Kaim-
ansvelli og Smiðjuvelli, „Það er lang-
þráður áfangi sem verður loksins að
veruleika í sumar“, sagði Gísli Gíslason
bæjarstjóri.
Einnig er á áætlun að gera Leynis-
braut klára til byggingar. Stofn götunn-
ar verður undirbyggður auk tveggja
botnlanga.
I fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð
fyrir að verja nokkru fé í endurbygg-
ingu Fjölbrautarskóla Vestmrlands og
hönnun Brekkubæjarskóla.“Einsetning
grunnskólanna tveggja er stærsta verk-
efni næstu ára“, sagði Gfsh. „Gert er ráð
fyrir að meginhluti framkvæmdafjár
bæjarins til ársins 2001 fari í stækkun
skólanna. Byrjað verður á ffamkvæmd-
um við Brekkubæjarskóla og síðan
Gísli Gísiason, bæjarstjóri.
verður Grundaskóli tekinn fyrir“, sagði
Gísli.
Að sögn bæjarstjórans er meira lagt
í framkvæmdir á vegum bæjarins en
oftast áður. Fjárhagsáætluninni er skil-
að með um 108 milljóna lántöku, en að
frádregnum afborgunum af eldri lán-
um er skuldaaukningin um 40 milljón-
ir.
íþróttadagur
Skallagríms
Frá ver&launaafhendingu vegna kjörs íþróttamanns Borgarbygg&ar. Bragi H.
Magnússon, íþróttama&ur borgarbygg&ar er þri&ji frá hægri í fremri rö&.
FIMMTUDAGINN 19. febrúar var
íþróttadagur Skallagríms haldinn há-
tíðlegur. Klukkan sjö um morguninn
var opnað fyrir fyrstu pottormunum og
þeim eins og öðrum viðskiptavinum
íþróttahússins boðinn ókeypis aðgang-
ur að öllu því sem íþróttahúsið hefur
upp á að bjóða. I hádeginu stjórnaði
Björgvin Bjarnason Mullers æfingum
við mikinn fögnuð viðstaddra. Kl. 13
hófst svo íþróttahátíð Gmnnskóla Borg-
amess. Þar var keppt í mörgum grein-
um, svo sem hafnabolta, gryfjubolta,
sundi og fl. Yngri flokkamir sýndu ein-
nig hvað þeir em að fást við í íþrótta-
tímum sínum í húsinu. Um kvöldið var
lýst kjöri Iþróttamanns Borgarbyggðar
en hann var að þessu sinni Bragi Magn-
ússon körfuboltakappi. Knattspymu-
deild Skallagríms var afhentur bikar
fyrir frábært unglingastarf á síðasta ári.
Að því loknu var Skallagrímsbikarinn
afhentur. Hann hlýtur það fyrirtæki eða
einstaklingur sem skarar fram úr í
stuðningi við Skallagrím. Að þessu
sinni fékk Sparisjóður Mýrasýslu við-
urkenninguna.
Einnig var Elínu Önnu Steinarsdótt-
ur veitt viðurkenning úr minningarsjóði
Auðuns Hlíðkvists Kristmarssonar.
/tnefndir voru auk þessa fþróttamenn
hinna ýmsu deilda Skállagríms.
Kl. 20 hófst svo lokapunktur dags-
ins með leik Skallagríms og Njarðvik-
ur í DHL deildinni.
Félagsheimili Skallagríms að
Skallagrímsgötu 7a var opið almenn-
ingi. Húsið er allt endumýjað og hafa
félagsmenn mai'gir hverjir lagt mikið á
sig til að gera aðstöðuna þar sent glæsi-
legasta. Margt gesta kom til að skoða
aðstöðuna og fá sér kaffisopa. Bæjar-
stjóm Borgarbyggðar á þakkir skildtu'
fyrir hversu vel er búið að íþróttafólki
í Borgarbyggð.
Þjóbgarðurinn á
Snæfellsnesi
Undirbúningur ab hefjast fyrir alvöru
Snæfellsjökull
NÚ LÍTUR út fyrir að gamall
draumur margra Snæfellinga sé að ræt-
ast þar sem áfonnað er að koma á fót
þjóðgarði á Snæfellsnesi. Þær fyrirætl-
anir vom formlega staðfestar við gerð
fjárlaga þessa árs en ákveðið var að
veita 2,6 milljónum til undirbúnings-
vinnu.
“Við skiljum málið þannig að þessa
fjárveitingu eigi m.a. að nota til að ráða
mann til að vinna að undirbúningnum,
sagði Guðjón Pedersen bæjarstjóri í
Snæfellsbæ. “Við erum að leita eftir
viðræðum við Landbúnaðar- og Um-
hverfisráðuneyti um meðferð jarða inn-
an þjóðgarðsins. Umhverfisráðuneytið
þarf að semja við eigendur jarða sem
eru í einkaeign en hugsanlegt er að
Snæfellsbær og ríkið hafi makaskipti á
landi Snæfellsbæjar og jörð í eigu rík-
isins,” sagði Guðjón.
Þjóðgarðurinn verður með landa-
merkjum Gufuskála og Dagverðareyri
og austur fyrir jökul. Snæfellsjökull
verður því allur innan þjóðgarðsins.
Guðjón var spurður hvort það hefði
í för með sér hömlur fyrir ferðaþjónustu
á svæðinu. “Þjóðgarðurinn er hugsað-
ur sem verndarsvæði þar sem ferða-
menn eiga að geta notið ósnortinnar
náttúru. Þjóðgarðurinn ætti heldur að
vera lyftistöng fyrir þennan atvinnu-
veg beggja vegna Snæfellsness,” sagði
Guðjón. Hann benti m.a. á að austur-
hluti jökulsins væri skipulagður sem
skíðasvæði. Að öðru leyti sagði hann
allt vera ómótað en um leið og svæðið
er orðið að þjóðgarði heyrir það undir
lögsögu ríkisins.
Mountain Taxi
Kristján Kristjánsson
Símar: 435 1444, 852 5665
og 435 1117
Dorgveiðiferðir
- jöklaferðir.
Skipuleggjum ferðir
fyrir einstaklinga
og hópa, t.d. vinnu-
staði, saumaklúbba
og aðra hressa
hópa.