Skessuhorn - 04.03.1998, Blaðsíða 9
Mlðvikudagur 4. mars 1998
9
Leifur heppni var
Dalamabur
-ræll vib Fribjón Þórbarson formann
Eiríksstabanefndar
ÚT UM víða veröld er undirbún-
ingur í fullum gangi fyrir aldamótaár-
ið 2000. Dalamenn undirbúa þó á öðr-
um forsendum. Þeir ætla m.a. að minn-
ast þess að þeirra maður, Leifur Eiríks-
son frá Eiríksstöðum í Haukadal, fann
Ameríku árið 1000.
Eiríksstaðanefnd hefur í þrjú ár unn-
ið að tillögum um hvemig landafund-
anna skuli minnst og hvernig nafni
Leifs og foreldra hans verði best hald-
ið á lofti í þeirra heimabyggð. Nefnd-
ina skipa Friðjón Þórðarson fyrrver-
andi ráðherra, Sigurður Rúnar Friðjóns-
son oddviti Dalabyggðar, Jóhann Sæ-
mundsson bóndi á Ási í Laxárdal, Séra
Óskar Ingi Ingason sóknarprestur í
Búðardal og Marteinn Valdimarsson
sveitarstjóri Dalabyggðar.
Blaðamaður Skessuhoms ræddi við
Friðjón Þórðarson formann Eiríksstaða-
nefndar og fregnaði hvað Dalamenn
hyggjast gera í minningu Leifs.
.Uandafundanefnd ríkisstjómarinn-
ar óskaði eftir tillögum um það hvem-
ig landafundanna skuli minnst. Við fór-
um og áttum með þeim ágætan fund
og viðræður um samstarf. Við álítum
það ekki einkamál okkar að minnast
þessara tímamóta þó Leifur hafi verið
Dalamaður“, sagði Friðjón.
Vínlandssafn
„Eiríksstaðanefndin leggur til að
bær Eiríks og Þjóðhildar verði byggð-
ur upp á Eiríksstöðum sem líkastur því
sem spökustu menn telja að hann hafi
litið út. Þá er gert ráð fyrir að minnis-
varði um Leif og hugsanlega einnig
foreldra hans verði reistur við bæinn“.
Einnig mun stefnt að því að LeTfur
eigi sér samastað í Búðardal og þar er
rætt um að byggja Víniandssafn sem
yrði þá hluti af allsherjarsafni Dala-
manna. Hugsanlegt er að safnahúsið
verði byggt við félagsheimilið Dala-
búð.
I tenglsum við vinnu Eiríksstaða-
nefndarinnar var sett af stað viðbótar
fornleifarannsókn á Eirfksstöðum en
áður hafa rústir bæjarins verið rann-
sakaðar tvisvar sinnurn. Að sögn Frið-
jóns kom ýmislegt í ljós sem menn
höfðu ekki átt von á. „Þó þessum þætti
sé lokið er horft til framtíðar með að
láta rannsaka meira á staðnum, en það
þykir mjög áhugavert“, sagði Friðjón.
Almennur áhugi
Friðjón sagði að næsta skref væri
að afla fjármagns til framkvæmda á Ei-
ríksstöðum. Kynningarbæklingur vegna
málsins er í undirbúningi og verður
honum dreift til aðila í Bandaríkjun-
um, Grænlandi, Noregi, Færeyjum,
Kanada og Islandi. „Aðilar í þessum
löndum eru mjög áhugasamir og við
bindum vonir við samvinnu við þessar
þjóðir. Benedikta Thorsteinsson fyrr-
verandi ráðherra í Grænlandsstjóm hef-
ur verið tilnefnd í samstarfsnefnd vegna
landafundanna og hún er mjög áhuga-
söm um uppbyggingu á Eiríksstöðum.
Þá er sérstök nefnd að vinna að upp-
byggingu Brattahlíðarkirkju á Græn-
landi. I henni sitja m.a. Ámi Johnsen og
Svavar Gestsson alþingismenn. Við
leggjum áherslu á samstarf við þessa
aðila og aðra sem vinna að því að minn-
ast landafundanna á einhvern hátt“,
sagði Friðjón að lokum.
Smáar
og
ódýrar
Myndskurður í tré
Tréskurðarnámskeið verður
haldið í Búðardal ef næg þátt-
taka fæst. Þeir sem hyggja á
þátttöku eru beðnir að skrá sig
sem fyrst hjá Jóhannesi Ás-
bjarnarsyni. Sími: 462 7516
eftirki. 18:00 alla daga.
Tapað fundið
Svefnpoki, merktur Karli
Gunnarssyni, hefur verið í
óskilum í Hyrnunni á annað ár.
Nánari upplýsingar veita
starfsmenn bensínafgreiðslu
Hyrnunnar.
Sími 437 1200.
Til sölu íslensk frímerki
óstimpluð frá 1957-1987.
Ársmöppurfrá íslandi og
Færeyjum. Óstimpluð frímerki
frá Færeyjum, Rússlandi og
A-Þýskalandi.
Upplýsingar í síma
561 4460.
Til sölu er Maxon NMT
farsími. Upplýsingar í
síma 435 1446.
íbúar í Borgarbyggð, Borgarhreppi,
Álftaneshreppi og Þverárhlíð
Stofnfundur nýs félags til undirbúnings á
framboði til bæjarstjórnar í vor verður haldinn
í Búðarkletti miðvikudaginn 11. mars kl. 20:30.
DAGSKRÁ:
1. Fundarsetning
2. Drög að samþykktum félagsins
3. Verkefnin framundan
4. Umræður
5. Kjör stjórnar og kosninganefndar
Fundurinn veröur nánar kynntur með dreifibráfi
Nefndin
Tónleikar í Búðarkletti Borgarnesi
Verið öll velkomin.
TÓNLIST FYRIR ALLA
ÁyS>tar/£-
'á’rirfy^
Gísl á Akranesi
LEIKDEILD NFFA æfir nú um Ámadóttir sér um dansstjóm. Leikarar
þessar mundir leikritið Gísl eftir Brend- em sautján, allt nemendur Fjölbrautar-
an Behan í þýðingu Jónasar Ámason- skólans á Akranesi, en alls taka um níu-
ar. Jakob Þór Einarsson leikstýrir, söng- tíu nemendur þátt í uppfærslunni á einn
stjóri er Flosi Einarsson og Jóhanna eða annan hátt.
Nú er Gísi æföur af kappi á Akranesi, enda stefnt aö frumsýningu 14. mars.
Sameininginga-
vibræbiír hafnar
HAFNAR em viðræður til að kanna
gmndvöll sameiningar Dalabyggðar,
Reykhólahrepps og Saurbæjarhrepps.
Stjómir þessara sveitarfélaga hittust á
fundi fyrir skömmu og þar kom fram
vilji til að skoða grundvöll fyrir samein-
ingu.
Ákveðið var að hver sveitarstjóm
skipi tvo menn í sameiningamefnd. Að
sögn Sigurðar Rúnars Friðjónssonar
oddvita Dalabyggðar verður búið að
skipa nefndina í lok þessarar viku. Sig-
urður Rúnar sagði að nefndin myndi
leggja mat á stöðuna og leggja málin
síðan fyrir sveitarstjómimar. „Senni-
lega er tíminn hlaupinn frá okkur vaið-
andi sameiningarkosningar fyrir vorið
en það er samt sem áður allt opið ef
þessi mál ganga hratt fyrir sig“, sagði
Sigurður.
Hann sagði að sveitarfélögin þrjú
hefðu unnið mikið saman en samt sem
áður væri staða þeirra svoh'tið ólík. Sig-
uður taldi hinsvegar engin vandamál
því samfara þótt sameiningin næði yfir
Vestfirbir og vesturland — Skyggba
svæ&ib sýnir þau þrjú sveitarfélög
sem nú kanna hugsanlega samein-
ingu.
kjördæmamörk. Það væri vilji íbúanna
sem réði.
NUPO létt
- nýtt og betra bragð!
Kynning á NUPO létt næringarduftinu verður í
Borgarness Apóteki
föstudaginn 6. mars kl. 15-19
Nú hefur úrvalið af NUPO létt aukist með nýju
epla- og appelsínubragði. Einnig hefur kakó- og
jarðarberjabragðið verið bragðbætt.
Tilboðsverð kr. 888,-