Skessuhorn


Skessuhorn - 04.03.1998, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 04.03.1998, Blaðsíða 10
10 Miðvikudagur 4. mars 1998 - BETRI HEILSA Viltu grennast eða þyngjast án þess að þræla - púla - svitna. Vantar þig orku? Viltu koma jafnvægi á líkamann og láta þér líða betur? Upplýsingar í síma 462 7765 OPIÐ: mán. - fös. kl. 8-12 & kl.13 -18 lau. kl. 10 -12 • EINANGRUNARGLER • SPEGLAR _ • INNRÖMMUN • GJAFAVARA • LEIKFÖNG CA C lerslípun Akraness ehf. BLÆS EÐA LEKUR MEÐ? Ljóðib í laginu Tónlist fyrir alla á Vesturlandi Óvitar í Borgar- nesi LEIKDEILD UMF Skallagríms í Borgarnesi er nú að leggja lokahönd á uppsetningu leikritsins Ovitar, eftir Guðrúnu Helgadóttur. Verkið er gam- anleikur fyrir alla fjölskylduna en þó með fínlegri ádeilu á samfélagið. Leik- ritið er sérstakt fyrir þá sök að börn leika fullorðna og fullorðnir leika böm í sýningunni. Æfingar hafa staðið yfir frá því í janúar undir stjóm Harðar Torfasontir leikstjóra. Alls taka 23 leikarar þátt í sýningunni. Verkið verður frumsýnt föstudaginn 7. mars n.k. og er ætlunin að hafa sýningar nokkuð ört. Guömundur fékk verblaun Á ÖSKUDAGINN tók Guðmundur F. Hallgrímsson, 9 ára piltur á Akrtmesi, við fyrstu verðlaunum í eldvarnarget- raun félags slökkviliðsmanna. Verð- launin sem Guðmundur fékk voru ekki af lakari endanum: Olympus myndavél, reykskynjari, bamabókin Gættu þín á eldi, viðurkenningarskjal og blaðið Slökkviliðsmaðurinn. Skagamenn hafa haft heppnina með sér því undanfarin ár hafa alltaf komið einhver verðlaun á Akranes úr eldvam- argetrauninni. góbri Gaman og alvara í SJOLEIÐIN TIL BAGDAD eftir Jökul Jakobsson í flutningi Ung- mennafélags Reykdœla. Sýnt íFélagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Leikstjóri Valgeir Skag- fjörð. Leikendur: Ásdís Ármannsdóttir, Asgeir Asgeirsson, Hrund Olafsdóttir, Jón Eyjólfsson, Steinunn Garðars- dóttir, Þorvaldur Jónsson og Þór Þor- steinsson. Verkið fjallar um tímabil í lífi fjöl- skyldu sem eins og flestar aðrar fjöl- skyldur á við ýmis vandamál að stríða. Brostnar vonir, ósigrar og vonleysi er það sem einkennir líf fólksins. I upphafi leikritsins kemur sjómað- urinn Halldór heim á æskustöðvarnar og hittir þar fyrir æskuástina Signýju sem býr í óhamingjusömu hjónabandi með drykkfelldum ævintýramanni, Ei- ríki. Heimkoma Halldórs hleypir ljós- glætu inn það rnyrkur sem Signý virð- ist vera búin að sætta sig við. Sjóleiðin er alvarlegt verk og harm- þmngið á köflum en samt er húmorinn alltaf til staðar. I uppsetningu Umf Reykdæla blandast þessar andstæður skemmtilega saman þannig að úr verð- ur skemmtileg en jafnframt áhrifarík sýning. Sýningin í heild var fagmannlega unnin og mikið lagt í alla umgjörð, s.s. búninga og gerfi. Sviðsmyndin var vel útfærð og hafði greinilega verið nostr- að við hvert smáatriði. Það sem helst var hægt að setja út á í þeim efnurn var að gamli maðurinn, sem var að mestu leyti staðsettur neðan við sviðið, var hulinn þeim áhorfendum sem sátu aft- arlega í salnum. Þá örlaði fyrir óöryggi í ljósastjórnuninni. Leikurinn var í heild afbragðsgóður enda vanir menn og konur í hverju hlut- verki. Þór Þorsteinsson átti góðan leik í hlutverki Halldórs. Hrund Ólafsdótt- ir og Þorvaldur Jónsson voru áhrifa- mikil í hlutverkum hjónanna óham- ingjusömu. Þorvaldur náði ósjaldan að kalla fram hlátrasköll þegar hann túik- aði eymd drykkjumannsins. Stjarna kvöldsins var að dómi undinitaðs Stein- unn Garðarsdóttir sem fór á kostum í hlutverki Þuríðar móður Signýjar. Hlut- verkið var að vísu það sem helst bauð upp á gamanleik en Steinunn náði að koma til skila þeim húmor sem það hafði upp á að bjóða án þess að það væri á kostnað alvörunnar. Ásdís Ár- mannsdóttir komst vel frá hlutverki unglingsstúlkunnar Hildar og Jón Eyj- ólfsson náði að kalla fram brosi bland- na samúð sem umkomulaus öldungur. Þá átti Ásgeir Ásgeirsson skemmtileg- ar innkomur í hlutverki Munda. Uppsetning Reykdæla á Sjóleiðinni til Bagdad er virkilega metnaðarfull og Hjónin óhamingjusömu, leikin af Þorvaldi Jónssyni og Hrund Olafsdóttur. Þeir tónleikar listamannanna sem eftir eru, verða sem hér segir: I Stykkishólmskirkju miðvikudag- inn 4. mars (í kvöld) kl. 20.30 og í Búðarkletti Borgarnesi á morgun fimmtudaginn 5. mars kl. 20.30. Listamennirnir leika fyrir börn í Kleppjárnsreykjaskóla, Varmalands- skóla ogHeiðarskóIa á fimmtudag og Ijúka ferð sinni um Vesturland með tónleikumfyrir nemendur Grunnskól- ans í Borgtunesi föstudaginn 6. mars, morguninn eftirtónleikana í Búðar- kletti. (Ur fréttatilkynningu) Guömundur F. Hailgrímsson settist undir stýri á slökkvibílnum í tilefni dagsins. NÚ stendur yfir tónleikaröð með vísnatónlist sem flutt verður í öllutn grunnskólum á Vesturlandi, alls um 16 skólum. Flytjendur eru Anna Pálína Ámadóttir ásamt Gunnari Gunnarssyni píanó, Gunnari Hraíhssyni kontrabassa, og Pétri Grétarssyni slagverki. Bæjar- og héraðs- bókasafnið á Akranesi er opið mánudaga til föstu- daga frá klukkan 14:00 til 20:00. Er með nýja gerð af þéttifræsara ásamt þéttilistum. Þétti hurðir sem ekki hafa haft þéttikant og eins þær sem eru með slottlista og eða aðra lista. Góð reynsla er komin á __ þessa þéttingu. Upplýsingar gefur: i Trésmiðja Pálma S Sími: 437 0034 eða 853 5948 YKKAR HEIMILI ----—AÐ HEIMAN Gisting B.B. 44 Borgarhoitsbraut 44, Kópavogi blöndu A37 1640 & 43? e,s/uþjónusi-a* Kaffikönnur og símtœki Rafstofan Egilsgötu 6 Smiðum hurðir og glugga. Onnumst alhhða byggingarþjónustu. Byggingafélagið Sólbakka 11, 310 Borgarnes Sími: 4371482 enn ein fjöðrin í hatt þessarar gamal- grónu leikdeildar. G.E.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.