Skessuhorn


Skessuhorn - 04.03.1998, Qupperneq 12

Skessuhorn - 04.03.1998, Qupperneq 12
'I m atstotai Frá Matstofunní: Matur framreiddur alla daga frá klukkan 11:00-23:30. Ingimar spilar á fostudagskvöldum. fréttapotið Síml 852 4098 Síminn sem sjaldan sefur! VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 3. tbl. 1. árg. 4. mars 1998 Ákranm Styrkveitingar Akranesbæjar BÆj ARSJÓRN Akraness tók upp á þeirri nýbreytni í ár að kalla sarnan full- trúa þeirra félaga og samtaka sem bær- inn styrkir. Að sögn Guðbjartar Hann- essonar forseta bæjarstjómar vildi bæj- arstjóm með þessu gefa viðkomandi félögum tækifæri til að kynna sína starfsemi og leggja áherslu á að starf hinna fjölmörgu félaga væri mikils met- ið af bæjaryfirvöldum. Guðbjartur sagði einnig í ræðu sinni við þetta tækifæri að störf þessara fé- laga væri ómetanlegur hluti af bæjarlíf- inu. Störf þeirra byggðu á gífurlegri sjálfboðavinnu en það kæmi í hlut bæj- arins að skapa aðstöðu og veita fjár- hagslegan stuðning. Heildarupphæð styrkja í ár er 33 milljónir en þess má geta að inn í það em reiknuð afnot af aðstöðu á vegum bæjarins. Af einstökum styrkjum má nefna að Körfuknattleiksfélag Akra- ness fékk 500.000 starfsstyrk. Það er síðari hluti umsaminnar íjárhagsaðstoð- ar vegna rekstrarerfiðleika félagsins. Sigur&ur Gu&jónsson skátahöf&- ingi tekur við ávísun til Skátafélags Akraness frá Gísla Gíslasyni bæjar- stjóra og Gu&bjarti Hannessyni forseta bæjarstjórnar. Hjálparsveitirnar fengu 300.000 kr. rekstrarframlag hvor og Skagaleik- flokkurinn fékk 250.000 kr. rekstrar- styrk. Tveir einstaklingar fengu styrki að þessu sinni. Þórður Emil Ólafsson gol- fari fékk 100 þúsund króna afreks- mannastyrk og Kolbrún Ýr Kristins- dóttir sundkona fékk 60 þúsund króna styrk vegna góðs árangurs. Hafnarframkvæmd- ir í Stykkishólmi NÝLEGA hófust hafnarfram- kvæmdir í Stykkishólmi. Um er að ræða nýja fyllingu í höfnina sem er fyrsti áfangi endurbyggingar aðalhafn- arinnar. Efnismagn í þessum áfanga er 6.000 rúmmetrar. Stefán Björgvinsson verktaki í Stykkishólmi átti lægsta til- boðið í verkið og var því tekið. V. J Isklifur í Grundarfirbi HELGINA 21.-22. febrúar s.l. komu félagar úr Björgunarsveitinni í Kópa- vogi til Grundarfjarðar og æfðu ísklif- ur í Kirkjufellinu. Þeir þræddu ýmsar krókaleiðir og vom ánægðir með hin- ar fjölbreyttu torfæmr sem fjallið hef- ur upp á að bjóða. Ekki spillti fyrir að þeir lentu í suðvestan skafbil. Helgina áður voru félagar Islenska Alpaklúbbsins á ferðinni á svipuðum slóðum með þrjátíu manna hóp. Þar af vom sex erlendir heimsþekktir ískhff- arar. Sá hópur “hljóp” upp og niður Mýrarhymuna. Ferðin var farin í til- efni tuttugu ára afmælis klúbbsins. Einnig var klöngrast um spmngur og kletta í Búlandshöfða og í Haukadal. Mýrarhyrnan vi& Grundarfjörð. Lobnuvertíbin fer vel af stab Vinnsla í fullum gangi á öllum vígstöövum hjá HB I síldarmjölsverksmi&ju HB á Akranesi er nú unnið úr um 1.100 tonnum af loðnu á sólarhring. ÞEGAR blaðamaður Skessuhoms ræddi við Guðmund Pál Jónsson hjá HB á Akranesi. fyrir síðustu helgi, vom öll skip á leið í land með fullfermi. Elliði var á leið til Sandgerðis með 900 tonn af loðnu til frystingar. Höfmngur var einnig með 900 tonn og Víkingur með 1400 tonn á leið heim á Skaga. „Fram til þessa hafa skipin verið að sækja loðnuna heldur langt til að hún væri hæf til frystingar, en nú er hún komin út af Homafirði og útlit fyrir að frysting geti farið að hefjast fyrir al- vöm“, sagði Guðmundur Páll. Þessa dagana fara um 1.000 — 1.100 tonn af hráefni í gegnum bræðsluna og hefur vinnsla í verksmiðjunni gengið vel, að sögn hans. „Verksmiðjan var gangsett eftir endurbætur í janúar í fyrra og vinnslan gekk framar vonum á síðasta ári og fer ekki síður af stað í ár“, sagði Guðmundur. Frá því vetrarvertíðin hófst hafa skip HB komið með um 11 þúsund tonn af loðnu að landi en áður en vertíðin hófst voru eftir um 40.000 tonn af útgefnum kvóta hjá fyrirtækinu. Cðno Canon litaprentarar Verðfrákr. 13.750, m HEWLETT® PACKARD HP litaprentarar Verðfrákr. 11.900, Operí i AOpen tölvur útbúnar sam- kvæmt óskum hvers og eins (verð við allra hæfi) IHLUTIR: * Módem * Minni * Harðir diskar * Hljóökort og margt fleira Margmiðlunartöl vur hlað- nar húnaði TOLVUBONDINN Egilsgötu 11,310 Borgarnesi Sími 437-2050 . ÍÉÍílÍtl

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.