Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2000, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 13.01.2000, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 2000 akUsunu.. Málþroskaskimun þrigg- ja og hálfs árs bama Hverjir voru fyrstir? Eftir áramótín verða öll böm á Islandi, þegar þau mæta í lög- boðna þriggja og hálfs árs skoð- un á heilsugæslustöð, athuguð með sérstakri málþroskaskimun sem hlotíð hefur nafnið EFI. I raun má segja að þar fari bamið í sitt fyrsta samræmda próf. EFI málþroskaskimunin er búin til af talmeinaffæðingunum Elmari Þórðarsyni, Friðriki Rúnari Guð- mundssyni og Ingibjörgu Símonar- dóttur. Málþroskaskimunin hefur verið stöðluð á Islandi svo athugun- in á heilsugæslustöðvum ætti að gefa góða mynd um stöðu barnsins í málþroska, svo ffamarlega að það mæti á réttum tíma. I byrjun desember sóttu starfandi heilsugæsluhjúkrunarfræðingar námskeið um notkun skimunarinn- ar. Margar stofhanir og einstakling- ar, þ.m.t. heilbrigðisráðherra, hafa lagt verkefninu lið en það hófst árið 1996. Sérstök markaðsdeild var stofn- uð í Járnblendifélaginu um síðustu áramót. Markaðsdeild mun bera ábyrgð á framleiðslustýringu og hafa ákvörðunarvald um það hvað er framleitt á hverjum tíma. Jafn- ffamt hefur markaðsdeild á sinni könnu öll innkaup á hráefni og öðrum aðföngum til framleiðsl- unnar. Markaðsdeildin mun einnig hafa með höndum öll samskipti við viðskiptavini og sjá um að koma vörunni í þeirra hendur. Deildin mun stýra öllum skipaflutningum fyrir Jámblendifélagið. 250.000 kr. styrkur hefur verið veittur úr friðlýsingarsjóði til merkingar á ffæðslustíg frá Kalm- ansvík að Blautós við Akranes. Fyr- irhugað er að koma fyrir skiltum “Atvinnuástand hefur verið gott í haust og vetur og sumarið var einnig með besta mótí,” sagði Einar Karlsson formaður Verka- Iýðsfélags Stykkishólms að- spurður um ástand í atvinnumál- um í Stykkishólmi. Nokkur fólksfækkun hefur verið í Hólminum að undanförnu en svo virðist sem atvinnuástandinu sé ekki um að kenna. Að sögn Einars em horfurnar nokkuð góðar næstu mánuðina a.m.k. en oft hefur gætt atvinnuleysis í Stykkishólmi á út- mánuðum effir að skelvertíð lýkur. Hér á Vesturlandi veittu starfs- menn heilsugæslustöðva aðstoð við stöðlun skimunarinnar auk þess sem Skólaskrifstofa Vesturlands hefur styrkt verkefnið frá upphafi. Að sögn starfsmanna skrifstofunnar vonast þeir til að þroskamatið muni stuðla enn frekar að samstarfi leik- Að sögn Bjarna Bjarnasonar, framkvæmdastjóra hefur fram- leiðsla á hreinsuðu kísiljámi aukist verulega hjá Járnblendifélaginu undanfarin ár. “Svona sérhæfing í ffamleiðslu kallar á sterk tengsl við kaupandann og gæðakröfurnar eru meiri. Einnig er mikilvægt að geta þróað vömna í samvinnu við ein- staka kaupendur til að koma til móts við þarfir þeirra. Það er með- al annars til að bregðast við þessum breyttu áherslum í framleiðslunni sem markaðsdeildin er stofnuð, “ sagði Bjarni Bjarnason. K.K. með upplýsingum um fuglalíf og sögu strandlengjunnar fyrir göngu- fólk. Undirbúningur hefst á næstu vikum og gera áætlanir ráð fyrir að verkinu ljúki í vor. K.K. “Það lítur út fyrir meiri stöðug- leika nú en oft áður. Menn ætla að fara í bolfisk þegar skelinni lýkur og einnig sjá menn ffam á betri tíma í rækjunni en sú vinnsla hefur legið niðri um tíma. Það kann hins- vegar að versna verkefnastaðan hjá iðnaðarmönnum þar sem stómm verkefnum er að ljúka en ég sé þó ekki annað en að það sé nóg að gera í framkvæmdum hér allsstaðar í kring. Eg get því ekki annað en verið nokkuð bjartsýnn á nánustu framtíð að minnsta kosti,” sagði Einar. GE skóla, skólaskrifstofu og heilsu- gæslustöðva á Vesturlandi. A næst- unni mun Skólaskrifstofan standa fyrir kynningu á EFI-málþroska- skimun handa leikskólastjórum á þjónustusvæði þess. Utgefandi EFI-málþroskaskimunarinnar er Landlæknisembættið. MM Fjarvinnslan frestast Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni eru uppi hugmyndir um að koma á fót fjarvinnslustöð í Búðardal á vegum Islenskrar miðlunar hf. Gert var ráð fyrir að endanleg ákvörðun lægi fyrir í desember en það hefur dregist þar sem ný verkefni Islenskrar miðlunar fara til fjarvinnslustöðvanna í Hrísey og á Olafsfirði en næsta skref er að tryggja verkefni fyrir Búðardal. Hugmyndir um fjarvinnslu- stöð í Búðardal em því enn í fullu gildi og ef af verð- ur munu þar skapast allt að 10 - 12 ný störf. GE Gámastöðvum lokað? Bæjarstjórn hefur falið umsjónarmanni sorpmála og bygginga og skipulagsfulltrúa Akraness að leita eftir samkomulagi við verktaka sorphirðu um fyrirkomulag á losun og flutningi pappírs- gáma þannig að kostnaður verði á sömu einingarverðum og almennu sorpi sem flutt er í Fíflholt. Náist ekki samkomulag gerir fjárhags- áætlun Akranesbæjar fyrir árið 2000 ráð fyrir því að gámastöðvum verði lokað K.K. Nýtt hverfi á Sandi Snæfellsbær er að láta skipuleggja nýtt íbúðahverfi á Hellissandi til að mæta auk- inni eftirspurn eftir lóðum undir íbúðarhúsnæði í sveitar- félaginu. Lítið hefur verið um húsbyggingar í Snæfellsbæ á síðustu árum en að undan- förnu hefur mikið verið spurt um lóðir og vilja bæjaryfirvöld vera undir það búin að mæta aukinni eftirspurn. Eitthvað er þó enn til af óráðstöfuðum lóðum í Ólafsvík samkvæmt upplýsingum frá bæjarskrif- stofum Snæfellsbæjar. GE Janúar 2000, í fréttum er þetta helst: American Online og Time Warner hafa sameinast. Nýja fyrir- tækinu er ætlað að leiða byltingu í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Innan vébanda þess eru fyrirtæki á borð við AOL, Time, CNN, CompuServe, Warner Bros og Netscape. Steve Case, forstjóri AOL, sagði í dag að samruninn myndi leiða til frekari þróunar og útbreiðslu Nets- ins. “Þessi samruni mun leiða til næstu netbyltingar,” sagði Case. Júní 1999, í fréttum er þetta helst: Skessuhorn og Vefsmiðja Vestur- Undirbúningur vegna fegurðar- samkeppni Vesturlands árið 2000 er að hefjast en keppnin verður haldin á Akranesi þann 25. mars nk. Að sögn Silju Allansdóttur framkvæmdastjóra keppninnar lof- ar þátttaka góðu en enn er þó hægt lands hafa sameinast. Nýja fyrir- tækinu er ætlað að leiða byltingu í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Innan vébanda þess eru auk Vefsmiðjunnar og fréttablaðsins Skessuhorns, útgáfuþjónusta, aug- lýsingastofa, markaðsráðgjöf, Vest- urlandsvefurinn, hugbúnaðargerð, útvarpsfréttastofa og fasteignaum- sýsla. Gísli Einarsson, ritstjóri Skessu- horns, sagði í dag að samruninn myndi leiða til frekar þróunar og útbreiðslu Netsins. “Þessi samruni mun leiða til næstu netbyltingar” sagði Gísli. að bæta við keppendum. Þátttak- endur þurfa að vera stúlkur á aldr- inum 18-25 ára og vera barnlaus- ar. Vildi Silja hvetja alla sem hefðu ábendingar um stúlkur sem til greina kæmu að hafa samband við sig í síma 869 1016. GE Markaðsdeild stoíh- uð í Jámblendinu Styrkur til merk- ingar fræðslustígs ----------HHI-------- Nokkuð bjart yfir atvmnumálunum Segir Einar Karlsson formaður Verkalýðsfélags Stykkishólms -BMK/MM Eimskip flytur fyrir Norðurál Samið til þriggja ára Norðurál og Eimskip hafa gert með sér samning um að Eim- skip annist allan inn- og útflutn- ing fyrir Norðurál, ef firá er tal- inn flutningur á súráli. Samn- ingurinn er til tveggja ára en ákvæði eru um heimild tíl fram- lengingar samningsins eftir það. Eimskip mun taka við þessum flutningum 1. mars næstkom- andi. Samningurinn hljóðar upp á tæplega milljarð króna. Ragnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fjármála og stjórn- unarsviðs Norðuráls segir samn- inginn hafa verið gerðan í fram- haldi af verðfyrirspurn sem Norð- urál sendi út í lok nóvember til sjö fyrirtækja. “Sex aðilar svöruðu og reyndist tilboð Eimskips hagkvæmast og var ákveðið að ganga til samninga við Eimskip um flutninga fyrirtæk- isins,” sagði Ragnar Guðmunds- son. Aætlað er að flutt verði að með- altali 140 þúsund tonn á ári á samningstímanum. Árieg fram- leiðsla Norðuráls er um 60 þúsund tonn af álhleifum en til þeirrar framleiðslu eru notuð rúmlega 30 þúsund tonn af rafskautum og verða álhleifar og rafskaut flutt í gámum til og frá landinu í reglu- legum áætlunarsiglingum. Flutn- ingarnir sem um ræðir eru aðallega útflutningur á áli frá Grundar- tanga til Rotterdam í Hollandi og innflutningur á rafskautum frá Neuss í Þýskalandi. Eftir stækkun álversins verður árleg framleiðsla Norðuráls um 90 þúsund tonn af álhleifum. Vegna stækkunar verk- smiðjunnar á Grundartanga er gert ráð fyrir innflutningi á um 25 þúsund tonnum af byggingarefni, vélum og tækjum á árunum 2000 og 2001. Eftir að siglingar hefjast er gert ráð fyrir að gámaskip Eim- skips muni hafa vikulegar viðkom- ur á Grundartanga. “Við erum mjög ánægðir með þennan samning og reglulegar komur gámaskipa á Grundartanga opna ýmsa möguleika. Það má því búast við frekari uppbyggingu á þjónustu við Grundartangahöfh,” sagði Ragnar Guðmundsson. KK. Þáttakendur í fegurðarsamkeppni Vesturlands 1999. Leitað að fögr- um fljóðum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.