Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2000, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 13.01.2000, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 2000 SSESSliHöSM Bjart er yfir Borgarfirði Penninn Bjart er yfir Borgarnesi segir Völvan í Vikunni nú um áramótin. Þetta leiðir hugann að stöðu Borg- arness, Borgarbyggðar og Borgar- fjarðarsvæðisins í heild á þessum tímamótum. Atvinnulífið í Borgarnesi og ná- grenni hefur á undanfömum ámm gengið í gegnum verulegar breyt- ingar sem ekki sér fyrir endann á. Slíkt er ekki þrautalaust og fylgja oft erfiðar ákvarðanir. Þessu ræður miklu gífurlegur samdráttur í hefð- bundnum landbúnaði sem hefur verið uppistaðan í atvinnulífi á svæðinu. Einnig ræður nokkm að umhverfi fyrirtækjarekstrar hefur verið að breytast og samkeppni á öllum sviðum að aukast. Eins og annars staðar hefur atvinnulífið hér þurft að bregðast við. Samhliða breyttum aðstæðum í atvinnurekstri hefur þróun byggðar á Islandi verið með þeim hætti að fólkið flytur til höfuðborgarsvæðis- ins. Ymsar skýringar hafa komið fram á þessari þróun sem finna má í skýrslum. Borgarbyggð hefur þó náð að halda sínum íbúafjölda á síð- ustu ámm. Fram hefur komið að þeir þættir sem helst era aðkallandi til að bæta búsetuskilyrði á Borgar- fjarðarsvæðinu eru aukin fjöl- breytni starfa, að boðið sé upp á tekjuhærri störf og að samgöngur á vegum og í fjarskiptum verði áffam bætt. Allt em þetta þættir sem em mikilvægir bæði fyrir heimilin og fyrirtækin en um leið fyrir rekstur sveitarfélaganna. Hvers er þá að vænta á þessum tímamótum? Þótt undirritaður sé ekki mikil áhugamaður um Völvu- spár er hann eigi að síður að hugsa um að leyfa sér að trúa Völvunni nú um áramótin um að bjart sé yfir Borgarnesi og jafnvel gott betur og segja að það sé bjart yfir Borgar- firði. Þar má nefna nokkur atriði: Atvinnureksturinn hefur gengið í gegnum þrengingar og endurskipulagningu sem gefur mönnum alltaf ný sóknartækifæri. Leiða má að því líkur að nú sé at- vinnurekstur í Borgamesi að kom- ast út úr orrahríðinni og uppbygg- ing eigi að vera framundan. Sveitar- félagið hefur sett fjármuni í að styð- ja við atvinnurekstur á svæðinu á umliðnum árum sem því miður hefur ekki skilað sér sem skyldi. Sveitarfélagið tekur ekki lengur þátt í atvinnulífinu með beinum hætti en hefur það verkefni að skapa sem hagstæðust skilyrði fyrir ffekari uppbyggingu. Borgarbyggð á um 10% hlut í nýstofnuðu eignar- haldsfélagi á Vesturlandi sem ætlað er að fjárfesta í atvinnulífmu á grundvelli arðsemissjónarmiða. Þar hefur skapast ný leið fyrir stofnun og stækkun fyrirtækja á Vesturlandi í samstarfi sveitarfélaga við fjárfesta og Byggðastofnun. Ferðamannaþjónusta hefur vaxið hratt á Borgarfjarðar- svæðinu síðustu ár. Þar verður eftir- spumin ömgglega upp á við með bættum samgöngum, auknum ffí- tíma og fjárráðum fólks. Fullyrt er að allar grunnforsendur séu til stað- ar til að ná langt í þjónustu við ferðamenn á komandi ámm. Ferða- mannaþjónusta byggir mikið á frumkvæði bænda og kemur þá gjarnan í stað hefðbundins land- búnaðar. Gera verður þó ráð fyrir að í framtíðinni verði einnig stærri einingar í þjónustu við ferðamenn á svæðinu með víðtækara framboði margskonar afþreyingar. Háskólastofhanir, bæði á Bifröst og á Hvanneyri hafa verið að eflast og eiga eftir að gera það enn frekar. Slík starfsemi er at- vinnuskapandi, auk þess sem hún færir tækifæri út í atvinnulífið á svæðinu. Eðlilegt er að ríkisvaldið styðji við háskólana með því að færa til þeirra verkefni stofnana á vegum ríkisins sem tengist sérsviðum skól- anna. Umræður um stórfellda upp- byggingu stofnana landbúnaðarins í Reykjavík vekur furðu í þessu sam- bandi. Höfuðborgarsvæðið tútnar út í ofþenslu sem leiðir til hækkandi lóðaverðs, húsnæðis- verðs, launakostnaðar o.s.frv. Þetta á að geta leitt til þess að áhugi fyr- irtækja á að líta út fyrir svæðið fari vaxandi. Með tilkomu Hvalfjarðar- ganga er Borgarfjörður á allan hátt orðinn vænlegur kostur í þessu sambandi og má reyndar sjá að áhrif þessa er þegar farið að gæta á Akranesi. Samfélagsþjónusta hefur umtalsverð áhrif á val fólks til bú- setu. Borgarnes og nágrenni bíður á margan hátt upp á góð búsetuskil- yrði að þessu leyti. Leikskólar, grannskólar, íþróttamannvirki og heilbrigðisþjónusta svo dæmi séu tekin. Þar má þó gera betur. Nú em uppi áform um stækkun grunnskól- ans í Borgarnesi. Verið er að skoða Stefán Kalmansson hvort raunhæft verði að koma á kennslu á framhaldsskólastigi í Borgarnesi. Unglingar úr Borgar- byggð sem fara í framhaldsnám munu þó áfram þurfa að sækja menntun sína út fyrir sveitarfélagið að töluverðu leyti. Stundum ræða menn það sín á milli að meira vanti af jákvæðum fréttum úr héraðinu. Of mikið fari fyrir fréttum af ágreiningi á kosm- að ffétta sem sýni að hér sé gott mannlíf. Þetta snýst um hvaða ímynd við viljum að aðrir hafi af okkur. Hér getum við líklega flest tekið okkur á. Það þýðir ekki að öll vandamái þurfi að vera úr sögunni. Vandamál eiga að vera til að sigrast á þeim; vera ögrandi viðfangsefni til að takast á við en þau mega ekki vera óyfirstíganleg. Leyfum okkur að vera jákvæð, horfa fram á við og setja okkur heilbrigð markmið til góðra verka. Borgamesi 10. janúar árið 2000 Stefán Kalmansson, bæjarstjóri Fjölskylduferð í Akrafjallið Penninn Ég hafði fyrir löngu ákveðið að eyða nýliðnum árþúsundaskiptum í fjallinu. Foreldrar mínir og bróðir urðu mér samferða. Við höfðum ætlað að keyra upp með Berjadalsá og ganga í vestur meðfram fjallinu en skyndilega þegar stundin rann upp var tíminn of naumur og veður ótryggt þannig að við keyrðum upp afleggjarann að bænum Reyn og gengum upp á næstu syllu f hlíðum Akrafjalls þar sem útsýni var gott yfir Skagann og til Reykjavíkur. Við komum okkur fyrir og virt- um fyrir okkur útsýnið og dýrðina, það var einstök upplifun. Aðra eins sjón höfðum við ekki séð. Við kveiktum á kerti og stjörnuljósum og skutum upp flugeldum til að fagna nýju ári. Opnuðum kampa- vín, skáluðum og tókum myndir. Þetta var einstök stund á sérstökum stað. En í þann mund sem við vomm að fara að tygja okkur til baka kom til okkar huldumaður sem hvorki kynnti sig né tók undir nýársóskir heldur hellti hann sig yfir okkur með það hvað við væmm að gera þarna. Hann talaði til foreldra minna eins og þau væra óvita ung- lingar og nefndi meðal annars að við Skagamenn æddum inn á og yfir annarra manna lóðir án þess að spyrja einn né neinn. Það minnsta sem við hefðum geta gert væri að biðja um leyfi. Að lokum skipaði hann okkur að taka saman draslið okkar og hundskast burt á stond- inni. Stund sem átti að verða sérstök og eftirminnileg breyttist í eitthvað allt annað. Foreldrar mínir sem era á sjötugs aldri höfðu aldrei fengið annað eins framan í sig og urðu mjög hvelft við þessa óvæntu heim- sókn huldumannsins sem við áttuð- um okkur loks á að væri bóndinn á staðnum sem átti þetta land. Mín voru mistökin og að sjálf- sögðu hefði ég átt að biðja um leyfi til þess að fá að vera þarna á þess- um merku tímamótum. Það var eins gott að ég var ekki að gifta mig. Þetta var skrýtinn endir á annars góðri stund þar sem allir um allan heim voru að fagna sérstökum tímamótum, ffiður og sátt samein- aði fólk og allir óskuðu öllum alls hins besta. Það var eins og skratt- inn sjálfur hefði heimsótt okkur. Við tókum saman og keyrðum sem leið lá til baka en viti menn þegar við vorum komin að fjósinu var komin upp gaddavírsgirðing, og maðurinn sem var að reka okk- ur út af lóðinni nú búinn að loka okkur inni. Hvernig átti að skilja þetta. Eg vippaði mér út úr bílnum og losaði gaddavírinn svo við kæm- umst áfram og svo branuðum við niður á Akranes þar sem við voram ömggari með okkur. Við geram okkur alveg grein fyr- ir að við voram í órétti og bóndinn í rétti en hins vegar er spurning hvernig fólk kemur fram og gagn- vart foreldram mínum fannst mér þetta viðurstyggilega truntuleg framkoma þrátt fyrir allt. Af öllum stöðum áttum við ekki von á því- líku skítkasti þarna við rætur Akra- fjalls á slíkum tímamótum. Abúendum á Reyni hefur verið sent afsökunarbréf með blómum. Gleðilegt ár. Jón Sverrisson. Dægurlagakeppni áKróknum Hin árlega Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks er nú hafin. Þegar hefur verið auglýst eftir lögum í keppnina en henni mun ljúka með úrslitakvöldi á Sæluviku Skagfirðinga föstudag- inn 5. maí n.k. Ollum laga- og textahöfundum landsins er heimil þátttaka. Að- eins verða teldn til greina verk sem ekki hafa verið flutt opinber- lega né gefin út áður. Verkin skulu vera á hljóðsnældum/diskum og textar á íslensku. Þátttakendur skili verkum sín- um inn undir dulnefhi ásamt þátt- tökugjaldi kr. 1.000 pr. lag. Rétt nafn og heimilisfang skal fylgja með í vel merktu og lokuðu um- slagi. Síðasti skilafrestur er 2. febrúar 2000. Miðað er við að þátttöku- gögn séu póstlögð í síðasta lagi þann dag. Póstfang er “Dægur- lagakeppni Kvenfélags Sauðár- króks”, Pósthólf 93, 550 Sauðár- krókur. Dómnefhd mun velja tíu lög til að keppa á úrslitakvöldi þann 5. maí og mun þá sérstofnuð hljóm- sveit flytja lögin ásamt söngvumm sem höfundar velja. Sérskipuð dómnefnd ásamt áheyrendum munu velja sigurlag. Vegleg verð- laun verða veitt. Dægurlagakeppnin er árlegur viðburður á Sæluviku Skagfirð- inga. Keppnin hefur áunnið sér fastan sess í þjóðlífinu sem helsti vettvangur fyrir fjölmarga tón- og textahöfunda sem vilja koma verkum sínum á framfæri. (Fréttatilkynning) Leifs I tilefni af væntanlegum há- tíðahöldum til að minnast landa- funda Leifs heitins Eiríkssonar er rétt að birta hér ævisögu Leifs eftir Stefán Jóhannesson en hún er varðveitt í Skinnhandriti óút- gefin. Fá í æsku afrek vann Ofi af vtni hreifur. Ameríku óvartfann Eiríksstaða Leifur Þegar seggur sat við skál sitt með sterkast blandið. Nöldraði hann nú er mál nafn að finna á landið. Oll voru keröld orðin tóm upp var sötruð bleyta vældi hcmn þá með veikum róm Vínland skal það heita. Sár og þyrstur sigla vann svo til Grænlands aftur úrþvt ritar orð um hann ekki nokkur kjaftur. Begga litla Frá því var sagt í frétttum í síð- ustu viku að strokufanginn ill- ræmdi, Beggi litli, hefði verið handtekinn í Reykjavíkurhreppi. Eftir fjögurra tíma varðhald kom þó í Ijós að sá handtekni var alls ekki Beggi litli heldur þriggja barna móðir úr Grafarvoginum sem var úti að viðra hundinn sinn. Hún var að vísu lítil en veigamikil atriði greindu hana frá umræmdum Begga. I framhaldi af umræddri handtöku hefur Heygarðshornið fregnað að Tina Turner hafi af- iýst fyrirhugaðri tónleikaferð til íslands. Hún mun óttast að verða handtekin sem Kio Briggs! Megrunar- fæði Jónína Benediktsdóttir leikfim- ipía er með fasta útvarpsþætti í Ríkisútvarpinu þar sem hún segir fólki hvernig það eigi að lifa af. Sjálfsagt líður flestum mun betur eftir að hafa hlustað á Jónínu en þó mun síðasti þáttur hennar hafa valdið mörgum bóndanum van- líðan fremur en hitt. Þar réði téð Jónína fólki frá því að láta ofan í sig ket af öðrum skepnum en hænsnfuglum og ekki síst ef það ætlaði að gera sér einhverja von um að fækka aukakílóunum. Lífs- reyndur sauðfjárbóndi í Dölun- um tók hinsvegar undir orð Jón- ínu og sagði að ekki væri til betra megrunarfæði en kjúklingar þar sem þeir hafi valdið þvílíkum innantökum að menn hafi engu haldið niðri svo vikum skipti.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.