Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2000, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 13.01.2000, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 13. JAjSÍUAR 2000 joí33Unu._ íþróttamaður Akraness árið 1999 Kolbrún Yr í annað sinn Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir sunddrottning var valinn íþrótta- maður Akraness árið 1999, ann- að skiptið í röð. Venju samkvæmt hlaut hún Friðþjófsbikarinn sem Helgi Daníelsson gefur. Afhend- ingin fór fram í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum þann sjöunda jan- úar síðastliðinn. I öðru sæti var knattspymumaðurinn Alexander Högnason og í þriðja sæti varð knapinn Karen Líndal Marteins- dóttir. Þetta var í níunda sinn sem Iþróttamaður Akraness var kjörinn. Kjörið fer þannig fram að hvert fé- lag tilnefnir einn mann frá sínu fé- lagi og að þessu sinni tilnefndu tólf félög fulltrúa. Badmintonmaður Akraness: Hólmsteinn Valdimarsson Iþnóttamaður boltafélagsins Bmna: Arnar Geir Magnússon Iþróttamaður fatlaðra: Emma Rakel Björnsdóttir Fimleikamaður Akraness: Valgerður Valsdóttir Frjálsíþróttamaður Akraness: Sigurkarl Gústavsson Hestaíþróttamaður Akraness: Karen Líndal Marteinsdóttir Karatemaður Akraness: Eydís Líndal Finnbogadóttir Knattspymumaður Akraness: Alexander Högnason Kylfingur Akraness: Stefán Orri Olafsson Körfuknattleiksmaður Akraness: Brynjar Sigurðsson Skotmaður Akraness: Stefán Gísli Orlygsson Sundmaður Akraness: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir Breyting var frá hefðbundinni dagskrá þar sem öllum Islands- meisturum var afhent viðurkenning frá íþróttanefnd. Alls eignaðist Akranes 24 Islandsmeistara í sex greinum á liðnu ári. Akranesbær gaf þeim listaverk eftir Jónsínu Olafs- dóttir. Islandsmeistararnir eru: Frá Golfklúbbi Akraness: Bjami Þór Hannesson, Haukur Dór Sigurdórsson, Hróðmar Halldórsson, Stefán Orri Olafsson og Sveinbjörn Hafsteinsson Frá Badmintonfélagi Akraness: Aðalsteinn Huldarsson, Haraldur Hinriksson, Hólmsteinn Valdimarsson, Stefán Jónsson, Hjalti H. Jónsson, Pavel Ermolinski, Karítas Olafsdóttir og Frá vinstri Amar Geir Magmísson, Emma Rakel Bjömsdóttir.; Sigurkarl Gústavsson, Kolbnín Yr Kristjánsdóttir, Stefán Orri Olafsson, Eydís Líndal Finnbogadóttir og Alexander Högnason. Fremri röð frá vinstri Hólmsteinn Valdimarsson, Valgerður Valsdóttir, Karen Líndal Marteinsdóttir, Brynjar Sigurðsson. A myndina vantar Stefán Gísla Orlygsson skotveiðifélaginu. Hróðmar Halldórsson. Frá Hestamannafélaginu Dreyra: Karen Líndal Marteinsdóttir. Frá Sundfélagi Akraness: Anna Lára Armannsdóttir, Elín María Leósdóttir, Guðgeir Guðmundsson og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir. Frá UMF Skipaskaga: Sigurkarl Gústafsson. Frá Þjóti: Asgeir Sigurðsson, Emma Rakel Björnsdóttir, Krístin Anna Erlingsdóttir og Sverrir Haraldsson. -SB Brjáluð ef ég vinn ekki Segir Kolbrún Yr Iþróttamaður Akraness Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir sundkona á Akranesi hefur vakið mikla athygli undanfarin misseri. Sundið á hug hennar allan og á seinasta ári átti hún mikilli vel- gengni að fagna. Nú seinast var hún kjörinn Iþróttamaður Akra- ness og þykir vel að titlinum komin. Blaðamaður Skessuhoms hitti þessa efinilegu sundkonu að máli og athugaði hvað hún hefur verið að bardúsa. Hún er bros- hýr og ósköp hógvær og segist alveg eins hafa átt von á því að vera kosin íþróttamaður ársins Við hefjum spjallið sem beinist fljótt að nýliðnu ári “Fyrri partur ársins var mjög góður þar sem allt gekk upp en svo fór þetta dalandi,” segir Kolbrún Ýr. “Þetta er tímabil sem kemur alltaf, maður slappar af og dettur út í smá stund.” Aðspurð um hvað hafi verið eftirminnilegast á liðnu ári segir Kolbrún Ýr að smáþjóðaleikarnir í Lichtenstein hafi staðið upp úr. “Engin spurn- ing. Það var bara svo gaman, þarna var fólk frá aldrinum þrettán og upp í þrítugt. Maður var með stór- um og góðum hópi. Persónulegir sigrar voru að ná þeim lágmörkum sem ég þurfti og í 200 m baksundi á smáþjóðaleikunum náði ég góðum tíma. Markmiðið er Ólympíu- leikamir Kolbrún segir mikinn tíma fara í æfingar, jólafríið hafi farið meira og minna í æfmgar og nú æfir hún alla daga nema sunnudaga og fer tvisvar í viku á morgunæfingar og þrisvar í viku í þrek áður en að æfing hefst. ”Þetta er mikil vinna og ef maður vill ná árangri þá þarf maður að vinna vel”. Akveðin segir hún Olympíuleik- ana næsta á dagskrá og að ná lág- markinu “Mig vantar aðeins herslumuninn. Eg fer út núna í jan- úar til Danmerkur að keppa og þar ætla ég að ná því. Eg bíð bara eftir að klára þetta. Það er nóg að gera í öllum undirbúningi”. Þegar Kolbrún Ýr er spurð hvort hún sé á leiðinni út vill hún ekki gera mikið úr því”. Mig er farið að vanta keppni hérna heima sem verður til þess að maður tekur þessu sein sjálfsögðum hlut. Ef maður vinnur ekki verður maður alveg brjálaður. Jú mig langar að prófa að fara út og það var stefhan en það að fara ein út hljómar ekki eins vel. Eg hef alltaf haft svo góð- an stuðning hér, þjálfarinn minn er í sambandi við kanadískan þjálfara og þetta verður bara að koma í ljós.” Verð að vera með í öllu Kolbrún Ýr er á annarri önn í Fjölbrautaskóla Vesturlands á hag- fræðibraut og hún segist ætla að byrja á stúdentinum en að öðru leyti sé framtíðin óráðin. Sundið taki mikinn tíma og nóg sé um að vera. Þegar blaðamaður furðar sig á hvernig henni takist að samræma félagslíf, æfingar og skóla hlær hún: “Það er ótrúlegt hvernig þetta gengur, reyndar segir mamma að ég megi læra aðeins meira. Eg er bara þannig manneskja ég verð að vera með í öllu. Eg dembi þessu öllu saman einhvern veginn og allt reddast”segir Kolbrún. Dýrt Kolbrún hefur verið að keppa mikið undanfarið og farið á mörg mót erlendis. Kostnaðurinn við ferðalögin er mikill og hún segist ekki hafa fengið nóg af styrkjum. ”Eg þurfti til dæmis að fara út með þjálfar- anum mínum og borga það með styrk frá alþjóða Olymp- íunefhdinni”, segir Kolbrún. “Það er ekki nóg þegar mað- ur fer víða og keppir mikið. Þetta er í annað sinn sem ég er kosin íþróttamaður ársins og hef ekki fengið styrk þó fordæmi sé fyrir því. Eg er heppin að eiga góða foreldra, þau hafa stutt vel við bakið á mér, borg- að það sem þarf en það er hvimleitt að þurfa að sníkja pening vilji mað- ur gera eitthvað.” Meðan ég hef áhuga Arangurinn í sundinu hefur ekki látið á sér standa enda hefur þessi unga stúlka lagt hart að sér. Segist hafa fengið mikinn stuðning heima fyrir enda komin af miklu keppnis- fólki. “Einhverntímann verður maður að hætta”, segir hún hálf annars hugar. “Maður fær alltaf smá leiða en það líður hjá. Mér er stundum bent á það í góðu að ég sé eiginlega orðin þjóðareign. Meðan ég hef áhuga þá held ég áfram segir Kol- brún Ýr Kristjánsdóttir. SB Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir Sigurvegarar í sveitakeppni Bridgehátíðar Vesturlands. Fjölmenn Bridgehátíð Bridgehátíð Vesturlands fór fram um síðustu helgi á Hótel Borgar- nesi. Keppendur voru ríflega 100 talsins víðs vegar að af landinu. Besti árangur Vestlendinga var þriðja sæti í sveitakeppninni sem fram fór á laugardeginum. Þetta var sveit Kaupfélags Borgfirðinga skipuð þeim Sveinbirni Eyjólfssyni, Jóni Viðari Jónmundssyni, Guð- mundi Olafssyni og Hallgrími Rögnvaldssyni. Þeir Guðmundur og Hallgrímur náðu einnig besta árangri heimamanna í tvímenn- ingskeppninni og lentu þar í 7.-8. sæti ásamt hjónunum Rúnari Ragnarssyni og Dóru Axelsdóttur. Sigurvegarar í sveitakeppninni varð sveit Keiluhallarinnar með 152 stig, í öðru sæti var sveit Páls Valdimarssonar með 150 stig og KBB sveitin var í því þriðja, eins og áður sagði, með 146 stig. Sigurvegarar í tvímenningi urðu Þorsteinn Joensen og Rúnar Gunnarsson, í öðru sæti Halldór Már Sverrisson og Ingi Agnarsson og í þriðja sæti Sigfás Þórðarson og Gunnar Þórðarson. MM Sigurvegarar i tvimenningskeppni Bridgehátíðar Vesturlands asamt statfsfólki mótsins. Myndir MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.