Skessuhorn - 24.02.2000, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 24. FEBRUAR 2000
Selhóll á Hellissandi Mynd: GE
Mikil eftirspum eftir lóðum í Snæfellsbæ
Það er einfaldlega
gott að búa héma
^ segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri
Mikill skriður virðist vera að
komast á byggingu íbúðarhúsnæðis
í Snæfellsbæ en eins og víða annars
staðar á landsbyggðinni hefur lítið
verið byggt undanfarin ár. Að sögn
bæjarstjóra og bæjartæknifræðings
Snæfellsbæjar er þegar farið að
sækja um lóðir í nýju hverfi á
Hellissandi sem verið er að auglýsa
deiliskipulag fyrir. Nýja hverfið er á
svokölluðum Selhól með útsýni yfir
Keflavík og þykir eftirsóknarverð
staðseming. Þá er fyrirhugað að
fara í deiliskipulag fyrir nýjar götur
í Olafsvík. Að sögr. Arnar Tryggva
Johnsen bæjartæknifræðings er
þegar búið að sækja um þrjár lóðir
á Hellissandi í byggðum hverfum
og tvær í nýja hverfinu á Selhól. Þá
eru tvær lóðaumsóknir á Rifi og
þrjár á Arnarstapa . í Ólafsvík og á
Rifi hefur einnig verið sótt um
lóðir fyrir atvinnuhúsnæði. “Þá
höfum við fengið mikið af fyrir-
spurnum og óstaðfestum
umsóknum en áhuginn virðist vera
geysilega mikill,” segir Örn. “Það
verður að sjálfsögu tryggt að nægi-
legt framboð sé á lóðum á öllum
þéttbýlisstöðunum og nú er meðal
annars að hefjast gerð aðalskipulags
fyrir Arnarstapa til að halda utan
um mikla uppbyggingu þar.”
Kristinn Jónasson bæjarstjóri
sagði aðspurður um skyndilega
eftirspurn eftir lóðum að það ætti
ekki að koma á óvart. “Samgöngur
eru að batna, atvinnuástand er gott
og ég held að fólk sjái að það er ein-
faldlega gott að búa hér. Bjartsýni
ríkir í bæjarfélaginu og hún er á
rökum reist,” segir Kristinn
Kristinn Jónasson h<ejarstjóri
Fjárhagsáæuun
Borgarfj arðarsveitar
Fulltrúi minnihlutans leggur
fram tillögu um sölu eigna
Fjárhagsáætlun Borgarfjarðar-
sveitar fyrir yfirstandandi ár var
samþykkt á tvíframlengdum fundi
hreppsnefndar í Brún sl. föstudag.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins eru
áætlaðar 153 milljónir króna. Til
reksturs ýmissa málaflokka 133,5
milljónir og til fjárfestinga er áætl-
að að verja 31 milljón. Þannig er
gert ráð fyrir að fjármagna þurfi
hluta fjárfestinga með viðbótarlán-
tökum upp á 11,4 milljónir króna.
Líkt og í öðrum sveitarfélögum
rennur stærstur hluti tekna til
fræðslumála, eða samtals 62% af
rekstrarkostnaði. Til félagsþjón-
ustu renna 13% og til yfirstjórnar
tæplega 8%. Aðrir málaflokkar
kosta mun minna eða frá hálfu pró-
senti til tveggja.
Helstu framkvæmdir sem ráðist
verður í á árinu er stækkun leik-
skólans á Hvanneyri, gamagerð í
Reykholti og vinna vegna aðal-
skipulags.
Tillaga um sölu eigna
Fulltrúi H lista, Guðmundur S
Pétursson lagði fram tillögu á
fundinum um að stefnt skuli að
sölu húseigna sveitarfélagsins og
koma þannig í veg fyrir auknar lán-
tökur. I tillögu hans segir: “I ljósi
slæmrar fjárhagsstöðu sveitarfé-
lagsins sbr. nýsamþykkta fjárhagsá-
ætlun samþykkir sveitarstjórn að
setja ákveðnar fasteignar á opin-
bera sölu. Sett verði á sölu: Félags-
heimilið Brún ásamt tilheyrandi
mannvirkjum. Aðrar eignir í eigu
sveitarfélagsins (sjá upptalningu í
skriflegu svari sveitarstjóra til full-
Guómimdur S. Pe'tursson
trúa H-lista er lagt var ffam á 23.
fundi HB 14. október 1999).
Salan verði vandlega undirbúin
og sérstaklega kannaðar lagalegar
hliðar mála varðandi skuldbinding-
ar og samninga sem gerðir voru
þegar sveitarfélagið eignaðist þær
eignir sem hér um ræðir. Sveitar-
stjórn áskilur sér þó rétt til að hafna
öllum tilboðum í einstakar eignir sé
það mat hennar að ekkert þeirra sé
ásættanlegt. Takist með þessu að
losa meira fé en sem nemur áætl-
aðri aukinni lánsfjárþörf að
óbreyttu á árinu 2000 verði afgang-
inum varið til að leysa húsnæðis-
vanda í sveitarfélaginu skv. nánari
ákvörðun sveitarstjórnar.”
Tillaga minnihlutans var rædd á
fundinum en ákveðið að vísa henni
til þriggja ára fjárhagsáætlunar
enda ekki talið að hægt væri að j
hnýta henni við fjárhagsáætlun árs- :
ins þar sem engar tölur liggja fyrir
um hugsanlegt §öluverð viðkom-
andi eigna. , MM
--HHi-
Ungt
nesi
Síðastliðinn þriðjudag mætti
bæjarstjórn Akraness á Kaffihúsa-
kvöld á sal FVA. Þar var kynnt
skýrsla sem unnin var af ungu fólki
um það hvað hægt væri að gera
fyrir ungt fólk á Akranesi og
hvernig hægt væri að fá það aftur í
bæinn eftir nám fjarri heimabyggð.
Fram kom á fundinum að vilji væri
fyrir hendi til að mæta kröfum
ungs fólks og gera umhverfið sem
mest aðlaðandi. Einnig var rætt
um að koma upp aðstöðu fyrir
unglinga á aldrinum 16-20 ára þar
sem þeir gætu komið saman án
þess að sérstök dagskrá væri í gangi
og hljómsveitir gætu fengið æf-
ingaaðstöðu. Eftir umræður steig
Einar Skúlason á stokk og söng við
góðar undirtektir. Hápunktur
kvöldsins var þegar Orn Arnason
og Karl Agúst Ulfsson skemmtu
áhorfendum eins og þeim er ein-
um lagið. SB
lS.feh.
3995 g - Lengd: 55 cm. Foreldrar:
Anna Einarsdóttir og Ricardo Mario
Vilblobes, Borgames. Ljósmóðir: Mar-
grét Bára Jósefsdóttir.
12 feb. kl 02:13- Sveinbam. - Þyngd:
3815 g- Lengd: 54,5cm. Foreldrar:
Sigríður Gróa Sigurðardóttir og Sœvar
Haukdal Böðvarsson, Akranes. Ljós-
móðir: Helga R. Höskuldsdóttir.
4140 g- Lengd: 54 cm. Foreldrar:
Unnur Asta Hilmarsdóttir og Asgeir
Salberg Jónsson, Blönduhlíð, Dalabyg-
gð. Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir.
4140 g- Lengd: 54 cm. Foreldrar:
Sœdís Björk Þórðardóttir ogjón
Heiðarsson, Borgames. Ljósmóðir: Jóní-
na Ingólfsdóttir.
Nýfæddir Vesdendingar eru boðnir vel
komnir í heiminn um leið og nýbökuðum
foreldrum eru færðar hamingjuóskir.
18. feb. kl 16:24— Meybam. - Þyngd:
3455 g - Lengd: 53 cm. Foreldrar:
Anna Snjólaug Eiríksdóttir og Einar
Kr. Gíslason, Akranes. Ljósmóðir: Lára
Dóra Oddsdóttir.
07. feb. kl 06:35- Sveinbam. - Þyngd:
3330 g- Lengd: 51 cm - Foreldrar:
Asta Margrét Baldursdóttir og Sveinn
B. Magnússon, Akranes. Ljósmóðir:
Lára Dóra Oddsdóttir.
Þami 26.janúar fæddist tþróttafrétta-
ritara okkar í Halifax, Jónasi Freyssyni
(James Fryer) og konu hans, Carol,
smurinn Alexander Reece.
Congratulations James and Carol!
Nýburar
18. feb. kl 11:40- Sveinbam. - Þyngd:
4005 g - Lengd: 54 cm. Foreldrar:
Berglind Þ. Hallgrímsdóttir og
Guðlaugur Rafnsson, Akranes. Ljós-
móðir: Jónína Ingólfsdóttir.